Austurland - 15.10.1998, Page 1
Engin ferja á fljótið
Siglingamálastofnun hefur
synjað hlutafélaginu Lagar-
fljótsorminum um siglinga-
leyfi vegna ferjusiglinga á
Lagarfljóti. Byrðingur við-
komandi báts, sem hefur
staðbundið siglingaleyfi á
vatni í Svíþjóð, er of þunnur
miðað við íslenskar reglu-
gerðir.
Blakvertíðin að hefjast
Nú er blakvertíðin að fara af
stað. Af blakinu er það helst að
frétta að fyrstu leikjum blak-
liðs Þróttar á þessari leiktíð
hefur verið flýtt um eina viku
og verða því á Akureyri nú
um helgina gegn KA
Fyrsta íjölliðamót yngri
flokka verður haldið í íþrótta-
húsinu í Neskaupstað um
mánaðarmótin.
Berrassaðir Norðflrð-
ingar
Þrír Norðfirðingar urðu um
síðustu heigi uppvísir að því
sérkennilega athæfi að hlaupa
kviknaktir um Austurvöll í
Reykjavík. Fyrir þá sem ekki
þekkja til stendur Þinghúsið
við Austurvöll, ásamt stytt-
unni af Jóni Sigurðssyni.
Mennirnir, sem allir eru ungir
að árurn, voru handteknir
fyrir athæfið og færðir í
fangageymslur lögreglu.
Leiðrétting
I síðasta blaði var sagt frá því
að Þorbergur Ingi Jónsson
hefði verið valinn fyrirmynd-
arþróttari á lokahófi Knatt-
spyrnudeildar félagsins og
var sagt að þetta væri í fyrsta
sinn sem sú viðurkennig væri
veitt. Hið rétta er að Þorberg-
ur Ingi er fimmti fyrirmynd-
arþróttarinn, en áður hafa hlot-
ið þennan titil Hlynur Eiríks-
son, Guðbjörg Vilhjálmsdótt-
ir, Haugur Ingvar Sigurbergs-
son og Kristján Svavarsson.
Austurland biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
Rússneskt draugaskip
Síldveiðar
enn dræmar
Síldveiðar hafa verið hálf dræm-
ar síðustu vikuna. Síldarbátar
hafa verið að fá upp í 200-300
tonn, en aðeins hluti af þeirri
síld, sem komið er með að landi,
er hæf til manneldis. Víðast er
þó verið að flokka og vinna síld
þó að tíðin verði að teljast frekar
róleg. Að sögn Freysteins Bjama-
sonar, útgerðarstjóra Síldar-
vinnslunnar, eru menn þó ekkert
famir að örvænta og telja að
væntanlega glæðist veiðarnar ef
síldin fer að gefa sig inni á
fjörðum. Utgerðarmenn hafa þó
eitthvað til að gleðjast yfir, því
kolmunni gefur sig enn og t.d.
landaði Beitir NK 1000 tonnum
á þriðjudag,.
í síðustu viku dró varðskipið Þór þetta óásjálega skip á land á
Seyðisjirði. Skipið er talið vera rússneskt að uppruna og er það
talið liafa verið notað við að leggja njósnakapla og dufl í
norðurhöfum. Ekki er vitað hversu skipið er gamalt, enþað erallt
smíðað úr áli, alveg niður í bolta og skrúfur, en það er sennilega
til að forðast seguldufl og segulsprengjur. Því má segja að um
gamlan draug úr kalda stríðinu sé að rœða. Ljósm. S.O.
Rjúpnaveiðitímabilið
hefst í dag
Ljóst er að margur veiðimaðurinn er farinn að hugsa sér gott til
glóðarinnar, en samkvæmt lögum er fyrsti dagur rjúpnaveiði-
tímabilsins í dag. Veiðimenn hafa verið í óða önn að undirbúa sig
undanfarna daga, og ef allir veiðimenn eru jafn vígalegir og Jón
Ingi Sigurbjörnsson, kennari á Egilsstöðum, sem sést á myndinni
hér að ofan, er ljóst að rjúpurnar þurfa að fara að vara sig.
Myndin er tekin úr Ijósmyndasafni Austurlands
Góð aflabrögð á Borgarfirði
Mikið og gott fiskirí hefur verið
hjá smábátum á Borgarfirði und-
anfarið. T.d. var löndunarmet
slegið hjá Fiskiðju Karls
Sveinssonar þegar einn daginn
komu 25.7 tonn að landi en
meiri afla hefur ekki verið land-
að á einum degi
frá stofnun fyrir-
tækisins, en það
er um 10 ára ga-
malt.
Tíu bátar lan-
da hjá Fiskiðj-
unni og hefur
fiskiríið að sögn
Karls Sveins-
sonar verið mjög
gott undanfarið.
Mest af aflanum
er þorskur, eða um 60%, en lítið
af ýsu hefur borist að landi. I
Fiskiðjunni er stærstur hluti
aflans verkaður, svo að ljóst er
að hinar góðu veiðar hafa mikil
áhrif á afkomu bæjarbúa.
Adolf Guómundsson - Helgi Jensson [frá l.nóvj
Hilmar Gunnlaugsson - Jónas A Þ Jónsson
Kaupvangur 2, 700 Egilsstaðir
logmenn@austurland.is www.austurland.is/logmenn
sími:470-2200 fax.470-2201