Austurland


Austurland - 08.10.1998, Qupperneq 1

Austurland - 08.10.1998, Qupperneq 1
Melabúðin ódýrust á Austurlandi Melabúðin í Neskaupstað kom best úl úr verðkönnun sem Alþýðusamband Austurlands lét gera í samvinnu við Ríkis- útvarpið á Austurlandi. Mela- búðin var tæplega 21% undir meðalverði í könnuninni, en þar á eftir komu Brattahlíð á Seyðisfirði sem var rúmlega 13% undir meðalverði og K- Bónus í Neskaupstað sem var rúmlega 11% undir nteðal- verði. Taka ber frant að könn- unin náði aðeins til 13 vöru- tegunda og ekki var tekið til- lit til gæða í könnuninni og því gefur hún ekki fullkomna mynd af verðlagi. Kynningarfundur um stóriðjumál Kynningaifundur verður hald- inn 11. október 1998 um virkj- anir, stóriðju og atvinnumál á Austurlandi. Fundurinn, sem hefst kl. 13 verður haldinn í Valaskjálf Egilsstöðum en hann er í boði Alþýðusam- bands Austurlands. Yfirskrift t'undarins: Virkjanir og stór- iðjuáform og áhrif. Framsögur á fundinum eru á vegum Landsvirkjunar, verkefnisstjórnar STAR og AfAust. Vinnuslys á Fáskrúðsfírði Maður slasaðist á höfði er hann féll tæpa þrjá metra nið- ur af spenni á aðveitustöð sem er í byggingu á Fáskrúðsfirði. Slysið átti sér stað um ellefuleytið á mánudaginn og var maðurinn í kjölfarið fluttur á sjúkrahúsið í Nes- kaupstað. Að sögn lögreglunnar á Fáskrúðsfirði var ástæða slyssins í raun bara óheppni. Það var engin bilun í búnaði eða slíkt sem olli slysinu. Maðurinn einfaldlega datt. Dræm síldveiði Knattspyrmideild Þróttar hélt lokahóf sitt í íþróttahiísiiiu í Neskaupstað á laugardag. Lokaliójið var óvenjulegt að því leyti að allir tóku þátt, jafnt börn, foreldrar og leikmenn meistaraflokks. Farið var í ýmsa leiki og m.a. var haldið knattspyrnumót þar sem leikið var í blönduðum liðum allra aldurshópa. Einnig voru veitingar á borðstólnum og var þeim að sjálfsögðu gerð góð skil. Við þetta tilefni var í fyrsta skipti valinn ,Jyrirmyndarþróttarinn“, en verðlaunin eru veitt í minningu Guðbjarts Magnasonar og gáfu Haraldur Jörgensen og fjöl- skylda verðlaunagripinn. Þor- bergur Ingi Jónsson var valinn fyrsti ,fyrirmyndarþróttarinn “. Halldór Hermann Jónsson var liins vegar valinn knattspyrnu- maður Þróttar. Ljósm. S.O. Síldveiði hefur verið heldur dræm síðustu daga sökunt veðurs og erfiðra aðstæðna. Þórshamar GK hefur fjórum sinnum landað síld hjá Síldar- vinnslunni í Neskaupstað síð- an veiðar hófust og hafa farm- arnir verið frá 80-100 tonn. Sá afli hefur allur verið flokkaður og það saltað af honum sem hefur verð vinnsluhæft, en annað hefur verið brætt. Há- berg GK landaði 400 tonnum af síld hjá Síldarvinnslunni á mánudag og fór það allt í bræðslu. Að sögn Freysteins Bjama- sonar, útgerðarstjóra Síldar- vinnslunnar, er útlitið í síld- veiðunum ekki gott eins og stendur og hann var ekki bjartsýnn á miklar veiðar á næstunni. Guðrún Þorkels- dóttir landaði 600 tonnum af síld á Eskifirði á mánudag, en sá afli fór allur í bræðslu. Síldarverkun hefur enn ekki hafist hjá Samherja á Eskifirði, en þar fara nú fram gagngerar endurbætur á vél- búnaði til vinnslunnar. Enn er verið að landa kolmunna og vonandi er að kolmunnaveiðar haldi áfrarn sent lengst fram á haustið, en þær hafa verið útgerðunum drjúg búbót. Myndlistarnámskeið í Þórsmörk Listasmiðjan í Þórsmörk stóð fyrir myndlistarnámskeiði um helgina, en leiðbeinandi á námskeiðinu var kennarinn og myndlistarkonan Alda Armanna Sveinsdóttir. Níu konur tóku þátt í námskeiðinu og voru þœr afar ánœgðar með hvernig til tókst. A myndinni hér að ofan er Alda Armanna og leiðbeina liinni finnsku Tiönu. Ljósm. S.O. Adolf Guðmundsson - Helgi Jensson (frá l.nóv) Hilmar Gunnlaugsson - Jónas A Þ Jónsson Kaupvangur 2, 700 Egilsstaðir logmenn@austurland.is www.austurland.is/logmenn sími:470-2200 fax.470-2201 Títinburffi + hkllllntíM ttHúrulkr.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.