Austurland - 29.10.1998, Side 5
FIMMTUDAGUR 29. OKTOBER 1998
5
Skeifukarlar og lukkuljós
Hjónin Katrín Guðmundsdóttir
og Kristján Ragnarsson hafa
vakið athygli síðustu ár fyrir
listfengi og frumlega hönnun, en
munir þeirra hafa selst eins og
heitar lummur síðasta árið, eða
síðan Katrín opnaði verkstæði
sitt fyrir ofan heilsugæslustöð-
ina. Blaðamaður Austurlands
heyrði af þessari merkilegu
handverksmenningu á Eskiftrði
og plataði Katrínu í viðtal.
Hvenœr byrjaðir þú að vinna
að listsköpun?
„Ég hef verið að vinna í
einhverri list frá því að ég man
eftir mér. Ég hef svo verið með
félagsstarf aldraðra, auk þess
sem ég hef unnið mikið með
þroskaheftum og fötluðum, en
það starf felst að miklu leyti í
ýmiss konar listsköpun og
kennslu. Ég hef verið í því starfi
hér í Hulduhlíð í 10-15 ár. Svo
opnaði ég verkstæðið á síðasta
ári og síðan þá hef ég verið á kaft
í að framleiða listmuni."
Hvernig kom það til að þú
opnaðir verkstœðið?
„Þetta byrjaði á því að ég hélt
keramiknámskeið og leirnám-
skeið fyrir böm. Það vatt svo
upp á sig og ég þurfti að stækka
við mig. Verkstæðið var ekki
stofnað til að selja listmuni, því
ég vil frekar koma fólki af stað í
eigin listsköpun en að selja því
mína muni. Ég er með opið hús
hér tvisvar í viku, á mánudags og
Söluaðilar á
Austurlandi:
Bílar og vélar, Vopnafirði
Síldarvinnslan, Neskaupstað
Björn og Kristján, Reyðarfirði
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
miðvikudagskvöldum. Um helg-
ar er ég svo með leirnámskeið
fyrir bömin. Svo erum við að fá
brennsluofn á næstunni og þá get
ég boðið upp á glerjun. Það hef-
ur þó nokkur fjöldi fólks komið
á námskeið hjá mér og þar á
meðal fólk úr nágrannabæjun-
um. Ég er með búðina opna frá
kl. 17-18 virka daga og svo frá
11-15 á laugardögum."
Hvemig hejúr þér gengið að
selja Austfirðingwn listmuni?
„Salan hefur aukist jafnt og
þétt síðan við opnuðum í fyrra
og nú er svo komið að ég þarf að
fara að ákveða hvort ég á að fara
að stofna fyrirtæki um söluna og
fara í þetta á fullu en það er það
sem mig langar mest að gera. At-
vinnuþróunarfélag Austurlands
hefur verið mér innan handar
hvað varðar áætlunargerð og
þeir Hreinn Sigmarsson og
Gunnar Vignisson eiga heiður
skilinn fyrir sína vinnu. Það sem
hefur selst einna best hjá okkur
eru gripir sem em unnir úr göml-
um skeifum. Kristján, maðurinn
minn, mótar skeifumar og sýður
þær saman og við gemm úr þeim
kúreka og ljós sem hægt er að
hengja á veggi eða hafa á borð,
en þau köllum við lukkuljós. Þessa
gripi emm við að senda um allt
land og við fáum einnig sendar
skeifur frá hestamönnum sem
eru ánægðir með að þær séu
nýttar í eitthvað. Ég geri einnig
LANDVÉLAR HF
myndir úr leðri og silki og þær
hafa einnig selst mjög vel. Vör-
umar klárast jafn óðum og ég
held að ég sé að verða búin að
koma mér upp lager. Við emm
með hönnunarvemd á þessum
vömm þannig að menn geta ekki
farið að apa þetta eftir okkur.
Við fáum talsvert af ferðamönn-
um hér inn til okkar á sumrin en
uppistaðan í mínum viðskipta-
vinahópi eru Austfirðingar. Það
mætti vera meira um útlendinga
og ég held að við þyrftum að
gera átak í að markaðssetja nýja
sveitarfélagið í heild sinni, en
rútumar bmna bara hér í gegna
og stoppa ekki neitt. Við þurfum
að halda lengur í ferðamennina.“
Nú hefur þú starfað árum
saman að félagsstarfi aldraðra,
þroskaheftra og fatlaðra. Hvem-
ig líkar þér við þá vinnu?
„Það er að mörgu leyti mjög
skemmtilegt starf. Ég get gert og
kennt það sem mér finnst
skemmtilegt og ég eignast marga
góða vini í vinnunni. En þetta
getur lfka verið mjög krefjandi
og erfitt starf. Ég er t.d. að vinna
með mjög fatlað og þroskaheft
fólk og sú vinna getur verið
erfið. Ég nota ýmsar aðferðir við
kennsluna. T.d. les ég fyrir þau
og læt þau vinna með leir á
meðan og móta eitthvað sem þau
tengja við söguna. Svo spyr ég
þau spuminga úr sögunum og fæ
þau til að tjá sig. Við spilum líka
boccia og teljum saman stigin
yfir veturinn og veitum svo verð-
laun á litlu jólunum. Þetta er fullt
starf og ég vinn yfirleitt í Huldu-
hlíð frá níu til fimm.“
Ert þú sjálfinenntuð í listum
eða hefur þú aflað þér ein-
hverrar menntunar á því sviði?
„Ég náttúrulega að mestu
leyti sjálfmenntuð eins og flestir
listamenn en ég hef verið mjög
dugleg við að fara á námskeið á
ýmsu tagi. Nú er ég t.d. að fara á
framhaldsnámskeið í keramik,
en námskeiðið fer fram hjá
listasmiðju sem heitir Leirkrúsin
og er staðsett í Reykjavík. Þar
munu kennarar úr Myndlista og
handíðaskólanum sjá um kennsl-
Smiðjuvegi 66 - Kópavogi - 8 557 6600
Norðfirðingar - opinn fundur
Alþingismennirnir Steingrímur J. Sigfússon og
Hjörleifur Guttormsson verða á opnum fundi í
Egilsbúð fimmtudagskvöldið 29. október kl. 20.30
Rædd verða byggðamái, gerjunin í stjórnmálum og
áherslur nýrrar hreyfingar.
Allir velkomnir
Vinstrihreyfingin - Grænt framboð
Slöngur - Barkar - Tengi
Katrín Guðmundsdóttir ásamt
fleiri munum í versluninni.
una. Bæjarfélagið hefur stutt
mig dyggilega þegar ég hef farið
á þessi námskeið og ég hef einn-
ig fengið styrki úr endurmennt-
unarsjóði Félags opinberra starfs-
manna á Austurlandi (FOSA).“
Hvaða máli heldur þú að
listsköpun skipti fyrir þá sem
hana stunda ?
„Ég held að listsköpun sé
afskaplega mikilvæg í daglega
lífinu. Hún hjálpar manni að
komast yfir erfiðleika, sorg og
missi og hún dregur einstaklinga
út úr skel sinni og út á meðal
fólks. Starfsemin héma byggist
einmitt á þessu. Hér kemur fólk
saman, skapar eitthvað, spjallar
og drekkur kaffi. Það er því
heilmikill félagsskapur í þessu.“
Er eskfirskt listafólk eitthvað
að huga að því að halda sýningu
á verkum sínum?
„Við ætlum að halda sýningu
skeifukörlum, lukkuljósum og
Ijósm. SÓ
í vor. Við erum komin í samstarf
við listasmiðjuna Þórsmörk í
Neskaupstað og ætlum að reyna
að halda sýningu á list úr
sveitarfélagi 7300 og vonandi
verður hún hin glæsilegasta.
Daglegar
ferðir
Neskaupstaður s.. 477 1190
Eskifjörður s. 476 1203
Reyðarijörður s. 474 1255
Viggó £
Vöruflutningar
0)477 1190
Fimmtudagskvöld S9. október
Carlsbergkvöid upp\V\tuv\ W"'
sáV'f'3
Föstudagskvöld 30. október
Stúkan opin tu 03.00
Blús, rokk og jazzklúbburinn á Nesi
og Egilsbúð kynna:
Rokkveisla - Sálarveisla - „Soul“tónlist
Matur - tónlistarveisla - dansleikur
Fyrsta sýning 31. október - uppselt
Önnur sýning 14. nóvember - uppselt
Aukasýning 13. nóvember - uppselt
Miðapantanir óskast sóttar miðvikudag 4. nóv.
frá kl. 17:00 -19:00.
Ósóttar pantanir ganga til fólks á biðlista
Miðaverð kr. 5.700.-
Dansleikur 51. október
eftir Sálarveisluna
Hin alþjóðlega danshljómsveit
Ágústar Ármans Aldurstakmark 18 ár
Og Stuðkropparnir Miðaverð 1500 kr.
Pizza 67 sími 755 6767 og477 l?67 &
llótBl Egilsbúð sími 477 1321