Austurland - 19.11.1998, Page 1
Stórbruni á Stóru-Breiðuvík
Eins og sjá má var aðkoman ekki fögur eftir brunann og.nemur tjónið sennilega milljónum króna.
244 fjár brann inni og var þar um að rœða allan bústofn býlisins og má segja að þar hafi orðið
óbœtanlegur skaði. Dráttarvélin á myndinni eyðilagðist einnig í eldinum en hún var nýleg. Einnig
brann allur heyjaforði býlisins og reyndist slökkviliðinu erfitt að slökkva í honum. Mynd as
Fjarðalistinn hefur
starfsemi bæjarmála-
ráðs
Fjarðalistinn er þessa dagana
að koma af stað bæjarmála-
ráði. Að sögn Gísla A. Gísla-
sonar, formanns Fjarðalistans
mun ráðið funda kvöldið fyrir
bæjarstjórnarfundi, þ.e.a.s. á
miðvikudagskvöldum og
verður fundað á stöðunum
þremur til skiptis og alltaf á
sarna stað og bæjarstjómar-
fundur fer frarn daginn eftir.
A fundunum mun félögum
gefast tækifæri til að kynna
sér og ræða bæjarmálin og
koma skoðunum sínum á
framfæri við bæjarfulltrúa
listans.
Veiddi 80 rjúpur á
einum degi
Rjúpnaveiðar hafa verið á-
gætar síðustu vikur og að
sögn Helga Rafnssonar, for-
manns Skotíþróttafélagsins
Dreka, geta skotveiðimenn
niðri á fjörðum ekki kvartað.
Helgi segir flesta sem nenni á
annað borð á arka á fjöll fá
eitthvað þó auðvitað séu ekki
allir eins fengsælir. Það eru
a.m.k. fáir jafn fengsælir og
Gísli H. Guðjónsson sem á
dögunum fékk 80 rjúpur í
einni veiðiferð sem er hreint
ævintýralegt. A Héraði hefur
rjúpnaveiði hins vegar verið
heldur dræm sem af er vetri
Flugfélag íslands
fækkar ferðum
Frá og með 16. nóvember
mun Flugfélag Islands leggja
niður miðdegisferðir til
Reykjavíkur ásamt því að
leggja niður kvöldflug á
sunnudögum. Þessi fækkun
ferða er til komin vegna kröfu
frá Samkeppnisstofnun þar
að lútandi. Talsmenn Flugfé-
lags Islands eru ósáttir við
kröfu samkeppnisstofnunar
og telja að ekkert standi í vegi
fyrir því að íslandsflug fjölgi
ferðum sínum. á móti.
Milljónatjón varð þegar útihús
bæjarins Stóru-Breiðuvíkur við
norðanverðan Reyðaríjörð bnannu
til kaldra kola aðfaranótt mánu-
dags. 244 fjár brann inni og
einnig brann nýleg dráttarvél
ásamt öllum heyjaforða býlisins.
Að sögn Þorbergs Haukssonar,
Þrátt fyrir að loðnuveiðar hafi
gengið talsvert verr en í fyrra er
þetta ár orðið það næst besta í
sögu verksmiðjunnar ef litið er á
það magn afla sem unnið hefur
verið. Þegar hafa verið unnin um
140.000 tonn af hráefni í verk-
smiðjunni og munar þar mikið
um blessaðan kolmunnann sem
er orðinn um 37.000 tonn á árinu
og má segja að hann sé ástæðan
fyrir því að árið varð svona gott.
Loðnuveiðar hafa þó gengið
sæmilega síðustu daga og t.d.
landaði Börkur 1650 tonnum á
þriðjudagskvöld og Þórshamar
landaði 850 tonnum í byrjun
slökkviliðsstjóra Eskfirðinga og
Reyðfirðinga, var áðkoman hræð-
ileg og gat slökkviliðið engu
bjargað. Þorbergur segir eldinn
sennilega hafa brunnið síðan um
miðnættið, en ekki barst tilkynn-
ing til lögreglu fyrr en kl:07:00
um morguninn og var það trillu-
vikunnar. Sfldveiðar hafa einnig
gengið sæmilega og landaði
Beitir 550 tonnum af síld í
vikubyrjun og hefur hann alls
landað 1900 tonnum síðan hann
fékk leyfi til að veiða í flottroll.
Megnið af þeirri sfld sem Beitir
hefur skilað á land hefur farið til
manneldis og hefur því verið
nóg að gera í fiskiðjuveri
Síldarvinnslunnar síðustu
vikuna. Mest virðist koma á land
af afla í Neskaupstað þessa
dagana, en þó er bæði verið að
bræða loðnu og frysta og salta
sfld á Seyðisfirði.
sjómaður á leið til veiða sem
varð eldsins var og hringdi í
Neyðarlínuna. Slökkvistarfið
gekk vel fyrir sig en þó tók
langan tíma að drepa í glæðum
enda erfitt að eiga við eld í heyi.
Þegar rætt var við slökkviliðs-
stjóra á þriðjudag var hann á leið
út að Stóru-Breiðuvík til að
slökkva í glæðum og er það til
vitnis um hversu lengi getur
lifað í gömlum glæðum. Bruninn
er að sjálfsögðu mikið áfall fyrir
heimilisfólk og þó að fjárhags-
legt tjón fáist e.t.v. bætt í trygg-
ingum að einhverju leyti er sá
bústofn sem búið var að rækta
upp horfinn að eilífu.
Barðinn með
tundurdufl
Tundurdufl kom í nótina hjá
Barða á mánudaginn þar sem
hann var að toga 20 mflur aust-
suð-austur af Gerpi. Að sögn
Sveins Benediktssonar, skip-
stjóra, var duflið í raun komið
í tvennt þegar það kom um
borð, en tunnan sem geymir
sprengiefnið var komin út úr
belgnum á duflinu sjálfu.
Strax var haft samband við
sprengisérfræðinga Land-
helgisgæslunnar og í samráði
við hann var sprengiefnis-
tunnan bundin og sjór látinn
renna á hana.
„Sprengisérfræðingurinn
sagði að ef tunnan þornaði
gæti sprengiefnið kristallast
og það gæti orðið stór hættu-
legt. Ef tunnunni er hinsvegar
haldið blautri þá er engin
hætta. Við gerðum þetta allt í
samráði við hann. Hann sagði
okkur að ef einhverjir vírar
væru tengdir við tunnuna gæti
hann ekki mælt með að við
ættum við neitt. Hinsvegar var
allt þegar komið úr sambandi,
þ.e. allir vírar sem tengdir
voru við kveikju, kveikju-
hamar og forsprengju og því
óhætt að fara þessa leið“.
Ekki er talin þörf á að
koma í land með duflið sér-
staklega og gert er ráð fyrir að
sprengisérfræðingar gæslunn-
ar muni koma austur þegar
Barði kemur næst í land, sem
líklega verður um mánaðar-
mótin. I kjölfarið verður dufli-
nu eytt.
Adolf Guómundsson • Helgi Jensson
Hilmar Gunnlaugsson - Jónas A Þ Jónsson
Kaupvangur 2, 700 Egilsstaðir
logmenn@austurland.is www.austurland.is/logmenn
sími:470-2200 fax.470-2201
Næst besta ár í sögu mjölverk-
smiðju Síldarvinnslunnar
BÖkuNARTÍlboðÍN hAfÍN
Starfskraltui* oskasl seni lyrst
m 477 1301