Austurland


Austurland - 27.08.1998, Page 1

Austurland - 27.08.1998, Page 1
Hús á snjóflóðasvæði keypt á Norðfírði Ofanflóðasjóður hefur sam- þykkt að veita styrk til kaupa á sex íbúðarhúsum á snjó- flóðahættusvæði á Norðftrði. Fastaeignamat húsanna er samtals um 32,4 milljónir króna, en matsnefnd um markaðsvirði húsanna er enn að störfum. Húsin standa við Strandgötu og Naustahvamm. Ef kaupin ganga eftir verður sameinað sveitarfélag Eski- fjarðar, Norðfjarðar og Reyð- arfjarðar eigandi húsanna. Af vatnsmálum á Eskifírði Bæjarráð nýsameinaðs sveit- arfélags hefur samþykkt að fara í vatnsöflun á Eskifirði samkvæmt tillögum frá Verkfræðistofunni Hönnun og ráðgjöf og Jarðfræðistof- unni Stapa. Veittur hel'ur veðri styrkur að upphæð 3 milljónir kr. frá Orkustofnun fyrir hönd Orkusjóðs, Byggð- arsjóðs og Iðnaðarráðuneyt- isins. Jafnframt hefur bæjar- ráð heimilað bæjarstjóra lán- töku, allt að 13 milljónum króna, vegna framkvæmdanna. Makríl landað á Norðfírði ísfisktogarinn Sjóli landaði í vikunni hjá Sildarvinnslunni hf. 60 tonnum af ísuðum markríl sent veiddur var í Síldarsmugunni. Makríllinn var heilfrystur og fer hann væntanlega á markað í Rúss- landi, Evrópu og Japan. Mak- ríll hefur ekki verið unninn áður hjá Síldarvinnslunni. Sfldarvertíð undirbúin Undirbúningur fyrir komandi síldarvertíð er hafinn víða um Austurland, með tilheyrandi tunnuþvottum og frarn- kvæmdum. Friðþjófur hf. á Eskifirði sem er í eigu Samherja hf. hefur t.d. farið í mikla endumýjun á vélbún- aði og munu afköst aukast mikið við það. Að sögn Frey- steins Bjarnasonar, útgerðar- stjóra Sfldarvinnslunnar hf., hafa menn orðið varir við þó nokkuð af sfld á ntiðunum og er vonanandi að hún geft sig þegar vertíð hefst. / síðustu viku hélt Kaupfélag Héraðsbúa upp á 60 ára verslunarafmœli sitt á Reyðarfirði. Margar uppákomur voru í tengslum við afmœlið og þegar blaðamaður Austurlands var á Reyðarfirði á föstudag voru blessuð b'órnin við iðju sem þau fá ekki að stunda með löglegum hœtti nœstu árin, eða að keyra bíla. Ljósm. as Barrl á Egilsstöðum fjárfestir Barri á Egilsstöðum og Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup fyrmefnda fyrirtækisins á rekstri Fossvogsstöðvarinnar og leigu aðstöðu fyrirtækisins. Vilja- yfirlýsingin er með fyrirvara um að hluthafar Barra þurfi að samþykkja kaupin en fundur er hjá þeim í dag. Fossvogsstöðin er stærsta gróðrarstöð landsins en hún hefur aðallega framleitt garðplöntur og skógarplöntur. Kaupverð Fossvogsstöðvarinnar er 13,6 milljónir króna og mun Skógræktarfélag Reykjavíkur eignast 25% hlut í Barra og verður hlutafé fyrirtækisins aukið samsvarandi, eða úr 40 milliónum króna að nafnvirði í 53,6. Að sögn Jóns Kr. Arnarsson- ar, framkvæmdastjóra Barra, er ástæðan fyrir kaupunum marg- vísleg hagræðing, m.a. í yfir- stjórn, ásamt dreifingu áhættu og aðgangi að nýjum mörkuðum. „Samdráttur hefur orðið í plöntuframleiðslu í ár. Kaupin á gróðrarstöðinni eru í raun við- brögð við erfiðri samkeppnis- stöðu Barra gagnvart Skógrækt ríkisins. Við vorum t.d. með samning við Skógræktina um framleiðslu plantna til Akra- skóga. Þessum samningi var rift og verkið boðið út að mestum hluta og Skógræktin náði því verki frá okkur“, sagði Jón í samtali við blaðið. „Við erum m.a. að svara þessari þróun með kaupunum“. Fjarðabyggð í stað Austurríkis? Örnefnanefnd hefur nú gefið út umsagnir um þær hug- myndir sem fram hafa komið um nafn á hið sameinaða sveitarfélag Eskiíjarðar, Norð- fjarðar og Reyðarfjarðar. Af þeim sjö nöfnuni sem send voru til nefndarinnar gat hún aðeins fallist á eitt þeirra, en það var nafnið „Fjarða- byggð“. Nöfnin sem mest hafa verið í umræðunni, „Austurríki" og „Firðir", samrýmast að mati nefndar- innar ekki íslenskum mál- venjum, þar sem eftirliður nafnsins „Austurríki“ eigi sér enga hefð á Islandi í heitum sveitarfélaga og einnig sé um að ræða nafn á þjóð í Mið- Evrópu. „Firðir" er hinsvegar of víðtækt og fleiri sveitar- félög en þau ofannefndu séu nefnd því nafni í daglegu tali. Þess má til gamans geta að nafnið Fjarðabyggð varð í fjórða sæti í skoðanakönnun sem gerð var samhliða sveitar- stjórnarkosningum í vor. Félagsmálaráðuneytið hefur þegar fengið sent bréf þar sent leitað er eftir þeirra afstöðu til málsins og hversu bindandi álit nefndarinnar sé. Svar frá ráðuneytinu hafði ekki borist þegar blaðið fór í prentun. Greinargerð Örnefna- nefndar er að finna í heild sinni á bls. 7. Hotelbygging á Reyðarfirði Nú er orðið ljóst að fram- kvæmdir við hótelbyggingu á Reyðarfirði verða boðnar út í byrjun september. Um er að ræða mikla stækkun og endur- bætur á Hótel Búðareyri. Hótel- ið, sem í dag er 5 herbergi, verð- ur stækkað upp í 20 tveggja manna herbergi með öllurn nútíma þægindum, m.a. parketi og gervihnattasjónvarpi. Það er Jónas A. Jónsson, lög- fræðingur, ásamt Inga Gunnari Jóhannssyni, tónlistarmanni frá Reykjavík, sem standa að fyrir- hugaðri hótelbygginu. í samtali við blaðið sagði Jónas að gerðar hefðu verið hag- kvæmniathuganir sem sýna að slíkur rekstur ætti fyllilega að geta staðið undir sér. Þessar athuganir hafa ekki gert ráð fyrir framkvæmdum á borð við álver þannig að slíkar framkvæmdir myndu þá vera einhverskonar bónus fyrir reksturinn. Þeir félagar munu ekki reka hótelið sjálfir, en fara væntan- lega í samstarf við rekstraraðila. Ekki er ljóst í dag hverjir þeir verða, en unnið er í því máli. Tilboð frá u * ■ Kindabjágu Létt rcykt sparnadarskinka Bayoneskinka

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.