Austurland - 22.10.1998, Side 1
Máttarstólpar aust-
firsks atvinnulífs
Sfldarvinnslan
fímmta stærsta
sj ávarútvegsfy rirtæki
landsins
Frjáls verslun hefur nú gefið
út lista yfir stærstu fyrirtæki
landsins árið 1997, nt.v. veltu
og þar kemur fram að Sfldar-
vinnslan hf. er 29. stærsta
fyrirtækið í landinu, eða 5.
stærsta sjávarútvegsfyrirtæk-
ið nteð veltu upp á 4759
millj. kr. Síldarvinnslan skil-
ar 19. mesta hagnaðinum og
hún er 27. stærsti vinnuveit-
andi í landinu með 360 staifs-
rnenn á launaskrá a.m.t. Að-
eins tvö önnur austfirsk fyrir-
tæki eru meðal 100 efstu fyr-
irtækjanna, en það eru Hrað-
frystihús Eskifjarðar og
Kaupfélag Héraðsbúa.
Hraðfrystihús
Eskifjarðar í 45. sæti
Hraðfrystihús Eskifjarðar er í
45. sæti ef tekið er mið af
ársveltu, en hún var 3745
millj. kr. hjá fyrirtækinu árið
1997. Hraðfi-ystihúsið er hins
vegar f 9. sæti á lista yfir
stærstu sjávarútvegsfyrirtæk-
in og í 30. sæti á lista yfir þau
fyrirtæki sem skiluðu mest-
um hagnaði. Jafnframt er
Hraðfrystihúsið 35. stærsti
vinnuveitandi landsins, með
280 starfsmenn að meðaltaii
á síðasta ári.
Kaupfélag
Héraðsbúa í 74. sæti
Kaupfélag Héraðsbúa er næst
austfírskra fyrirtækja á listan-
urn yfir stærstu fyrirtækin
eða í 74. sæti. Arsvelta Kaup-
félagsins var á síðasta ári
1923 millj. kr. Kaupfélag Hér-
aðsbúa er 6. stærsta kaupfélag
landsins. Kaupfélagið komst
hins vegar ekki inn á lista yfir
stærstu vinnuveitendur en um
173 starfsmenn unnu að
meðaltali hjá fyrirtækinu á
síðasta ári.
Ólafur Sigurðsson, bœjarstjóri Seyðjirðinga, við eiita af borholunum. Ef niðurstöður rannsókna
verða jákvœðar getur það þýtt byltingu í húshitunarmálum Seyðfirðinga. Þegar hefur fundist kalt
vatn og því er Ijóst að framfarir verða í vatnsmálum Seyðfirðinga hvort sem þeirfá liitaveitu eður
ei. Ljósm. S.Ó.
Borað eftlr vatnl á Seyðisfirði
Á Seyðisfírði hafa að undan-
fömu farið fram tilraunaboranir
eftir vatni og hita. Fyrstu holum-
ar hafa gefíð ágætar vonir um að
hita sé að finna skammt frá
bænum, en þó hefur enn ekki
fundist heitt vatn. Hitinn í einni
holunni mældist 9,5°C og þykir
það gefa góð fyrirheit og ætti
hitinn á 1000 metra dýpa að vera
um 90°C. I ljósi þess að menn
eru farnir að bora niður á 1500
metra dýpi er hugsanlegt að
þennan hita megi nýta. Nú er
verið að kanna hversu stórt
hitasvæðið er, en ekki er hægt að
segja til um hvort hitasvæðið sé
nýtilegt fyrr en stærð þess hefur
Austurbær, Firðir
og Miðfirðir
verið áætluð. Þetta eru
spennandi fréttir fyrir Seyðfirð-
inga því hitaveita hefur þegar
verið lögð í bæinn en þar er
svokölluð fjarvarmaveita, sem
þýðir að Rarik hitar upp vatn
sem svo er dælt í öll hús. Ef
heitt vatn fyndist yrði því afar
einfalt að veita því á bæinn.
Einnig hefur verið borað eftir
köldu vatni og gefa þær boranir
fyrirheit um neysluvatnsupp-
sprettu.
Síldveiðar
að glæðast -
Loðnuveiðar
fara vel af
stað
Sfldveiðar voru góðar síðustu
helgi og var síld landað víða
á Austfjörðum. Þessi sfld var
að stórum hluta verkuð til
manneldis, en hún verður
væntanlega seld á Evrópu-
markaði. Ekki veiddist þó vel
í vikunni og þegar blaðið fór
í prentun var spáð slæmri
brælu fram að helgi og því
ekki útlit fyrir mikla veiði.
Loðnuveiðar fóru vel af
stað í vikunni, en loðna
fannst NA af Langanesi, en
þangað er tiltölulega stutt
sigling fyrir austfirsk skip.
Þegar blaðið fór í prentun
stefndi þó allt í að bræla setti
strik í reikninginn.
Það er gleðiefni að loðnan
skuli vera farin að finnast, en
kolmunninn hefur þó haldið
útgerðum og mjölverksmiðj-
um við efnið síðustu vikur.
Aldrei hefur öðru eins magni
af kolmunna verið landað í
Austfjarðahöfnum, en yfir
30.000 tonn hafa borist á land
bæði hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar og Síldarvinnsl-
unni hf í Neskaupstað og er
um að ræða löndunarmet á
kolmunna hjá báðum fyrir-
tækjunum.
Nefnd sem fjalla á um nafnamál
nýs sveitarfélags Eskifjarðar,
Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar
hefur skilað tillögum sínum.
Eftir ítarlegar umræður hefur
nefndin komist að þeirri niður-
stöðu að fá umsögn Örnefna-
nefndar um nöfnin Austurbær,
Firðir og Miðfirðir sem hugsan-
leg nöfn á sveitarfélagið. Þegar
liggur fyrir jákvæð umsögn um
nafnið Fjarðabyggð.
Verði niðurstaða Örnefna-
nefndar jákvæð gagnvart nöfn-
unum verður gerð skoðanakönn-
un meðal íbúanna til nafnanna
og í kjölfar hennar ákveður bæj-
arstjóm nafn á sveitarfélagið.
LÖGMENN
AUSTURLANDIehf.
Adolf Guðmundsson - Helgi Jensson (frá 1 .nóvj
Hilmar Gunnlaugsson - Jónas A Þ Jónsson
Kaupvangur 2, 700 Egilsstaðir
logmenn@austurland.is www.austurla nd. is/logmenn
sími:470-2200 fax.470-2201
Fyrir
atvinnulífi
HELBARTILBDÐ
Grænar baunir
Niðursoðnar glllrætlir í skífum
Londoniamb Saltkjöt
Bayonese skinka
♦ H ELGARTILBDÐ