Austurland


Austurland - 03.12.1998, Side 3

Austurland - 03.12.1998, Side 3
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 3 Eru Austflrðingar að sklptast í tvær fylkingar? Um helgina var haldinn fundur Félags um verndun hálendis Aust- urlands. Einn dagskrárliður fundarins var erindi Sigurborgar Hannesdóttur; athyglisvert erindi þar sem m.a. bent var á öfgana sem komnir eru í umræðu um virkjanir og stóriðjumál. Austurland hitti hana að máli og ræddi aðeins um þessa hlið málsins. Umskiptin: „Upp á síðkastið hafa orðið ótrú- leg umskipti í umræðu um þessi mál, bæði hér fyrir austan og á landsvísu“, sagði Sigurborg í samtali við blaðið. „Þegar við skoðum það nánar, er greinilegt að andstöðuraddir við virkjanir norðan Vatnajökuls og frekari stóriðju Islendinga, verða stöð- ugt fleiri og háværari. Með því að andstaðan verður fyrirferðar- meiri, hefur margt breyst í umræðunni hér fyrir austan. Það er gagnrýnt að umræðan skuli hafa færst suður - sem hljómar eins og við Austfirðingar ættum að geta ráðið ráðum okkar um þessi mál, án þess að það komi öðrum landsmönnum nokkuð við. A sama tíma hefur umræðan orðið persónulegri. Þó svo að um 30% Austfirðinga séu andvígir áformum um virkjanir og stóriðju, eru það tiltölulega fáir einstaklingar sem hafa lýst and- stöðu sinni eða efasemdum opin- berlega. Þetta fólk hefur m.a.s. mátt sæta árásum á persónu sína og starfsheiður og því er legið á hálsi að vilja ekki framfarir í fjórðungnum. Og hvernig til- finning er það? Allt í einu ferðu að velta því fyrir þér hverjir séu „óvinir" þínir. Kunningjar sem áður heilsuðust í Kaupfélagi Héraðsbúa, eru hættir að heils- ast, ef þeir eru á andstæðri skoð- un. Það verða vinaslit". Hvar? „Líklegt þykir mér að þetta sé Varðandi uppkaup húsa í Neskaupstað Um alllangt skeið hefur verið unnið að því að kaupa upp íbúð- arhúsin vestan Urðarteigs við Strandgötu og Naustahvamm, 5 íbúðarhús og eina verbúð, sem þátt í snjóflóðavörnum. Vegna þessara uppkaupa fór fram mat á eignunum og voru matsmenn tveir, einn frá Ofan- flóðasjóði og einn frá bæjarfé- laginu. Eigendur einbýlishús- anna hafa lýst óánægju með nið- urstöður matsins og óskað eftir því að það verði endurskoðað. Eigendur þriggja húsa hafa alfarið neitað að selja hús sín fyrir það verð sem þeim hefur verið boðið en tveir hafa þegar selt þau. Undimtaður hefur samkvæmt samþykktum bæjarstjórnar unn- ið að því að reyna að finna ein- hverja lausn í þessu máli og nú hefur Ofanflóðasjóður fallist á að matsmenn endurskoði matið m.t.t. söluverðs húsa í öllu sveitar- félaginu. Nokkurs misskilnings virðist gæta meðal fólks vegna viðtals sem Ríkissjónvarpið átti við undirritaðan miðvikudaginn 25. nóvember sl. Var þar spurt hvort eigendur ættu að geta keypt sam- bærilega eign í sveitarfélaginu fyrir það sem þeim væri boðið. Eg svaraði því að þeir ættu að geta það og átti þá við að þeir ættu að fá það fyrir eignir sínar sem dygði fyrir sambærilegum eignum í sveitarfélaginu utan sms Hallormsstað asas »/. e Islenskt að sjálfsögðu hættusvæða. Þannig er andi þeirra laga og reglugerða sem unnið er eftir við uppkaup húsa. Þess vegna eru bæjaryfirvöld að vinna við það að matið verði endurskoðað. Guðmundur Bjamason, bœjarstjóri. ATH! Ekki gleyma að fara með fötin í hreinsun. Við höfum opið virka daga frá kl. 12.45 -16.00 Lækurinn Egilsbraut aðallega að gerast á Héraði. And- staðan er minni niðri á fjörðum og því er þessi hópur andstæð- inga ekki eins mikil „ógn“ og umræðan því ekki eins hörð. Annarsstaðar í fjórðungnum (sunnan Breiðdalsvíkur og norð- an Seyðisfjarðar) er andstaðan ekki eins virk, þó könnun Gallup bendi til þess að hún sé þar álíka mikil og hér á Héraði“. Tvær fylkingar: „Ég er hrædd um að Austfirðing- ar séu að skiptast í tvær fylk- ingar. Það getur þýtt aukin átök milli Héraðs og Fjarða og dregið þar með enn frekar úr möguleik- unum á að fjórðungurinn vinni saman að framfaramálum sínum. Það eitrar mannlegt líf á Austur- landi. Kostur fámennra samfé- laga er nálægðin en ef sú nálægð leiðir til átaka en ekki samvinnu er voðinn vís. Það eitt getur gert stað óbyggilegan jafnvel þó þar sé næg og fjölbreytt atvinna“. Ekki andstæðingar! „Sem einstaklingar og Austfirð- ingar skulum við hafa það í huga að við erum ekki andstæðingar, heldur erum við talsmenn and- stæðra sjónarmiða. Við þurfum verulega að gæta okkar á því að falla ekki í þá gryfju að persónu- gera þessi sjónarmið og stilla einstaklingum upp sem skotmörk- um. Það mun ekki breyta neinu um þá áherslu á umhveiTismál sem við erum að sjá aukast á heimsvísu, en það mun breyta öllu fyrir okkur sent hér búum og okkur sem einstaklinga. Það mun breyta öllu til hins verra. Við getum haft ólíkar skoð- anir á áformum um virkjanir og stóriðju á Austurlandi og þær skoðanir verðum við að virða. Sérstaklega vegna þess að þegar upp er staðið eru það ekki við Austfirðingar sem tökum endan- legar ákvarðanir um hvort eitt- hvað verður af þessum fram- kvæmdum. Að mínu mati er í dag mikilvægast að hafa hugfast, hvar í hópi sem við stöndum, að lyfta umræðunni upp á máiefna- legt plan og varast persónuleg átök. Aðeins þannig getum við staðið vörð um byggð á Austur- landi.“ EftírtAlbAr vcrslcMiir í NcskAvipstAö vcr&A opmr í bcscmbcr scm licr sc^ír: Laugardaginn 5. Laugardaginn 12. Föstudaginn 18. Laugardaginn 19. Sunnudaginn 20. Þorláksmessu 23. Aðfangadag 24. desember frá kl.l 1.00 - 16.00 desember frá kl. 11.00 - 18.00 desember frá kl. 09.00 - 19.00 desember frá kl. 11.00 - 18.00 desember frá kl. 11.00- 16.00 desember frá kl. 09.00 - 23.00 desember frá kl. 09.00- 12.00 ýt< Súnbúðin Hafnarbraut 6. Neskaupstað Sírni 477 1133 0?ö*tclcciAú& S-177 1515 NcxlintipstuA «476143.? Ksunrði Verslunin Kristal LAUFSKÁLINN Nesgötu 3 • 740 Neskaupstað « 477 1212 HRAÐ mynd' Egilsstöðum 8 471-1777 Nú er rétti tíminn til aö velja mynd í jólakortið Hynd Gæðastækkanir eftir [jósmyndum*eFtn mynd Frábær leið til að gera meira úr uppáhaldsmyndunum þínum á fljótlegan og einfaldan hátt/ með Kodakmyndbreytinum Einstök íeið til að stækka 03 hressa upp á gömlu myndimar Kodak Opnunartími: mánud.-fimmtud. kl. 9-12:10 og 12:50-18. Föstud. kl.9-12:10 og 12:50-19. Laugard. kl.10-14.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.