Eining - 01.04.1943, Síða 8

Eining - 01.04.1943, Síða 8
8 E I N I N G MUNIÐ að hugsa vel um garðana í sumar. aldrei hefur riðið meira á því að fá góða og mikla uppskeru. Vinnið garðana snemma og vel, látið út- sæðið spíra hæfilega. Æk Oewbur§t'§ ^jp “Syuko” Látið illgresið engan frið fá. Geríisaumsilki Úðið til varnar myglunni. er löngu viðurkennt fyrir haldgóða endingu. íslenzka Fæst í um 300 litum. irímerkjabókin III. útgáfa nýkomin út. Verð kr. 50.00. Heildsölubirgðir: Fæst hjá bóksölum. G. HELGASON & MELSTED h.f. Gísli Sigurbjörnsson Frímerkjaverzlun, Reykjavík. Reykjavík Þórarinn Magnússon: Hugleiðingar um íþróffir Flestar hinna menntuðu þjóða hafa tekið upp íþróttastarfsemi fyrir eldri sem yngri þjóðfélagsborgara sína með skipulagðri íþróttaþjálfun í borg og byggð, skólum, félögum og vinnuflokk- um. Líkamsþjálfunin er viðurkennt þroska- og menningaratriði á sinn hátt eins og andleg fræðsla er nauðsynleg til þróunar andlegri menningu. Segja má, að hjá okkur íslendingum sé íþróttastarfið á byrjunarstigi, enda þótt einstaka félög séu búin að vinna að líkamsmenningu í nær því 50 ár, þá er það fyrst nú, að ríkið tekur að skipu- leggja íþróttastarfsemi í hinum ýmsu héruðum landsins, skólum og félögum. Með íþróttalöggjöf, skipun íþrótta- nefnda og íþróttafulltrúa ríkisins er hafið nýtt skipulag íþróttamála þjóðar- innar. Enda þótt allmargir gallar séu á skipulagi og íþróttalöggjöf ríkisins, er hitt þó víst, að hér er um mikla fram- för að ræða, sem vonandi á eftir að þróast og endurskapast til fullkomnun- ar og heilla fyrir alþjóð. Allir unnend- ur íþróttamálanna fagna því afskiptum ríkisvaldsins af þessum málum. Fullyrða má, að öll menningarmál eigi sér nokkra andmælendur, sem með margskonar áhrifum og oft miður heið- arlegum aðferðum reyna að rífa niður það, sem aðrir byggja upp, og svo er um íþróttastarfið. Enn í dag hafa ein- staka afturhaldssamir og skammsýnir menn mikla löngun til þess að spilla og kasta rýrð á gildi íþróttahreyfingarinn- ar. Satt er það, að mörg mistök hafa orðið í þjálfun einstaklinga, og því mið- ur hafa nokkrir menn beðið tjón á heilsu fyrir misheppnaða þjálfun og ofurkapp í keppni, en slíkt þarf ekki að rýra gildi íþróttanna. Engum kemur til hugar, að hvetja heilbrigða menn til þess að hætta að neyta hollrar fæðu, þótt f jöldi manna spilli heilsu sinni á ofáti. Líkama mannsins má líkja við vél, sem slitnar við of mikla notkun, en get- ur líka ryðgað sökum vanhirðu og of lítillar notkunar. Vélin þarf góða og ná- kvæma hirðingu, ef hún á að ná fullu notagildi og endast tilætlaðan tíma. Hið sama gildir um líkama mannsins. Erf- iðismaðurinn þarf að hafa hollt og gott fæði, nægan og reglubundirm svefn og hvíld; einnig góða líkamsræstingu og léttar og mýkjandi líkamsæfingar til viðhalds hreysti og jafnvægi líkamans. Menn, sem lítið erfiði stunda daglega, þurfa, auk hinna léttari og mýkjandi æfinga, einnig áreynslumeiri íþróttaæf- ingar. Markmiðið er: íþróttir við allra hæfi. En afleiðing almennrar þjálfunar verður framhaldsþjálfun til afreka fyr- ir einstaka menn og flokka. Því fullkomnari, sem hin almenna íþróttaþjálfun hverrar þjóðar er, því fleiri afreksíþróttamenn elur hún upp. Afrek íþróttamanna og fjöldi þeirra er því mælikvarði annarra þjóða á menn- ing hennar. Það er staðreynd, að andlega og lík- amlega þroskaður maður leysir lífsstarf sitt betur af hendi en hinn, sem vanbú- inn er að líkams- og sálarþroska. Þetta gildir og um þjóðfélagsheildina. Nú er vetur að kveðja og nýtt sumar að heilsa. Á liðnum vetri hafa margir iðkað íþróttir eftir getu, og eru því vel búnir undir erfið sumarstörf og íþrótta- afrek. En því miður eru þeir víst fleiri, sem eytt hafa frístundum sínum í veit- inga- og kaffihúsum í miður hollum fé- lagsskap og eru því að meira eða minna leyti lamaðir á sál og líkama. Slíkir menn þyrftu að athuga sinn gang og bæta ráð sitt, notfæra sér hina mörgu möguleika, sem sumarið veitir hverjum manni til að endurlífga og efla líkama sinn og sál. Þeir ættu og að notfæra sér hollan félagsskap til slíkrar endurnýj- unar. íþróttaleiðtogar og íþróttafélög! Lát- ið starfsemi ykkar ná til allra, með al- menna þjálfun fyrst og fremst fyrir augum. Munið, að afleiðing hinnar al- mennu þjálfunar er: þroskað þjóðfélag og fleiri og meiri afreksmenn. ísafoldai’prentsmiðja h.f.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.