Austurland - 26.11.1998, Síða 8
Tilþod
7
| Tifcoð a
sböWuW"0"”’
Urval af jólaseríum
Rauðvínslegið [ambalæri /
Reykt folaldakjöt \
Bitasagaður hangiframpartur
,ha\\a dagafrá kl-I0.oo-Jo
IMESBAKKI
y' @477 1609 og 897 1109
Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins,
stofnað 1951
Austurland
Neskaupstaö 26. nóvember 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Reiknað á fjöllum
Grunnskóli Eskifjarðar tók upp á
þeirri skemmtilegu nýbreytni að
senda nemendur I0. bekkjar í
stærðfræðiútlegð upp á fjöll urn
síðustu helgi. Hugmyndin var
borin upp af stærðfræðikennara
bekkjarins og tóku nemendur
afar vel í hana og dvaldi bekkur-
inn í skíðaskálanum í Odds-
skarði í heilan sólarhring og
mestur hluti þess tíma fór í
stærðfræðigrúsk. Börnin reikn-
uðu frá kl: 15:00 til 22:30 á
föstudaginn og frá 8:00 til 14:30
á laugardag. Þar sem kennslan
fór fram í kyrrð fjallanna og
ekkert var til að trufla þau tóku
börnin heilmiklum framförum í
ferðinni. Að sögn Hilmars Sig-
urjónssonar, skólastjóra, er um
nýbreytni í skólastarfinu að ræða
og hann segist ekki vita til þess
að nemendur hafi tekið slíkar
lærdómstarnir án þess að safna
fyrst áheitum og fá þar með
peninga út úr því.
Jón á Ketilsstöðum
ræktunarmaður ársins
Jón Bergsson, bóndi á Ketils-
stöðum, hefur verið valinn hrossa-
ræktunarmaður ársins af Búnað-
arfélagi Islands, en það mun vera
einn mesti heiður sem austfirskri
búfjárrækt hefur hlotnast. I
samtali við blaðið sagðist Jón
vera mjög ánægður með útnefn-
inguna og sé þetta staðfesting á
því hversu framarlega Austfirð-
ingar standa í greininni. Jón
segir góðan árangur austfirskra
hesta vera athyglisverðan í ljósi
þess að einungis um 2% hesta
landsins séu austfirskir. Reyndar
var það svo að Ketilsstaðir áttu
flesta hesta í keppni kynbóta-
hrossa á landsmótinu í sumar og
ber það starfi Jóns fagurt vitni.
Jón segir útnefninguna skipta
talsverðu máli fyrir rekstur bús-
ins og að eftirspurn eftir hross-
um hans muni sennilega aukast
jafnt innan lands sem utan, en
hestar frá Ketilsstöðum hafa
verið seldir bæði til Evrópu og
Bandaríkjanna.
Barðamenn ekki sprengjuhræddir
Eins og Austurland greiitdi frá í síðasta blaði fékk Barði NK tundurdufl í trollið lijá sér á dögunum.
Duflið reyndist vera óvirkt og kveikjubúnaður þess sennilega ónýtur. Hins vegar ráðlögðu sprengju-
sérfrœðingar Landhelgisgœslunnar Barðamönnum að halda duflinu blautu því sprengjuefni getur
verið hœttulegt efþað þornar. Barðinn kom svo í land á þriðjudag vegna bilunar og stoppaði stutt
við. Barðamenn liöfðu ekki meiri áhyggjur af duflinu eit svo að þeir sáu ekki ástœðu til að setja
duflið í land og héldu þeir því aftur með það á liafút. A myndinni má sjá Friðrik Vigfússon við hlið
duflsins, en hann hélt þvífram þegar blaðamaður Austurlands tók myndina að hann vœri sprengju-
hrœddasti maðurinn um borð. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem tundurdufl kemur á land
í Austfjarðahöfnum og er greinilega fyllsta ástœða fyrir sjófarendur að hafa vakandi auga með
þessum minjum úr seinni heimsstyrjöldinni. Ljósm S.O.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttr í þriðja sæti
Hjördís Þóra Sigurþórsdótt-
ir, formaður Verkalýðsfél-
agsins Jökuls á Hornafirði,
mun skipa þriðja sætið á
lista samfylkingar félags-
hyggjufólks á Austurlandi.
Þetta þykir nokkrum tíðind-
um sæta þar sem Hjördís
Þóra hefur ekki haft opinber
afskipti af stjórnmálum áður.
Eins og greint hefur verið frá
í fjölmiðlum mun Einar Már
Sigurðarson skipa efsta sæti
listans en Gunnlaugur Stef-
ánsson annað sætið. Að sögn
Einars Más hefur starf sam-
fylkingarinnar gengið sér-
lega vel hér fyrir austan,
enda sé þeim Austfirðingum,
Einar Már Sigurðarson mun skipa
fyrsta sœti lista samfylkingarinnar á
Austurlandi. Hér sést hann „við störf
sín“ í ritnefnd Vikublaðsins Austur-
lands. Ljósm. as
sem að starfinu koma, mjög
umhugað urn að draumurinn
um samfylkingu félags-
hyggjufólks verði að veru-
leika. Einar Már segist ekki
telja samfylkinguna snúast
um sameiningu gömlu flokk-
anna heldur sé um miklu
viðameira fyrirbæri að ræða
og ekki sé hægt að láta
flokkshagsmuni spilla starf-
inu. Til vitnis um þessa stað-
reynd er að listinn hér fyrir
austan verður að öllum lík-
indum aðeins skipaður 4
flokksbundnum einstakling-
um og 6 óflokksbundnum.
Einar Már segir að með
þessum skjótu vinnubrögð-
um vilji austfirskir félagshyggju-
menn sýna í verki að samfylk-
ingin sé raunverulegur mögu-
leiki sem sé kleift að gera að
veruleika. Framboðslisti aust-
ftrsku samfylkingarinnar verður
tilbúinn á næstunni og verður
kynntur 5. desember, fyrstur
austfirskra framboðslista.
Slippfélagið
Málningarverksmiðja
SIMI: 588 8000