Austurland


Austurland - 27.08.1998, Qupperneq 7

Austurland - 27.08.1998, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 7 Grelnargerð Úrnefnanefndar Örnefnanefnd hefur tekið af- stöðu til þeirra nafna á nýtt sam- einað sveitarfélag Eskifjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarð- ar, sem kosið var um í vor. Hér á eftir fer umsögn nefndarinnar en fyrst eru meginsjónvarmið henn- ar kynnt. Meginsjónarmið 1. Athuga ber að hér er um að ræða opinbert stjómsýsluheiti en nöfn landsvæða eða byggðar- laga, sem fyrir eru innan sveitar- félags eða í nágrenni þess, ættu hvorki að þurfa að breytast né leggjast af með tilkomu nýs stjómsýsluheitis. 2. Forðast skyldi að ný stjórnsýsluheiti geti útilokað, þrengt að eða raskað á annan hátt merkingu eða notkun rótgróinna heita sem tengjast svæðum eða byggðarlögum innan sveitarfélags, nágranna- sveitarfélags eða héraðs. 3. „Nafn sveitarfélags skal samrýmast íslenskri málfræði og málvenju," segir í 4. gr. sveitar- stjórnarlaga, nr. 45/1998. Stjóm- sýsluheiti eru að jafnaði mynduð með hliðsjón af einhvers konar kerfi, ekki síst þannig að eftirlið- ur sambærilegra heita sé ávallt eða oftast hinn sami og beri með sér um hvers konar stjómsýslu- einingu er að ræða. Slíkt kerfi er til hagræðis fyrir málnotendur og þeir átta sig betur á að um sé að ræða stjómsýsluheiti. Dæmi: Nöfnin Hraungerði og Gaulverjabær mynda með efdrliðnum -hreppur stjómsýslu- heitin Hraungerðishreppur og Gaulverjabæjarhreppur; nöfnin Akureyri og Hafnarfjörður mynda með eftirliðnum -bær stjórnsýsluheitið Akureyrarbær og Hafnarfjarðarbær o.s.frv. Örnafnanefnd mælir með þessari aðferð enda hefur hún gefist vel í nöfnum stjómsýslu- eininga hér á landi og erlendis (sbr. t.d. efdrliðinn kommune í Danmörku). A. Fyrri liður heitis á sveitarfélagi: Fyrri liður sé hefðbundið nafn eða nýtt nafn sem sérkennir svæðið eða hluta þess. B. Síðari liður heitis á sveitarfélagi: B.l. Eftirliðurinn -hreppur sé hafður um öll dreifbýlissveitar- félög (enda þótt innan þeirra séu lítil þorp eða kauptún) en hann á þó einkum við þar sem megin- hluti byggðar í sveitarfélagi er dreifbýli. B.2. Eftirliðurinn -byggð sé hafður þar sem svo háttar til að í sveitarfélagi er í senn allnokkuð dreifbýli og eitt eða fleiri stór þéttbýlissvæði. B.3. Efdrliðurinn -bær sé hafður um sveitarfélög þar sem byggðin er að mestu eitt samfellt stór þéttbýlissvæði. B.4. Eftirliðurinn -borg sé aðeins hafður um mjög stórt samfellt þéttbýlissvæði (t.a.m. á borð við hið samfellda þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu). Heitið Austurríki Eftirliðurinn -ríki á enga hefð á íslandi í heitum sveitarfélaga. Austurríki er íslenskt nafn á erlendu rfki. A grandvelli þessa sem og þeirra meginsjónarmiða um heiti sveitarfélaga, sem áður em rakin, mælir ömefnanefnd gegn heitinu Austurríki um sam- einað sveitarfélag Eskifjarðar- kaupstaðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps. Heitið Firðir Heitið Firðir hefur rótgróna merkingu á Austfjörðum sem er dálítið víðari en hið nýja sveitar- félag tekur til. Orðasambönd á borð við austur á firði og austur á fjörðum em íslensk málvenja en þar er vísað til fleiri fjarða en eru í hinu nýja sveitarfélagi. Hætt er við ruglingi og óhagræði fyrir málnotendur verði hið nýja sveitarfélag nefnt Firðir. Á grundvelli þessa og í samræmi við önnur meginsjónvarmið um heiti sveitarfélaga, sem áður eru rakin, getur ömefnanefnd ekki mælt með heitinu Firðir um sameinað sveitarfélag Eskifjarð- arkaupstaðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps. Heitið Austurbyggð Fyrri liður heitisins Austur- byggð er ekki heppilegur án frekari afmörkunar. Örnefna- nefnd getur því ekki mælt með heitinu Austurbyggð um samein- að sveitarfélag Eskifjarðarkaup- staðar, Neskaupstaðar og Reyð- arfjarðarhrepps. Heitið Fjarðabyggð Enda þótt nafnið Firðir hafi rótgróna merkinu á Austfjörðum sem er dálítið víðari en hið nýja sveitarfélag tekur til má eigi að síður að mati nefndarinnar una við það sem fyrri lið með eftirliðnum -byggð. Örnefna- nefnd getur því mælt með heit- inu Fjarðabyggð um sameinað sveitarfélag Eskifjarðarkaup- staðar, Neskaupstaðar og Rey ðarfj arðarhrepps. Heitin Fjarðabær, Austurbær og Fjarðaborg Á grundvelli þeirra megin- sjónarmiða um heiti sveitarfél- aga, sem áður em rakin, getur örnefnanefnd ekki mælt með neinu þessara heita: Fjarðabær, Austurbær, Fjarðaborg um sam- einað sveitarfélag Eskifjarðar- kaupstaðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps. Um útivistartíma barna og unglinga Á fundi félagsmálanefndar sameinaðs sveitarfélags þriðjudaginn 11. ágúst var fjallað sérstaklega um þær útivistarreglur sem gilt hafa í sveitarfélögunum þremur fyrir sameiningu. Á Eskifirði og Reyðarfirði hafa útivistarákvæði laga gilt en í Neskaupstað hafa gilt aðrar reglur sem staðfestar hafa verið af félagsmálaráðuneyti. Nefndin var sammála um að gera tillögu um eftirfarandi reglur og var félagsmálastjómm falið að bera þær undir sýslumenn, skólastjóra gmnnskóla og forstöðumenn félagsmiðstöðva: Sunnudaga til fimmtudaga Föstudaga og laugardaga vetur sumar vetur sumar 6 ára (1. bekkur) til kl. 20.00 til kl. 22.00 til kl. 20.00 til kl. 22.00 7 ára (2. bekkur) til kl. 20.00 til kl. 22.00 til kl. 20.00 til kl. 22.00 8 ára (3. bekkur) til kl. 20.00 til kl. 22.00 til kl. 20.00 til kl. 22.00 9 ára (4. bekkur) til kl. 20.00 til kl. 22.00 til kl. 20.00 til kl. 22.00 10 ára (5. bekkur) til kl. 20.00 til kl. 22.00 tilkl. 21.00 til kl. 22.00 11 ára (6. bekkur) til kl. 21.00 til kl. 23.00 til kl. 22.00 til kl. 23.00 12 ára (7. bekkur) til kl. 21.00 til kl. 23.00 til kl. 22.00 til kl. 23.00 13 ára (8. bekkur) til kl. 23.00 til kl. 24.00 til kl. 24.00 til kl. 24.00 14. ára (9. bekkur) til kl. 23.00 til kl. 24.00 tilkl. 01.00 til kl. 01.00 15 ára (10. bekkur) dl kl. 23.00 dl kl. 24.00 til kl. 01.00 til kl. 0100 Vetrartími samkvæmt ofangreindu er frá 1. september til og með 30. aprfl en sumartími frá 1. maí til og með 31. ágúst. tdnnílegarþakkir illykkar allra sem auðsýndu okkur samúd og blýhug oid andlái og úiför eiginmanns míns, föður. lengdaföður, afa og langafa Sinars Q. Quðmundssonar cUnnur ffóhannsdóiiir Öoeinbjörg Sinarsdóllír Öoeinn Q. Sinarsson Öóloeig ö. Sinarsdói/ír Qís/iöoan Sinarsson ^llilberg Sínarsson ffíe/s Sínarsson afa- Qlilmar Quðbjömsson öiefanía öieindórsdóUir fjennis cll)ilson fhryndís 'fráinsdóitir SRmdís öigurðardóliir Oddný ö. önorradóiiir og langafaböm Oryggisbelti -af því að framrúður bragðast illa Sumir björgunarmenn hafa búið til orðatiltæki yfir það sem gerist þegar fólk notar ekki öryggisbelti og lendir í árekstri. Þeir tala um að éta framrúðuna. Það hljómar illa en það lítur enn ver út. Fólk sem ekki notar öryggisbelti í árekstri lendir oftast með andlitið í framrúðunni. Það er ófagurt, en það er mjög sárt... ef þú lifir nógu lengi til þess að finna fyrir því. Þegar þú ferðast í bíl, þá fer líkami þinn með sama hraða og bíllinn. Þegar þú bremsar þá finnur þú að þú þarft að spyma við fótum og halda þér með höndum. Þetta gerist vegna þess að þegar bremsurnar hægja á bflnum þá heldur líkaminn áfrarn á sama hraða og áður en bremsað var. Það sama gerist þegar bfllinn lendir á einhverri fyrirstöðu. Bfllinn stoppar skyndilega, en þú heldur áfrarn á sama hraða. Vegna þess að bíllinn stoppar skyndilega í stað þess að hægja á smám saman, er ekki nokkur leið að þú getir haldið þér með höndum og fótum. Þó að þú getir borið fyrir þig hendurnar, þá er eins víst að að þeir kraftar sem verka á þig brjóti á þér hendumar eins og fúaspýtur. Ef þú ert í öryggisbeltum þá stoppar þú með bílnum, ef ekki þá lendir þú á mælaborðinu og framrúðunni -með andlitið á undan- á sama hraða og bíllinn var áður en áreksturinn varð. Ef þú ert ekki í beltum þegar bfllinn lendir í árekstri, þá eru áhrifin á líkama þinn í meginatriðum þau sömu og ef þú værir úti að ganga og bfllinn lenti á þér. Ef bíllinn sem þú ert í er á 50 km hraða þegar hann lendir í árekstri og þú ert ekki í öryggisbeltum, þá lendir þú á mælaborðinu og framrúðunni á 50 km hraða. Imyndaðu þér að þú værir úti að ganga og bíll kæmi á 50 km hraða og keyrði beint á þig. Hugsaðu þér þau meiðsli sem þú fengir og örkuml ef þú þá lifir þetta af á annað borð. Er það ekki næg ástæða til þess að nota öryggisbeltin? En það eru öryggisloftpúðar í bflnum mínuni, eru þeir ekki betri en beltin? Loftpúðamir em hannaðir til þess að vera til viðbótar við öryggisbeltin, en ekki til þess að koma í stað þeirra. Þeim er ætlað að hjálpa beltunum til við að vernda þig, en koma alls ekki í stað öryggisbelta. Loftpúðar eiga að virka vel þegar þú situr uppréttur/upprétt í sætinu eins og þú ert þegar þú ert í öryggisbeltinu. Ef þú ert ekki í öryggisbelti í árekstri þá kastast þú áfram í áttina að mælaborðinu og framrúðunni. Ef bfllinn er búinn loftpúðum, þá lendir þú í árekstri við loftpúða sem er að blása út. Loftpúðinn þarf að blása mjög hratt út til þess að geta varið þig. Hraðinn á púða sem er að byrja að blása út, getur nálgast 300 km hraða, og við emm ekki að tala um mjúkan dúnkodda, heldur belg úr sterku efni sem getur varið þig ef hann er rétt notaður, þ.e. af fólki sem er með öryggisbeltin spennt.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.