Austurland - 26.11.1998, Blaðsíða 1
Rjúkandi ráð í Neskaupstað
Leikfélag Norðfjarðar frumsýndi gaman- og söngleikinn Rjúkandi ráð eftir Stefán Jónsson,
Jónas og Jón Múla Árnasyni við góðar undirtektir áhorfenda á laugardaginn. Leikstjóri
verksins er Ingibjörg Björnsdóttir. Alls taka 13 leikarar þátt í sýningunni. A myndinni hérfyrir
ofan sést hvar lögregluþjónarnir Guðmundur P. Smitli og Ólafur E. Jónsson handtaka
glœpamanninn Skarphéðinn Nílsen við töluverða skelfingu viðstaddra. A bls. 3 er að finna
nánari umsögn um sýninguna frá Stefáni Þorleifssyni. Ljósm. S.Ó.
Tvö sveitarfélög á Austurlandi
sækjast eftir flóttamönnum
Nýr félagsmálastjóri
í sveitarfélag 7300
Félagsmálaráð sveitarfélags
7300 hefur mælt með því að
Kristinn Stefán Einarsson
verði ráðinn í starf félags-
málastjóra. Kristinn er stjórn-
málafræðingur að mennt og
hafði hann mjög góð með-
mæli úr sínum fyrri störfum,
en hann hefur m.a. starfað
við áfengismeðferðarstofnan-
ir og hefur því nokkra reynslu
af þessum málaflokki.
Sfldarvinnslan stefnir
á kolmunnavinnslu
til manneldis
Síldarvinnslan hefur verið
brautryðjandi í veiðurn á kol-
munna á Islandi og nú stefnir
fyrirtækið á að hefja vinnslu
á kolmunna til manneldis. Fyr-
irtækið hefur sótt um rann-
sóknarstyrk til Rannís til að
leita vinnsluaðferða, en svar
við umsókninni kemur ekki
fyrr en í byrjun næsta árs.
Fyrirtækið hyggst auka kol-
munnaveiðar til muna og
verður m.a. í þeim tilgangi
skipt um vél í Berki NK 122
til að gera hann hæfari til veið-
anna. Alls hefur um 37.000
tonnum af kolmunna verið
landað hjá Síldarvinnslunni í
ár og hefur hann verið mikil
búbót. Frá þessu var sagt í
fréttabréfi Síldarvinnslunnar
sem kom út á mánudag.
Bræla hamlar
veiðum
Síðustu vikuna hefur verið
nánast stanslaus bræla á fiski-
miðum að sögn Freysteins
Bjarnasonar, útgerðarstjóra
Síldarvinnslunnar hf. og hafa
veiðar af þeim sökum gengið
afar treglega. Sfldarvertíðin í
ár hefur verið heldur daufleg,
en þó verður hún sennilega
ekki verri en í fyrra og t.d. er
búið að setja í yfir 15.000 tunn-
ur hjá Síldarvinnslunni og er
það svipað og á síðustu vertíð.
Tvö sveitarfélög á Austfjörðum,
Seyðisfjörður og sameinað sveit-
arfélag Eskifjarðar, Neskaup-
staðar og Reyðarfjarðar, hafa nú
ákveðið að sækja um að fá að
taka á móti flóttamönnum frá
ríkjum fyrrum Júgóslavíu. Bæj-
arstjórn sveitarfélags 7300 sam-
þykkti á fimmtudag í síðustu
viku að senda inn umsókn, en
umsóknarfresturinn rennur út 1.
desember. Að sögn Guðmundar
Bjarnasonar, bæjarstjóra sveitar-
félag 7300, er ekki vitað hversu
stór hópur kæmi austur ef af
þessu yrði, en þeir hópar sem
þegar hafa komið til landsins
hafa verið um 20 manns. Guð-
mundur sagði bæjarstjóm hafa
talið þetta vera skynsamlegan
kost í ljósi þess að næga atvinnu
er að hafa í sveitarfélaginu og
nægt framboð er á húsnæði. Á
síðasta ári kom hópur flótta-
manna til Hornafjarðar og hefur
reynslan af því verið góð. Komu
flóttamanna fylgir mikið og
skipulegt átak í nýbúafræðslu
sem nýtist þeim nýbúum sem
fyrir em á svæðinu og er það
einnig talið jákvætt. Olafur Sig-
urðsson, bæjarstjóri á Seyðis-
firði, tekur í sama streng og Guð-
mundur og telur hann bæjarfélög
á Austurlandi sérlega vel til þess
fallin að taka á móti flóttafólki
sökum góðs ástands í atvinnu-
og húsnæðismálum og segist
hann vera sannfærður um að
Seyðfirðingar gætu tekið vel á
móti fólkinu.
Handverks-
og listaskóli
á Austurland?
Nefnd, sem skipuð var af
skólameistara ME til að
kanna möguleika á náms-
braut í listiðnum við skólann,
er nú að ljúka störfum. Nefnd-
in skoðaði reynslu nágranna-
þjóðanna af slíku námi og
gerði svo drög að slíku námi
hér heima. Skv. hugmyndum
nefndarinnar yrði um að ræða
sjálfstæða braut innan skól-
ans með tengslum við erlenda
skóla af svipuðu tagi til að
tryggja það að nemendur geti
leitað í framhaldsnám og
lendi ekki á blindgötu í námi
sínu. Nám með áherslu á
handverk hefur í raun ekki
verið fyrir hendi hér á landi
með skipulegum hætti, en
kominn er tími á að færa slíkt
nám inn í skólakerfið til að
varðveita hinar gömlu hand-
verkshefðir og auka val-
möguleika nemenda á fram-
haldsskólastigi. Tillögurnar
gera ráð fyrir tveimur aðal-
fögum, annars vegar öllu sem
tengist ull og vefnaði, t.d. tó-
vinna, flóki, prjón, prjóna-
hönnun, vélprjón og skreyt-
ingar, og hins vegar tré og
málmsmíði, þ.e. útskurð og
rennismíði. Einnig er gert ráð
fyrir að bjóða upp á afar fjöl-
breytt valfög svo sem leður
og skinnsaum, steinhögg,
steinslípun, pappírsgerð og
Ijósmyndun.
Adolf Guðmundsson - Helgi Jensson
Hilmar Gunnlaugsson - Jónas A Þ Jónsson
Kaupvangur 2, 700 Egilsstaöir
logmenn@austurland.is www. austu rla nd. is/logmenn
si m i: 470-2 200 fax.470-2201
Starfskraftur óskast
til starfa frá áramótum