Austurland - 27.08.1998, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
Af vettvangi bæjarmála
Bœjarstjórn sameinaðs sveitarjelags Eskifjarðar, Neskaup-
staðar og Reyðarjjarðar kom saman til fyrsta fundar að af-
loknu sumarleyfi þattn 20. ágúst sl. Hér skal getið um nokkuð
afþví sem tekið var fyrir áfundinum:
- Bæjarstjórnin samþykkti að skipa þriggja manna starfshóp
til að fjaila um almenningssamgöngur í hinu nýja sveitarfélagi.
- Samþykkt var að íéla bæjarráði og bæjarstjóra að sjá til þess
að mótaðar verði tillögur urn framtíðarskipan stjómkerfis og
stofnana hins nýja sveitarfélags. Tillögurnar skulti gerðar í
santvinnu við faglegar nefndir sveitarfélagsins.
- Upplýst var að hið nýja sveitarfélag fái rétt til veiða á 28
hreindýrum. Samþykkt var að hreindýraráð fái veiðiheimildirnar
til sölu á almennum markaði.
- Fjallað var um hugsanleg landakaup fyrir hesthúsabyggð í
landi Skalateigs I í Norðfirði.
- Samþykkt var að hefja framkvæmdir við vatnsöflun á
Eskifirði samkvæmt fyrirliggjandi tillögum en vatnsþörf þar mun
aukast verulega nteð tilkomu nýrrar rækjuverksmiðju.
- Bæjarstjórn samþykkti tillögu um kjör bæjarfulltrúa og ríkti
einhugur urn tillöguna.
- Bæjarstjóra var falið að ræða við Karl S. Karlsson um rekstur
á félagsheimilinu Félagslundi á Reyðarfirði, en Karl var eini um-
sækjandinn urn að fá félagsheimilið leigt til rekstrar.
- Upplýst var að Fjárfestingastofan-orkusvið hefur samþykkt
að hið nýja sveitarfélag fái fulla og sjálfstæða aðild að verkefn-
isstjórn um virkjun og stóriðju á Austurlandi.
- Viðtalstímar bæjarfulltrúa hófust í byrjun ágústmánaðar og
eru viðtalstímarnir vikulega til skiptis á þéttbýlisstöðunum. Þessi
nýjung þykir hafa mælst vel fyrir hjá íbúunum.
- Upplýst var um tilboð í viðbyggingu grunnskólans á
Eskifirði og stöðu framkvæmda við Nesskóla í Neskaupstað.
- Fram kom að grunnskólarnir í hinu nýja sveitarfélagi hafi
fengið 300 þúsund kr. styrk til þróunarverkefnis um samræmt
ntat grunnskóla. Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið styrki
verkefnið um sömu upphæð.
- Bæjarstjóm samþykkti fyrir sitt leyti að hafin yrði vinna að
friðlýsingu Gerpissvæðisins. Itrekað var að lriðlýsingin hafi ekki
áhrif á hefðbundnar nytjar landsins.
- Frarn kom að félagsmálanefnd hefur skipað starfshóp til að
vinna drög að jafnréttisáætlun fyrir nýtt sveitarfélag.
- Fjallað var um drög að lögreglusamþykkt l'yrir sveitarfélagið
og samþykktur stofnsamningur fyrir Heilbrígðiseftirlit Aust-
urlands.
- Á fundinum kom lram að allar fagnefndir sveitarfélagins
hafa hafið störf og ganga störfin vel. Menningarnefnd hefur m.a.
fjallað um safnamál og hafnarnefnd um stjórnunarfyrirkomulag
hafnanna. f>á hefur umhverfismálanefnd m.a. fjallað um
umhverfisviðurkenningar.
Starfsmann vantar
í íþróttahúsið í Neskaupstað.
Um er að ræða 50% starf
fyrir hádegi.
Upplýsingar í síma 477 1181
Landsvirkjun fundar með Austfirðingum
Síðastliðinn föstudag komu stjóm-
armenn Landsvirkjunar, ásamt
nokkrum af öðrum stjómendum
stofnunarinnar, hingað austur til
að skoða aðstæður á fyrirhuguðu
virkjanasvæði. Þeir notuðu dag-
inn til að skoða svæðið og kynna
sér staðhætti. Á laugardeginum
hittu þeir síðan sveitarstjómar-
menn af svæðinu og einnig full-
trúa náttúruverndarsamtaka á
svæðinu.
Að sögn Þorsteins Hilmars-
sonar, upplýsingafulltrúa Lands-
virkjunar, voru fundirnir að
mörgu leyti gagnlegir, t.d. fengu
stjórnarmenn ágætist tilfinningu
fyrir því sem er efst í huga þeirra
aðila sem talað var við.
„Hvað föstudaginn varðar var
mjög gagnlegt að skoða aðstæð-
ur á fyrirhuguðu virkjanasvæði.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
skipti sem slík ferð er farin af
stjórnendum Landsvirkjunar en
þetta var gagnlegri ferð en oft
áður, því við vorum heppnir með
veður og komust því á staði sem
við höfum ekki séð áður“ sagði
Borgey selur
eignarhlut í
Óslandi
Brgey hf. hefur selt 80% eignar-
hlut sinn í Óslandi ehf., ftski-
mjölsverksmiðju. Kaupendur
eru nokkrir hluthafar í Borgey
hf., m.a. Olíufélagið hf. og Vá-
tryggingafélagi Islands hf. Kaup-
samningurinn er gerður með
fyrirvara um samþykki stjórna
félagsins.
Með sölunni er jafnframt
búið að tryggja fjármögnun
nýrrar fiskimjölsverksmiðju í
Hornafirði sem nýir eigendur
Óslands ehf. skuldbinda sig til
að reisa og taka í notkun í maí á
næsta ári. Nýja verksmiðjan
verður útbúin tækjum til fram-
leiðslu á hágæðamjöli. Hún
kemur í stað núverandi verk-
smiðju, sem ekki uppfyllir þær
kröfur sem gerðar eru til meng-
unarvama.
Samhliða kaupsamningnum
var gerður viðskiptasamningur
milli Óslands efh., Borgeyjar hf.
og Skinneyjar hf., sem ætlað er
að styrkja samkeppnishæfni þess-
ara fyrirtækja um uppsjávarfisk,
hvort sem er til manneldis-
vinnslu eða bræðslu. Vinnslu-
geta þessara fyrirtækja er áætluð
að verði um 1250 tonn af
hráefni á sólarhring, eftir að
uppbyggingu fiskimjölsverk-
smiðjunnar er lokið. Þar af um
500 tonn til manneldisvinnslu.
Með viðskiptasamningnum er
tryggt að Borgey nýtur sama
forgangs að hráefni, þjónustu og
viðskiptakjara af hálfu bræðsl-
unnar og verið hefur.
Þorsteinn í samtali við blaðið.
Á laugardeginum var, eins og
áður sagði, fundur með heima-
mönnum.
„Það sem gerðist á fundinum
var að við fengum margvíslegar
ábendingar og spumingar. Þetta
var mjög gagnlegt og fróðlegt,
ekki bara fyrir heimamenn held-
ur einnig fyrir okkur. Það kom
til dæmis fram að mikil áhersla
er lögð á að kynning á fyrirhug-
uðum framkvæmdum verði auk-
in og því erum við sammála. Við
munum á næstunni gera töluvert
átak í því efni, við emm t.d. að
vinna á fullu við alla þá undir-
búningsvinnu sem þarf til að
leggja fram skýrslu um mat á
umhverfisáhrifum og þessi skýrsla
verður kynnt í nánustu framtíð".
Stjórn Landsvirkjunar hefur
ekki tekið ákvörðum um hvort
það verði gert með lögformlegri
umhverfismati.
„Öll okkar vinna uppfyllir
allar þær kröfur sem gerðar eru í
slíku mati og við erum að gera
það sama og gert væri í lögform-
legu umhverfismati", sagði Þor-
steinn. „Meginpunkturinn er að
fólk hefur áhuga á því að þetta
mat fari fram með lögformleg-
um hætti og bæði Landsvirkjun
og stjómvöld eru að skoða það
mál. Við í sjálfu sér væntum
þess að þessir hlutir skýrist með
haustinu".
Á fundinum kom glögglega
fram að skoðanir gesta voru
mjög skiptar, menn voru bæði
hlynntir og gagnrýnir á þessar
framkvæmdir. Vegna þessara mis-
munandi skoðana á málunum er
þeim mun mikilvægara að fólk
hafi réttar upplýsingar og það er
ein ástæðan fyrir því að Lands-
virkjun ætlar að auka alla upp-
lýsingagjöf.
En hvers vegna var fundurinn
haldinn?
„Vegna þess að við erum
búnir að taka ákvörðun um að
gera skýrslu um mat á áhrifum
og stjómin mun á næstunni fjalla
um í hvaða farveg Fljótsdals-
virkjun verður sett. Því var farið
á vettvang og óskað eftir fundi
með forsvarsmönnum hinna
ýmsu hópa til að geta skilið og
heyrt hin ýmsu sjónarmið."
Nokkur gagnrýni komfram á
að fundurinn var lokaður. Hvers
vegna var það ?
„Við vorum ekki síst í heim-
sókn hér fyrir austan til að
hlusta; vildum ekki predika eða
koma með boðskap. Einnig var
ástæðan sú að ef menn eru að
leita að kynningu er ekki heppi-
legasti mátinn að halda fundi
með stjóm fyrirtækisins, heldur
eru aðrir aðilar betur í stakk
búnir til að upplýsa austfirðinga
um þessi mál“.
Útsalan heldur áfram
Viltu eignast skó
á hlægilegu veréi
" eáð b !
á4-5ookr
Súnbúðin
Hafnarbraut 6, Neskaupstað
Sími 477 1133
oþökkum innileg auðsýnda samúð og
blýbug oið andlál og útför
^ðalsteíns ^dialldórssonar
b/ðuður cBjarnadóttir
börn, lengdaböm,
barnabörn og barnabarnaböm