Austurland - 27.08.1998, Side 3
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
3
Starfskraftur óskast
Óskum eftir snyrtipinna í
helgarræstingar í Egilsbúð.
Upplýsingar í (3) 477-1321 Birgir
Pizza 67 sími 755-6767 og 477-1867
& Hótei Egilsbúð sími 477-1321
Atvinna
Okkur vantar nú þegar
starfsfólk í pökkun og
snyrtingu í frystlhúsi
félagsins.
Þeir sem óska eftir starfi nú eða ó
síldarvertíð eru beðnir að hafa
samband í síma 470 7092 eða 895
9902.
Athugið að nauðsynlegt er að fó inn
starfsumsóknir nú vegna komandi
vetrar því ef ekki fœst nœgilega
margt bcejarfólk til starfa, verður
fyrirtœkið að róða aðkomu og/eða
erlent starfsfólk.
Sí/cfarvinns/an hf. Neskaupstað
Óskar!
Ég tek fótboltakveðju þína á
kassann og þruma henni til baka
í föðurhúsin. Því það er ekki
hægt annað en að svara þessu
rugli þínu í síðasta tölublaði.
Þær eru reyndar ágætar vanga-
veltur þínar um sameiningu
KVA og Þróttar en þegar þú
ferða að tala um meint metnaðar-
leysi mitt og leikmanna Þróttar,
þá hefur þú ekki hugmynd um
það sem þú ert að tala um. Það er
nokkuð ljóst að þú þekkir minn
metnað lítið. Heldur þú virkilega
að metnaður okkar Þróttara hafi
ekki verið allt annar og meiri en
að lenda í 3. sæti í riðli okkar í 3.
deild?
Mig langar að segja þér það
að markmið okkar allra sem
komu að meistaraflokki í sumar
var mjög einfalt. Við ætluðum
okkur upp um deild, til marks
um það þá hófum við undirbún-
ing okkar um mánaðamótin
október - nóvember í fyrra og
æfðum að jafnaði fimm sinnum í
viku allt þar til keppnistímabili
okkar lauk nú um miðjan ágúst.
Við fórum t.d. í þrár æfingaferð-
Ókeypis smáar
Til sölu
Welson hljómborð. Kr. 10.000.
Uppl. síma:477-1724
Barnfóstra óskast
„Amma“ óskast fyrir 2ja ára
stelpu nokkur kvöld og nætur í
mánuði. Þarf að geta hafið störf
seinnihluta september.
Uppl. ís. 477-1054
Krístín
íbúð óskast
3-4 herbergja íbúð óskast til
leigu.
Upplýsingar í símum
477 1358 og 477 1301.
Hrafnhildur
Frá Verkmenntaskóla
Austurlands
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 1. september n.k.
Afhending stundaskráa og bókalista fer fram mánudaginn 31. ágúst frá kl.
10.00-14.00 á skrifstofu skólans. Fundur með nýnemum er sama dag kl.
14.30 í stofu 1.
Athugið að stundatöflur verða aðeins afhentar þeim sem greitt hafa
tilskilin skólagjöld!
Heimavistin verður opnuð mánudaginn 31. ágúst kl. 10.00 f.h. Fundur með
heimavistarbúum og aðstandendum þeirra verður sama dag kl. 16.00 í sal
mötuneytisins.
Frestur til að skrá sig utanskóla rennur út 10. september.
Verið velkomin í skólann!
Skólameistari
ir suður fyrir mót og spiluðum
níu æfingaleiki á undirbúnings-
tímabilinu. Menn halda slíkt
álag ekki út nema þeir hafi mik-
inn persónulegan metnað til að
bæta og standa sig fyrir félag
sitt. Því miður ganga hlutirnir
ekki alltaf upp en ástæðurnar eru
allt aðrar en metnaðarleysi mitt
sem þjálfara eða leikmanna
minna.
Þú nefnir réttilega að einn
leikmaður Þróttar, þ.e. Grétar
Stephensen hafi verið að hugsa
um að skipta yfir í KVA fyrir
mót. Að sjálfsögðu lögðum við
hart á að halda Grétari enda góð-
ur leikmaður þar á ferð með
mikinn metnað fyrir sjálfan sig
og félag sitt. Ég efast heldur ekki
um að mörg hinna stærri félaga
fyrir sunnan, en þú kallar þau
kannski „alvöru félög", eru farin
að horfa hýrurn augum til
margra leikmanna ykkar í KVA
þar sem þeir hafa verið að spila
virkilega vel í sumar. Þá ætla ég
að vona félags ykkar vegna að
þeir fari ekki, heldur hafi metnað
til þess að spila og standa sig hjá
sínu félagi því KVA er þeirra
félag er það ekki? Eru ekki bara
heimamenn í iiðinu?
Einnig skalt þú fara varlega
þegar þú ákveður að ilokka lið
sem einhverskonar „alvöru lið“,
hvað kallar þú þá hin liðin?
Einhverskonar „djók lið“? Hvað
veist þú um það hvað menn eru
að leggja á sig í hinum liðunum
sem þú flokkar ekki sem „alvöru
lið“. Svona skrif flokka ég undir
hroka.
Nei, Óskar minn, eins og þú
sérð þá tek ég ekki við þessari
fótboltakveðju þinni og næst
þegar þú festir orð á blað skalt
þú hafa eitthvað fyrir þér í
skrifum.
Hlynitr Eiríksson,
Þjálfari meistaraflokks Þróttar
Undirbúningur sildar-
vertíðar hatinn
Starfsmenn Síldarvinnslunnar lif. í Neskaupstað eru þessa
dagaita í óða önn að undirbúa komandi síldarvertíð. Þegar
Ijósmyndari Austurlands átti leið hjá á dögunum voru þeir í óða
önn að þvo síldartunnur. Vonandi verðurþörffyrir sem flestar af
þessum tunnum á komandi vertíð. Ljósm. as
*W STRAUMRAS
Furuvöllum 3 óOOAkureyri Sími 461 2288 Fax 462 7187