Austurland


Austurland - 03.12.1998, Qupperneq 7

Austurland - 03.12.1998, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 7 Vangaveltur Magnús Ásgeirsson veltir vöngum yfir andstöðu við atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Reykvíkingar komnir saman til að horfa á náttúru íslands í bíó Fyrir forvitnissakir var ég stadd- ur á fundi í Háskólabíó fyrir stuttu þar sem mótmælt var “eyðilegg- ingu hálendisins”. Engin mál- efnaleg umræða var á fundinum heldur eingöngu einhliða áróður sem beint var gegn virkjunar- framkvæmdum. Rangtúlkanir og blekkingar einkenndu fundinn. A fundinum var dreift bæklingi sem á stóð “Verndum hálendi Islands eða/ og hættum að drepa börn - Ein af afleiðingum viðskiptabannsins á írak.” Fyrirgefið þótt ég sjái ekki alveg samhengið þama á milli. “Björgum hálendinu! Gegn eyði- leggingu miðhálendisins!” Bara þessi slagorð misbjóða skyn- sömu fólki. Þarna er gefið í skyn að allt miðhálendið hverfi undir miðlunarlón. Hið sanna er að öll miðlunarlón sem nú prýða land- ið auk lóna vegna Fljótsdals- og Kárahnjúkavirkjunar taka innan við 1% af flatarmáli landsins. Allan fundin voru myndir sýndar á breiðtjaldi af fallegri íslenskri náttúru og jafnvel birtar myndir af ungviði dýra og gefið í skyn að fyrirhugaðar framkvæmd- ir beindust sérstaklega gegn þeim. Þetta heitir að spila með til- finningar fólks og er baráttuað- ferð sem Greenpeace hefur notað með góðum árangri í gegnum árin. Um helgina bámst síðan frétt- ir af því að grænfriðungum hefði borist óvæntur stuðningur (flest erum við umhverfissinnar, en öfgafulla umhverfissinna kýs ég að kall grænfriðunga). Tveir heimspekinemar við H.I. ætla að nærast eingöngu á grænmetis- soði í nokkra daga til að ”mótmæla virkjun hálendisins”. Þetta hlýt- ur að vera ómetanlegur stuðning- ur og gott innlegg í baráttu græn- friðunga! Verst er að Háskólinn virðist styðja þetta “megrunará- tak” með því að leggja til hús- næði undir herlegheitin. Kjarnorkuver í Reykjavík vs. virkjun á Austurlandi? Forsprakki fundarins, Guð- mundur Olafsson, talaði um að íslendingar ættu að nota aðrar leiðir til orkuöflunar en að sökkva landi, en nefndi svo engin dæmi. Hann á kannski við kjamorku- ver, olíu-eða kolaorkuver? Aust- firðingar gætu e.t.v. notað há- hitasvæðið í Kverkfjöllum og byggt þar stórt varmaorkuver, ef menn telja það betri lausn en að nýta vatnsorkuna. I baráttu sinni gegn nýtingu vatnsorku era íslenskir grænfrið- ungar á öndverðum meiði við kollega sína víðast hvar í heim- .. i v ' I ., inum. Eitt meginstef grænfrið- unga í Bandarfkjunum þessa dag- ana er barátta fyrir “green el- ectricity”, þ.e.a.s. rafmagni sem framleitt er með náttúrulegri endurnýjanlegri orku. Þar berjast menn fyrir vatnsaflsvirkjunum og eru að færa fórnir senr gera okkar virkjunarvandamál hlægi- lega smá. Af umræðunni í Banda- ríkjunum má sjá að helsti bandamaður íslenskra grænfrið- unga í baráttunni gegn vatnsafls- virkjunum er olíuiðnaðurinn þar í landi! A fundinum var fullyrt að stóriðja og virkjanir myndu fyrst og fremst hafa þau áhrif á þjóð- arbúið að ferðaþjónusta í hinum dreifðu byggðum landsins myndi minnka. Stöðugt er verið að stilla upp þessum atvinnugrein- um sem andstæðum, eins fáran- legt og það nú er. Eitt starf í stór- iðju skapar a.m.k. eitt starf ann- arsstaðar m.a. í þjónustu ýmis- konar. Ferðamönnum fjölgar ár frá ári. Ekki hefur þeim fækkað í Noregi við virkjanir þar og orku- frekan iðnað. Ekki hefur ferða- mönnum heldur fækkað við virkjanir á Suðurlandi og af hverju ætti þeim að fækka við virkjun á Austurlandi? Þvert á móti myndi bættur aðgangur að hálendinu norðan Vatnajökuls samfara virkjunum fjölga ferða- mönnum á svæðinu. Með hálendisgróðri - gegn hreindýrum? Það kom fram á fundinum ein- kennileg rökvilla í hugmynda- fræði grænfriðunga. Þeir halda frammi sjónarmiðum um vernd- un hálendisgróðurs gegn virkj- unum en nefna svo í næsta orði verndunarrök vegna gæsa og hreindýra. Ég veit ekki betur en að þessar tvær skepnur valdi einhverjum mestu gróðurspjöll- um á hálendinu. Síðan nefna græn- friðungar að svæðið geti verið stórkostlegt ferðamannasvæði. Hvar er vemdunargildið ef það á að hleypa straum ferðamanna inn á svæðið? Gæsirnar og hreindýrin hverfa eins og dögg lyrir sólu ef ferðamenn hópast inn á svæðið og gróðurinn lætur á sjá undir eins. Ekki misbjóða skynsömu fólki með þessari Okeypis smáar Tapað/fundið Grænt og krómað Weltkrone karlmannsreiðhjól í óskilum. Eigandi hringi í síma 477-1578 eða 477-1568 Til leigu Básar í félagshesthúsunum í Neskaupstað. Uppl. ís. 899-8937 hundalógík. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Segið frekar eins og er: Þið eruð á móti virkjunum og atvinnuuppbygg- ingu á landsbyggðinni! Málflutningur um verndun óspilltrar náttúru virðist ekki eiga allstaðar við, a.m.k. ber lítið á þeirri umræðu á höfuðborgar- svæðinu, um að það beri að vernda það litla sem eftir er af óspilltri náttúru þar. Þar er óspilt náttúra notuð undir blokkir fyrir brottflutta landsbyggðarbúa. Það er ljóst að umhverfisum- ræðan er að komast á hættulegt stig og óvíst er hvar hún endar. Margt bendir til að fiskveiðar verði teknar fyrir næst og erlend- is frá heyrast raddir um að þorsk- inn beri að friða. Við þurfum að vera á varðbergi gagnvart öfga- fullum grænfriðungunt því ann- ars endar þetta í sama farvegi og hvalveiðiumræðan. Maðurinn er hluti af náttúr- Klukkan 18 á sunnudaginn hófst árviss Aðventuhátíð í kirkjunni. Eftir bjölluforspil bauð sóknar- presturinn, Cecil Haraldsson, fólk velkomið og fagnaði því hversu fjölmennt væri. Hann minnti á traustan og sígildan fagnaðar- boðskap jólahátíðarinnar, sem hvergi væri líklega fagnað jafn innilega og hér á norðurslóðum, þar sem hann brygði kærkomnu ljósi inn í skammdegismyrkrið sem ríkir á þessum árstíma. Einnig minntist presturinn á þá miklu neyð, sem nú ríkir víðs- vegar um heimsbyggðina og mikilvægi þess að styðja við og Orðsending frá Golf- klúbbi Norðfjarðar. Ágætu félagar. Nú er hafin vinna við innréttingar á nýja golfskálanum undir stjórn Árna Guðjónssonar, bygg- ingameistar. Unnið verður alla sunnu- daga frá kl.8.30 til kl 13.00 og stundum á kvöldin á virkum dögum. Þess er vænst að allir þeir félagar í G.N. sem tök hafa á leggi hér hönd á plóginn. Markmiðið er að skálinn verði fullgerður næsta vor. Með golfkveðju Formaður unni rétt eins og önnur dýr. Byggingar mannana eru einnig hluti af náttúrunni rétt eins og maurabú, beit sauðkindarinnar og göng moldvörpunnar eru það. Skynsamleg nýting endurnýjan- legra auðlinda er undirstaða velferðar mannsins. Orka Aust- urlands er okkar auðlind og nýt- ing hennar er umhverfisvernd í þágu alls mannkyns. Daglegar ferðir Neskaupstaður s. 477 1190 Eskifjörður s. 476 1203 Reyðarljörður s. 474 1255 Viggó £ Vöruflutningar 0)477 1190 styrkja hjálparstarf Þjóðkirkj- unnar og annarra, sem reyna að leggja líkn við þraut þeirra sem þjást - og benti á að margt smátt gerir eitt stórt. Dagskráin hélt síðan áfram og skiptust á Ritningarlestur og söngur, bæði barna og kirkju- kórsins. Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður, talaði um jólin, bæði jól bernsku sinnar hér á Seyðisfirði fyrr á tíð, þegar jóla- sveinsins í verslunarglugga Guðlaugs kaupmanns á Öldunni var beðið með eftirvæntingu og bar saman við þau jól sem tíðk- ast í nútíðinni. Líklega lýsa bernskujólin fegurst í huga flestra, þrátt fyrir allt. Hópur barna úr tíu til tólf ára bekkjum - TTT hópurinn - llutti helgileik, sem byggist á og lúlkar allt jóla- guðspjallið og fæðingu Jesú- bamsins, falleg sýning og stór- vel unnin. Síðan var Ijósahátíð, sem börnin framkvæmdu líka með miklum þokka og myndar- skap. Inn á milli þess sem hér er nefnt, var mikið tónaflóð og söng- ur, m.a. söng Rosemary Hewlett og kirkjukórinn og fjölmargir seyðfirskir tónlistarmenn settu sterkt og ánægjulegt svipmót á samkomuna, enda yfirgáfu gest- ir kirkju sína fullir þakklætis með léttu yfirbragði. J.J. fitvinna Aðstoðarmann vantar á Tannlæknastofu Pálma í Neskaupstað Upplýsingar gefur Pálmi f síma 477 1880 og 477 1888 Síðasta ferð fyrir jól er þriðjudaginn 22. desember Ein ferð verður þriðjudaginn 29. desember Fyrsta ferð eftir áramót verður föstudaginn 4. janúar Viggó Vöruflutningar C3) 477-1190 Aðventutónleikar í Neskaupstað Kór Norðfjarðarkirkju, ásamt Bamakór Nesskóla og Norðfjarð- arkirkju, heldur sína árlegu aðventutónleika í Norðfjarðarkirkju kl: 20:30 sunnudaginn 6. desember nk. Á dagskránni verða jóla og aðventulög. Stjómendur kóranna eru Ágúst Ármann Þorláks- son og Elín Jónsdóttir. Undirleik annast Daníel Arason. Að loknum tónleikunum verður boðið upp á kaffi og piparkökur. Aðgangseyrir að tónleikunum eru 1000 kr. Bláa kirkjan þéttsetin á glæsilegri aðventuhátíð

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.