Austurland


Austurland - 29.10.1998, Síða 5

Austurland - 29.10.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 29. OKTOBER 1998 5 Skeifukarlar og lukkuljós Hjónin Katrín Guðmundsdóttir og Kristján Ragnarsson hafa vakið athygli síðustu ár fyrir listfengi og frumlega hönnun, en munir þeirra hafa selst eins og heitar lummur síðasta árið, eða síðan Katrín opnaði verkstæði sitt fyrir ofan heilsugæslustöð- ina. Blaðamaður Austurlands heyrði af þessari merkilegu handverksmenningu á Eskiftrði og plataði Katrínu í viðtal. Hvenœr byrjaðir þú að vinna að listsköpun? „Ég hef verið að vinna í einhverri list frá því að ég man eftir mér. Ég hef svo verið með félagsstarf aldraðra, auk þess sem ég hef unnið mikið með þroskaheftum og fötluðum, en það starf felst að miklu leyti í ýmiss konar listsköpun og kennslu. Ég hef verið í því starfi hér í Hulduhlíð í 10-15 ár. Svo opnaði ég verkstæðið á síðasta ári og síðan þá hef ég verið á kaft í að framleiða listmuni." Hvernig kom það til að þú opnaðir verkstœðið? „Þetta byrjaði á því að ég hélt keramiknámskeið og leirnám- skeið fyrir böm. Það vatt svo upp á sig og ég þurfti að stækka við mig. Verkstæðið var ekki stofnað til að selja listmuni, því ég vil frekar koma fólki af stað í eigin listsköpun en að selja því mína muni. Ég er með opið hús hér tvisvar í viku, á mánudags og Söluaðilar á Austurlandi: Bílar og vélar, Vopnafirði Síldarvinnslan, Neskaupstað Björn og Kristján, Reyðarfirði Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga miðvikudagskvöldum. Um helg- ar er ég svo með leirnámskeið fyrir bömin. Svo erum við að fá brennsluofn á næstunni og þá get ég boðið upp á glerjun. Það hef- ur þó nokkur fjöldi fólks komið á námskeið hjá mér og þar á meðal fólk úr nágrannabæjun- um. Ég er með búðina opna frá kl. 17-18 virka daga og svo frá 11-15 á laugardögum." Hvemig hejúr þér gengið að selja Austfirðingwn listmuni? „Salan hefur aukist jafnt og þétt síðan við opnuðum í fyrra og nú er svo komið að ég þarf að fara að ákveða hvort ég á að fara að stofna fyrirtæki um söluna og fara í þetta á fullu en það er það sem mig langar mest að gera. At- vinnuþróunarfélag Austurlands hefur verið mér innan handar hvað varðar áætlunargerð og þeir Hreinn Sigmarsson og Gunnar Vignisson eiga heiður skilinn fyrir sína vinnu. Það sem hefur selst einna best hjá okkur eru gripir sem em unnir úr göml- um skeifum. Kristján, maðurinn minn, mótar skeifumar og sýður þær saman og við gemm úr þeim kúreka og ljós sem hægt er að hengja á veggi eða hafa á borð, en þau köllum við lukkuljós. Þessa gripi emm við að senda um allt land og við fáum einnig sendar skeifur frá hestamönnum sem eru ánægðir með að þær séu nýttar í eitthvað. Ég geri einnig LANDVÉLAR HF myndir úr leðri og silki og þær hafa einnig selst mjög vel. Vör- umar klárast jafn óðum og ég held að ég sé að verða búin að koma mér upp lager. Við emm með hönnunarvemd á þessum vömm þannig að menn geta ekki farið að apa þetta eftir okkur. Við fáum talsvert af ferðamönn- um hér inn til okkar á sumrin en uppistaðan í mínum viðskipta- vinahópi eru Austfirðingar. Það mætti vera meira um útlendinga og ég held að við þyrftum að gera átak í að markaðssetja nýja sveitarfélagið í heild sinni, en rútumar bmna bara hér í gegna og stoppa ekki neitt. Við þurfum að halda lengur í ferðamennina.“ Nú hefur þú starfað árum saman að félagsstarfi aldraðra, þroskaheftra og fatlaðra. Hvem- ig líkar þér við þá vinnu? „Það er að mörgu leyti mjög skemmtilegt starf. Ég get gert og kennt það sem mér finnst skemmtilegt og ég eignast marga góða vini í vinnunni. En þetta getur lfka verið mjög krefjandi og erfitt starf. Ég er t.d. að vinna með mjög fatlað og þroskaheft fólk og sú vinna getur verið erfið. Ég nota ýmsar aðferðir við kennsluna. T.d. les ég fyrir þau og læt þau vinna með leir á meðan og móta eitthvað sem þau tengja við söguna. Svo spyr ég þau spuminga úr sögunum og fæ þau til að tjá sig. Við spilum líka boccia og teljum saman stigin yfir veturinn og veitum svo verð- laun á litlu jólunum. Þetta er fullt starf og ég vinn yfirleitt í Huldu- hlíð frá níu til fimm.“ Ert þú sjálfinenntuð í listum eða hefur þú aflað þér ein- hverrar menntunar á því sviði? „Ég náttúrulega að mestu leyti sjálfmenntuð eins og flestir listamenn en ég hef verið mjög dugleg við að fara á námskeið á ýmsu tagi. Nú er ég t.d. að fara á framhaldsnámskeið í keramik, en námskeiðið fer fram hjá listasmiðju sem heitir Leirkrúsin og er staðsett í Reykjavík. Þar munu kennarar úr Myndlista og handíðaskólanum sjá um kennsl- Smiðjuvegi 66 - Kópavogi - 8 557 6600 Norðfirðingar - opinn fundur Alþingismennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson verða á opnum fundi í Egilsbúð fimmtudagskvöldið 29. október kl. 20.30 Rædd verða byggðamái, gerjunin í stjórnmálum og áherslur nýrrar hreyfingar. Allir velkomnir Vinstrihreyfingin - Grænt framboð Slöngur - Barkar - Tengi Katrín Guðmundsdóttir ásamt fleiri munum í versluninni. una. Bæjarfélagið hefur stutt mig dyggilega þegar ég hef farið á þessi námskeið og ég hef einn- ig fengið styrki úr endurmennt- unarsjóði Félags opinberra starfs- manna á Austurlandi (FOSA).“ Hvaða máli heldur þú að listsköpun skipti fyrir þá sem hana stunda ? „Ég held að listsköpun sé afskaplega mikilvæg í daglega lífinu. Hún hjálpar manni að komast yfir erfiðleika, sorg og missi og hún dregur einstaklinga út úr skel sinni og út á meðal fólks. Starfsemin héma byggist einmitt á þessu. Hér kemur fólk saman, skapar eitthvað, spjallar og drekkur kaffi. Það er því heilmikill félagsskapur í þessu.“ Er eskfirskt listafólk eitthvað að huga að því að halda sýningu á verkum sínum? „Við ætlum að halda sýningu skeifukörlum, lukkuljósum og Ijósm. SÓ í vor. Við erum komin í samstarf við listasmiðjuna Þórsmörk í Neskaupstað og ætlum að reyna að halda sýningu á list úr sveitarfélagi 7300 og vonandi verður hún hin glæsilegasta. Daglegar ferðir Neskaupstaður s.. 477 1190 Eskifjörður s. 476 1203 Reyðarijörður s. 474 1255 Viggó £ Vöruflutningar 0)477 1190 Fimmtudagskvöld S9. október Carlsbergkvöid upp\V\tuv\ W"' sáV'f'3 Föstudagskvöld 30. október Stúkan opin tu 03.00 Blús, rokk og jazzklúbburinn á Nesi og Egilsbúð kynna: Rokkveisla - Sálarveisla - „Soul“tónlist Matur - tónlistarveisla - dansleikur Fyrsta sýning 31. október - uppselt Önnur sýning 14. nóvember - uppselt Aukasýning 13. nóvember - uppselt Miðapantanir óskast sóttar miðvikudag 4. nóv. frá kl. 17:00 -19:00. Ósóttar pantanir ganga til fólks á biðlista Miðaverð kr. 5.700.- Dansleikur 51. október eftir Sálarveisluna Hin alþjóðlega danshljómsveit Ágústar Ármans Aldurstakmark 18 ár Og Stuðkropparnir Miðaverð 1500 kr. Pizza 67 sími 755 6767 og477 l?67 & llótBl Egilsbúð sími 477 1321

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.