Austurland


Austurland - 27.08.1998, Page 6

Austurland - 27.08.1998, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 Af vettvangi bæjarmála Bœjarstjórn sameinaðs sveitarjelags Eskifjarðar, Neskaup- staðar og Reyðarjjarðar kom saman til fyrsta fundar að af- loknu sumarleyfi þattn 20. ágúst sl. Hér skal getið um nokkuð afþví sem tekið var fyrir áfundinum: - Bæjarstjórnin samþykkti að skipa þriggja manna starfshóp til að fjaila um almenningssamgöngur í hinu nýja sveitarfélagi. - Samþykkt var að íéla bæjarráði og bæjarstjóra að sjá til þess að mótaðar verði tillögur urn framtíðarskipan stjómkerfis og stofnana hins nýja sveitarfélags. Tillögurnar skulti gerðar í santvinnu við faglegar nefndir sveitarfélagsins. - Upplýst var að hið nýja sveitarfélag fái rétt til veiða á 28 hreindýrum. Samþykkt var að hreindýraráð fái veiðiheimildirnar til sölu á almennum markaði. - Fjallað var um hugsanleg landakaup fyrir hesthúsabyggð í landi Skalateigs I í Norðfirði. - Samþykkt var að hefja framkvæmdir við vatnsöflun á Eskifirði samkvæmt fyrirliggjandi tillögum en vatnsþörf þar mun aukast verulega nteð tilkomu nýrrar rækjuverksmiðju. - Bæjarstjórn samþykkti tillögu um kjör bæjarfulltrúa og ríkti einhugur urn tillöguna. - Bæjarstjóra var falið að ræða við Karl S. Karlsson um rekstur á félagsheimilinu Félagslundi á Reyðarfirði, en Karl var eini um- sækjandinn urn að fá félagsheimilið leigt til rekstrar. - Upplýst var að Fjárfestingastofan-orkusvið hefur samþykkt að hið nýja sveitarfélag fái fulla og sjálfstæða aðild að verkefn- isstjórn um virkjun og stóriðju á Austurlandi. - Viðtalstímar bæjarfulltrúa hófust í byrjun ágústmánaðar og eru viðtalstímarnir vikulega til skiptis á þéttbýlisstöðunum. Þessi nýjung þykir hafa mælst vel fyrir hjá íbúunum. - Upplýst var um tilboð í viðbyggingu grunnskólans á Eskifirði og stöðu framkvæmda við Nesskóla í Neskaupstað. - Fram kom að grunnskólarnir í hinu nýja sveitarfélagi hafi fengið 300 þúsund kr. styrk til þróunarverkefnis um samræmt ntat grunnskóla. Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið styrki verkefnið um sömu upphæð. - Bæjarstjóm samþykkti fyrir sitt leyti að hafin yrði vinna að friðlýsingu Gerpissvæðisins. Itrekað var að lriðlýsingin hafi ekki áhrif á hefðbundnar nytjar landsins. - Frarn kom að félagsmálanefnd hefur skipað starfshóp til að vinna drög að jafnréttisáætlun fyrir nýtt sveitarfélag. - Fjallað var um drög að lögreglusamþykkt l'yrir sveitarfélagið og samþykktur stofnsamningur fyrir Heilbrígðiseftirlit Aust- urlands. - Á fundinum kom lram að allar fagnefndir sveitarfélagins hafa hafið störf og ganga störfin vel. Menningarnefnd hefur m.a. fjallað um safnamál og hafnarnefnd um stjórnunarfyrirkomulag hafnanna. f>á hefur umhverfismálanefnd m.a. fjallað um umhverfisviðurkenningar. Starfsmann vantar í íþróttahúsið í Neskaupstað. Um er að ræða 50% starf fyrir hádegi. Upplýsingar í síma 477 1181 Landsvirkjun fundar með Austfirðingum Síðastliðinn föstudag komu stjóm- armenn Landsvirkjunar, ásamt nokkrum af öðrum stjómendum stofnunarinnar, hingað austur til að skoða aðstæður á fyrirhuguðu virkjanasvæði. Þeir notuðu dag- inn til að skoða svæðið og kynna sér staðhætti. Á laugardeginum hittu þeir síðan sveitarstjómar- menn af svæðinu og einnig full- trúa náttúruverndarsamtaka á svæðinu. Að sögn Þorsteins Hilmars- sonar, upplýsingafulltrúa Lands- virkjunar, voru fundirnir að mörgu leyti gagnlegir, t.d. fengu stjórnarmenn ágætist tilfinningu fyrir því sem er efst í huga þeirra aðila sem talað var við. „Hvað föstudaginn varðar var mjög gagnlegt að skoða aðstæð- ur á fyrirhuguðu virkjanasvæði. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem slík ferð er farin af stjórnendum Landsvirkjunar en þetta var gagnlegri ferð en oft áður, því við vorum heppnir með veður og komust því á staði sem við höfum ekki séð áður“ sagði Borgey selur eignarhlut í Óslandi Brgey hf. hefur selt 80% eignar- hlut sinn í Óslandi ehf., ftski- mjölsverksmiðju. Kaupendur eru nokkrir hluthafar í Borgey hf., m.a. Olíufélagið hf. og Vá- tryggingafélagi Islands hf. Kaup- samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki stjórna félagsins. Með sölunni er jafnframt búið að tryggja fjármögnun nýrrar fiskimjölsverksmiðju í Hornafirði sem nýir eigendur Óslands ehf. skuldbinda sig til að reisa og taka í notkun í maí á næsta ári. Nýja verksmiðjan verður útbúin tækjum til fram- leiðslu á hágæðamjöli. Hún kemur í stað núverandi verk- smiðju, sem ekki uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til meng- unarvama. Samhliða kaupsamningnum var gerður viðskiptasamningur milli Óslands efh., Borgeyjar hf. og Skinneyjar hf., sem ætlað er að styrkja samkeppnishæfni þess- ara fyrirtækja um uppsjávarfisk, hvort sem er til manneldis- vinnslu eða bræðslu. Vinnslu- geta þessara fyrirtækja er áætluð að verði um 1250 tonn af hráefni á sólarhring, eftir að uppbyggingu fiskimjölsverk- smiðjunnar er lokið. Þar af um 500 tonn til manneldisvinnslu. Með viðskiptasamningnum er tryggt að Borgey nýtur sama forgangs að hráefni, þjónustu og viðskiptakjara af hálfu bræðsl- unnar og verið hefur. Þorsteinn í samtali við blaðið. Á laugardeginum var, eins og áður sagði, fundur með heima- mönnum. „Það sem gerðist á fundinum var að við fengum margvíslegar ábendingar og spumingar. Þetta var mjög gagnlegt og fróðlegt, ekki bara fyrir heimamenn held- ur einnig fyrir okkur. Það kom til dæmis fram að mikil áhersla er lögð á að kynning á fyrirhug- uðum framkvæmdum verði auk- in og því erum við sammála. Við munum á næstunni gera töluvert átak í því efni, við emm t.d. að vinna á fullu við alla þá undir- búningsvinnu sem þarf til að leggja fram skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og þessi skýrsla verður kynnt í nánustu framtíð". Stjórn Landsvirkjunar hefur ekki tekið ákvörðum um hvort það verði gert með lögformlegri umhverfismati. „Öll okkar vinna uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru í slíku mati og við erum að gera það sama og gert væri í lögform- legu umhverfismati", sagði Þor- steinn. „Meginpunkturinn er að fólk hefur áhuga á því að þetta mat fari fram með lögformleg- um hætti og bæði Landsvirkjun og stjómvöld eru að skoða það mál. Við í sjálfu sér væntum þess að þessir hlutir skýrist með haustinu". Á fundinum kom glögglega fram að skoðanir gesta voru mjög skiptar, menn voru bæði hlynntir og gagnrýnir á þessar framkvæmdir. Vegna þessara mis- munandi skoðana á málunum er þeim mun mikilvægara að fólk hafi réttar upplýsingar og það er ein ástæðan fyrir því að Lands- virkjun ætlar að auka alla upp- lýsingagjöf. En hvers vegna var fundurinn haldinn? „Vegna þess að við erum búnir að taka ákvörðun um að gera skýrslu um mat á áhrifum og stjómin mun á næstunni fjalla um í hvaða farveg Fljótsdals- virkjun verður sett. Því var farið á vettvang og óskað eftir fundi með forsvarsmönnum hinna ýmsu hópa til að geta skilið og heyrt hin ýmsu sjónarmið." Nokkur gagnrýni komfram á að fundurinn var lokaður. Hvers vegna var það ? „Við vorum ekki síst í heim- sókn hér fyrir austan til að hlusta; vildum ekki predika eða koma með boðskap. Einnig var ástæðan sú að ef menn eru að leita að kynningu er ekki heppi- legasti mátinn að halda fundi með stjóm fyrirtækisins, heldur eru aðrir aðilar betur í stakk búnir til að upplýsa austfirðinga um þessi mál“. Útsalan heldur áfram Viltu eignast skó á hlægilegu veréi " eáð b ! á4-5ookr Súnbúðin Hafnarbraut 6, Neskaupstað Sími 477 1133 oþökkum innileg auðsýnda samúð og blýbug oið andlál og útför ^ðalsteíns ^dialldórssonar b/ðuður cBjarnadóttir börn, lengdaböm, barnabörn og barnabarnaböm

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.