Austurland - 19.11.1998, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
Steinninn orflinn vinnustofa og gallerí
Um helgina hélt Madda í Stein-
inum myndlistarsýningu í vinnu-
stofu sinni. þar sem hún sýndi 11
myndir sem allar eru unnar á
því að ég vinn á þennan hátt er
að mér finnst þetta skila svo fall-
egri birtu og ég hef mjög mikinn
áhuga á að vinna með ljósið og
Textíllistakonan Madda hefur hreiðrað um sig í steininum og þar
hefur hún útbúið sér vinnuaðstiiðu sem einnig mú nota sem
gallerí. Mynd ab
þessu ári. Hún er textíllistamað-
ur og lærð sem slík frá Myndlist-
ar og handíðaskóla Islands.
„Strax í skólanum lagði ég á-
herslu á tauþrykk og í raun má
segja að ég hafi fallið fyrir
þessari grein lista þar“, sagði
Madda í samtali við blaðið.
„Síðan hef ég nær eingöngu
verið í slíkri myndlist. Myndirn-
ar á sýningunni eru reyndar ekki
þrykktar en ég nota sömu efnin,
t.d. mála ég á Viscose-efni og
mála með olíulitum sem gerðir
eru fyrir textíliðnaðinn. Þetta
vinnur ákaflega skemmtilega
saman og þó þetta sé yfirleitt
notað í þrykk þá nota ég þessi
efni til að mála með.
Allar myndirnar á sýningunni
eru unnar á þann hátt sem ég
lýsti hér að ofan. Astæðan fyrir
birtuna í þessum efnum. Ég fékk
vinnuaðstöðu í byrjun ágúst og
þá réðst ég í þetta af fullum
krafti og í raun með hálfgerðu
offorsi. Ég hafði ekki verið með
vinnuaðstöðu sem passar fyrir
þessa vinnu nokkuð lengi, en
það þarf nokkuð sérhæft um-
hverfí fyrir þessa tegund list-
sköpunar. Því má segja að ég
hafi verið með mikið af uppsöfn-
uðum hugmyndum og í rauninni
„að springa" þegar ég gat loksins
farið að vinna. Ég hef orðið fyrir
gífurlegum áhrifum frá því um-
hverfi sem ég hef verið í undan-
farið ár, ég flutti hingað austur
fyrir rúmu ári síðan, en ég kem
frá Reykjavík. Náttúran og fjöll-
in sitja mjög föst í mér og það
kemur fram í verkunum".
En hvernig er að vera lista-
maður í Neskaupstað?
„Ef ég hef aðstöðu get ég bú-
ið hvar sem er og stundað mína
listsköpun. Þetta er mín vinna í
dag og ég vil láta reyna á það
hvort ég get stundað þessa vinnu
hér. Þessi málverk eru reyndar
bara hluti af því sem ég geri því
ég „þrykki" líka. Ég bý m.a. til
þrykk á efni og tau, ýmist
munstrað eða handmálað. Það
fer reyndar mjög eftir skapinu á
mér hvað ég er að vinna við í
hvert skipti".
Og þá aðeins um sýninguna:
„Það má í rauninni segja að
sýningin lýsi minni sýn á sum-
arið 1998 á Austurlandi og fyrir
mér er mjög mikil náttúra í þess-
um myndum. Myndirnar eru
svolítið dökkar en ég sá sumarið
allt í gegnum rigningu. Ég hafði
séð fyrir mér mjög ljósar og
litríkar myndir sem lýstu sumar-
stemmingunni héðan en í sumar
má segja að við hjónin hafi fokið
milli fjarða þegar við vorum að
skoða okkur urn og það var alltaf
rigning. Myndirnar bera líka
keirn af þessari upplifun minni
af Austurlandi".
Hvernig hafa Austfirðingar
tekið sýningunni?
„Þeir tóku henni mjög vel.
Það var t.d. góð aðsókn og alla
helgina var stöðugur straumur af
fólki. Það seldust einnig nokkur
verk á þessum stutta tíma. Það
var alltaf einhver inni á sýning-
unni og alls mættu á annað
hundrað manns lil að skoða sem
er mjög gott á ekki meiri tíma og
ekki á stærri stað. Þetta er búið
að vera mjög gaman. Ég var einn-
ig með sýningunni að opna húsið
opinberlega. Það eru allir vel-
komnir á vinnustofuna mína til
Landssíminn hafði þegar leigt
húsnæði Baugs
Samkvæmt heimildum blaðsins
standa nú yfir samningar milli
Landsíma Islands annarsvegar
og eignaraðila nýju verslunar-
miðstöðvarinnar á Egilsstöðum
hinsvegar um húsnæðismál.
Málið snýst um að Landsíminn
var búinn að skrifa undir samn-
ing um leigu á húsnæði undir
verslun fyrirtækisins á besta stað
á neðstu hæð verslunarmiðstöðv-
arinnar. Eins og komið hefur
fram í fréttum undanfarið hefur
Baugur hinsvegar leigt sama
pláss undir fyrirhugaða verslun
sína á Egilsstöðum. Austurland
hafði samband við Gunnar Sig-
björnsson, þjónustustjóra Land-
símans á Egilsstöðum og for-
vitnaðist um það hvemig málið
stæði.
„Síðast þegar ég frétti voru
samningar ennþá í gangi um
flutning okkar á efri hæð hús-
næðisins. Ég á von á að samn-
ingar takist núna á næstu dög-
um. Þetta þýðir hinsvegar að við
opnum sennilega ekki fyrr en
eftir áramót".
Starfsemin sem Landsíminn
ætlar að fara af stað með í hinu
nýja húsnæði er sölu og þjón-
ustumiðstöð símans. Um er að
ræða verslun þar sem m.a. verð-
ur sala á símabúnaði og öllu sem
tilheyrir símaþjónustu ásamt al-
mennri þjónustumiðstöð fyrir
viðskiptavini Símans.
„Við erum með samning um
100 fm. aðstöðu á jarðhæð.
Núna er hinsvegar verið að
vinna að samningum um pláss á
2. hæð í staðinn. Síminn mun
ekki standa í vegi fyrir að
Baugur komi með verslun hingað
austur og núna er verið að slípa
örfáa þætti en fljótlega ætti að
nást að ganga frá öllum endum.
Við hefðum getað staðið á
samningnum ef við hefðum
viljað en samningur húseiganda
við Baug var með fyrirvara um
að samningar næðust við Lands-
símann. Vorum með besta pláss-
ið á jarðhæð en við ætlum að
færa okkur til. Við teljum það
öllum til góða því slík verslun
yrði vítamínsprauta fyrir fjórð-
unginn og við viljum styðja
svona mál“, sagði Gunnar að
lokum.
að fylgjast með mér vinna eða
bara að spjalla og skoða það sem
ég hef verið að vinna við. Hvað
húsnæðið varðar þá var ég mjög
heppin. Steinninn er á besta stað
í bænum og húsið sjálft er yndis-
legt. Ég hefði ekki getað fengið
betri aðstöðu. í framtíðinni hef
ég mikinn áhuga á að setja upp
fleiri sýningar í þessu húsnæði
og jafnvel á einhverju öðru en
mínum eigin verkum. Vonandi
get þannig verið með stöðugar
sýningar í gangi.
Þrátt fyrir að margir hafi
komið á sýninguna um helgina
er líklega þekktasta verk Möddu
þessa dagana leikmyndin í
Sálarshowi Brjáns, en nokkur
hundruð manns hafa vafalaust
dáðst að leikmyndinni, sem
Madda hannaði, um leið og þeir
nutu fagurra tóna úr smiðju
Brjáns.
Af vettvangi bæjarstjornar
Bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Eskifjarðarkaupstaðar,
Neskaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps hélt fund 5. nóvember sl.
Skal hér greint frá nokkru af því sem fjallað var unt á fundinum:
- Bæjarstjórn samþykkti að óska eftir því að matsmenn
fasteigna á snjóflóðahættusvæðum í Neskaupstað hittu umbjóð-
anda eigenda eignanna í því skyni að endurskoða mat fasteign-
anna.
- Tilkynnt var að vinabærinn Esbjerg í Danmörku myndi senda
sveitarfélaginu jólatré að gjöf. Jafnframt var upplýst að vina-
bærinn Eskilstuna í Svíþjóð byði til vinabæjarráðstefnu dagana
16.-18. júní á næsta ári.
- Lögreglusamþykkt var samþykkt fyrir hið nýja sveitarfélag.
- Rætt var um með hvaða hætti ætti að velja löggiltan
endurskoðanda fyrir nýja sveitarfélagið. Ákveðið var að funda
með fulltrúum fyrirtækjanna sem önnuðust endurskoðun
sveitarfélaganna þriggja fyrir sameiningu.
- Greint var frá stöðu mála í viðræðum fulltrúa kennara og
sveitarfélagsins um kjaramál kennara.
- Fjallað var um uppbyggingu tölvukerfis fyrir sveitarfélagið
en tölvumálin hafa verið í undirbúningi síðustu mánuði.
-Bæjarstjóm samþykkti þjónustusamning sem gerður hefur
verið á milli Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og
Hulduhlíðar á Eskifirði.
- Samþykkt var að leita skuli tilboða frá Sparisjóði Norðfjarðar
og Landsbanka Islands í innheimtu fasteignagjalda.
- Tilkynnt var að umsókn sveitarfélagsins um þátttöku í
umhverfisverkefninu Staðardagskrá 21 hefði verið samþykkt.
Undirbúningur verkefnisins mun hefjast á næstunni.
- Bæjarstjórn samþykkti að fela starfshópi sem fjallað hefur
um val á nafni á sveitarfélagið að annast kynningu og framkvæmd
skoðanakönnunar á meðal íbúanna um nöfnin Fjarðabyggð og
Sveitarfélagið Miðfirðir. Örnefnanefnd hefur þegar samþykkt
þessi nöfn fyrir sitt leyti en hafnað öðrum tillögum.
- Greint var frá því að Sparisjóður Norðfjarðar hafi fært félags-
miðstöðinni Zveskjunni á Reyðarfírði fullkominn tölvubúnað að
gjöf. Gjöfin var afhent í tilefni af tilkomu afgreiðslu sparisjóðsins
á Reyðarfirði.
- Miklar umræður urðu um ráðningarsamning bæjarstjóra. Að
umræðum loknum var samningurinn samþykktur með 7
atkvæðum bæjarfulltrúa meirihlutans. Fulltrúar Framsóknar-
flokks sátu hjá, en fulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði
gegn samningnum. Áður hafði samningurinn verið samþykktur í
bæjarráði með fjórum atkvæðum gegn einu.
- Samþykkt var að kjósa þriggja manna nefnd til að vinna
áfram að flutningi á starfsemi Hafrannsóknastofnunar til hins
sameinaða sveitarfélags.
- Fram kom að Sveinborg Sveinsdóttir, félagsmálastjóri, sem
verið hefur í leyfi frá störfum að undanfömu, mun ekki koma til
starfa á ný. Starfið hefur verið auglýst laust til umsóknar.
- Menningarnefnd sveitarfélagsins er um þessar mundir að
undirbúa tónleikahald. Þá hefur nefndin skipað fímm manna
starfshóp til að undirbúa hátíðarhöld í tilefni af því að 70 ár verða
liðin frá því að Neskaupstaður hlaut kaupstaðarréttindi á næsta ári.
- Frarn kom að vinna við undirbúning fjárhagsáætlunargerðar
sveitarfélagsins er þegar hafin.