Austurland - 19.11.1998, Síða 7
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
7
Eina leiðin út úr þessum ógöng-
um er að félagshyggjufólk taki
höndum saman við að skapa
stóra og öfluga breiðíylkingu sem
hafi jöfnuð, framfarir, kvenfrelsi
og réttlæti að hornsteinum.
Þannig sköpum við betra Island
og gerum íbúa landsbyggðarinn-
ar að fyrsta flokks þegnum í sam-
félaginu á nýjan leik.
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi bendir m.a. á nokkrar leiðir
sem rikisvaldinu er kleift að fara.
Ókeypis smáar
Til sölu
Röra -unglingarúm.
Uppl. ís. 477-1129
Anna Guðlaug
Tapað-fundið
Sárlega er saknað grænnar og
blárrar Adidas íþróttatösku með
Man.Utd.-galla, gulum skóm,
sokkum og fleira. taskan var
tekin í íþróttahúsinu í Neskaup-
stað föstudaginn 6. nóv. eða
laugardaginn 7. nóv.
Vinsamlega hringið í síma
477-1709 ef taskan hefur lent
óviljandi á ykkar heimili.
Alyktað um byggða- og kjördæmamál
Aðalfundur kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins á Austurlandi var
haldinn á Fáskrúðsfirði á dögun-
um. Þar var eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum samþykkt til-
laga um að ganga til samstarfs
við sameiginlegt framboð félags-
hyggjuaflanna í fjórðungnum og
kjömir voru þrír menn í við-
ræðuhóp vegna málsins.
Helsta ályktun fundarins var
um kjördæmamálið:
Aðalfundur kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins á Austurlandi
mótmælir framkomnum hug-
myndum um breytingar á kjör-
dæmaskipan þar sem ekki er
tekið tillit til uppbyggingar fél-
agslegs samstarfs í kjördæmum.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
minnir sérstaklega á stefnu flokks-
ins frá árinu 1929 til dagsins í
dag um að landið verði gert að
einu kjördæmi auk þess að sveit-
arstjórnarstigð verði eflt
í stjómmálaályktun Alþýðu-
flokksins á Austurlandi er m.a.
fordæmt hvernig núverandi
ríkisstjóm hefur staðið aðgerða-
og úrræðlaus andspænis því brýna
verkefni að sporna við fólks-
fækkun á landsbyggðinni og
þeirri miklu byggðaröskun sem
því fylgir. Alþýðuflokurinn á
Austurlandi fer fram á að ríkis-
stjómin viðurkenni að hin raun-
verulega byggðastefna hefur
birst í stórkostlegri uppbyggingu
á Reykjavíkursvæðinu. Þrátt
fyrir góðæri og hagsæld hefur
ríkisstjórnin ekki verið í stakk
búin til að glíma við þau verk-
efni sem mikilvægust em þ.e. að
styrkja búsetu á landsbyggðinni
og jafna lífskjör svo allir fái
notið mannsæmandi afkomu.
- Beita almennum skatta-
lækkunum til að laða fólk til
áframhaldandi búsetu og land-
vinninga á landsbyggðinni.
- Afnema virðisaukaskatt og
þungaskatt af flutningum á lífs-
nauðsynjum til landsbyggðar-
innar.
- Koma á algerri jöfnun hús-
hitunarkostnaðar til samræmis
við höfuðborgarsvæðið
- Koma á fiskveiðistjómun
sem tryggir vistvænar veiðar
smábáta og öfluga landvinnslu
íslandsflug býður „tveir fyrir einn“ fargjald milli
Egilsstaða og Reykjavíkur í nóvember og desember.
Nú opnast ótal möguleikar - viltu skreppa suður með einhverjum?
Viltu fá vini og vandamenn í heimsókn? Bentu þeim á okkur.
Við gerum nefnilega fleirum fært að fljúga.
Áætlunarflugið til Reykjavíkur hefur verið stórbætt og nú notum
við þægilegar ATR vélar í öllu flugi þangað.
Miðinn greíðist við bókun og gildir í allar ferðir nema síðustu ferðir á föstudögum og
sunnudögum. Annar aðilinn greiðir fullt verð, hinn ferðast ókeypis. Þeir sem skráðir eru á
miðannverðaaðferðastsamanáa.m.k. annarri leiðinni. Kaffi og kleinur um borð!
Tilboðið gildir frá 16.nóvember til 16. desember.
Upplýsingar
og bókanir
f síma
471 1122 &
570 8090.
ISLANDSFLUG
gerir fleirum fært að fljúga