Eining - 01.10.1947, Qupperneq 6
6
E I N I N G
\
var vígð árið 1156 og hafði risið ein-
mitt á bletti þeim þar sem áður stóð
hið forna og fræga musteri heiðninnar.
Konungi Svía, EiríJci helga, er eignuð
framkvæmd þessarar kostnaðarsömu og
miklu kirkjubyggingar. Hann leið písl-
arvættisdauða 1160. Jarðneskum leifum
hans var síðar komið fyrir í dómkirkj-
unni. Hann var tekinn í dýrðlingatölu.
Hundrað árum eftir dauða konungs-
ins brann kirkjan og þá var henni val-
inn hinn nýi staður, þar sem hún nú
er í Nýju-Uppsölum. Grundvöllur henn-
ar var lagður um miðja 13. öld og var
ekkert smáræði, því að enn er hún
stærsta dómkirkjan á Norðurlöndum.
Það var erkibiskupinn Laurentius, sem
gekkst fyrir þessari endurreisn kirkj-
unnar. Hún er byggð í frönskum-gotn-
eskum stíl. 1287 komu listamenn frá
París til að skreyta kirkjuna, en kirkju-
byggingin stóð yfir í 150 ár. Hún var
vígð 1435 og helguð hinum heilaga
Lawrence og hinum tveimur dýrðlinga-
konungum Norðurlanda, Eríki helga,
Svíakonungi og Ólafi helga Noregskon-
ungi.
Hvað eftir annað hefur þetta guðs-
hús orðið fyrir stórbrunum, 1702 allra
verst, þá féll kirkjuturninn og kirkjan
eyðilagðist að mestu leyti að innan. Þar
fór mest allt hennar miðaldaskraut.
Aðeins litlu einu varð bjargað. Samt
eru enn í henni um 30 grafhellur frá
miðöldum og enn er hún markverðasta
miðaldabyggingin í Svíþjóð.
Lengd kirkjunnar, utanmál, er 118,7
metrar, en innan 107, breidd innan 45
metrar. Sjálf miðhvelfingin er 27,3
metrar, en turnhæðin er hin sama og
lengd kirkjunnar, 118,7 metrar. Upp
að kirkjuklukkunum eru 178 tröppur,
en hæst upp í turninn eru 464 frá jörðu.
Af fimm klukkum kirkjunnar er ein
stærst og vegur 7 þungalestir (tons).
í kirkjunni eru minnst 17 kapellur,
sem kalla mætti eins konar grafhvelf-
ingar, en auk þess fleiri deildir. í öll-
um þessum kapellum og deildum eru
mikil hagleiksverk. Á bak við háaltarið
er silfurkista hins heilaga Eiríks, varð-
veitt í járnumgerð. Vísindamenn hafa
skoðað nokkrum sinnum í þessa silfur-
kistu og athugað bein konungs og elztu
konungakórónu Svía, sem er 800 ára
gömul. Kista hins heilaga Eiríks var
flutt í nýju dómkirkjuna 24. janúar
1273. (Heimildarrit: Leiðarvísi um
Uppsala dómkirkju, eftir guðfræðidokt-
or Mats Aamark).
Síðasti erkibiskupinn, sem jarðsettur
hefur verið í dómkirkju Uppsala, var
hinn ágæti og víðkunni kirkjuhöfðingi
Svíanna, Nathan Söderhlom. Hann dó
12. júlí 1931.
Þegar lokið var að skoða dómkirkj-
una, skipti mannfjöldinn sér á tvo staði
til að snæða miðdagsverð. Þar sem ég
lenti stendur veitingahúsið á ofurlítilli
eyju og er þar fagurt. Þar sameinaðist
svo allt ferðafólkið síðdegis og fór með
nokkrum skipum aftur til Stokkhólms.
Það er fögur og skemmtileg siglinga-
leið. Dagurinn var orðinn bjartur þráð-
ur í ævisögu okkar, sem tókum þátt í
förinni.
Bindindisstar f semi
í Englandi.
Góðtemplarareglan er tiltölulega liðfá
í Englandi, en landssamband bindindis-
manna — The National Temperance
Federation telur þrjár milljónir félaga.
Formaður þessa sambands, sir Robert
Young, sem er brezkur þingmaður,
sagði á síðasta ársþingi sambandsins,
að í landinu væri vaxandi áhugi fyrir
bindindismálinu, það sýndu meðal ann-
ars hin mörgu bréf, sem þingmönnun-
um bærust frá kjósendum viðvíkjandi
áfengisverzluninni og mótmæli gegn
allri rýmkun á því sviði.
Sama sagan hvarvetna
\
í skýrslu um bindindismál í Lögbergi
17. júlí 1947, segir meðal annars þetta:
„I Manitobafylki var eytt fyrir áfengi
$20,267,473 á árinu 1946. Það er $28,13
á hvert mannsbarn í fylkinu. Það væri
nægilegt fyrir 201 pott af góðri mjólk
á mann“.
Þá segir blaðið að rannsóknarstofn- *
unin American Businessmen’s Research
Foundation upplýsi það 1947, að „fyrir
hvern dollar sem eytt sé fyrir áfengi
verði ríkið að greiða 88 cent til að end-
urbæta það, sem aflaga hefur farið (af
völdum áfengisins) ... Tímaritið Life
telur áfengi í Bandaríkjunum hið f jórða
hættulegasta, erfiðasta og mesta vanda-
mál þjóðarinnar". (
f sömu grein er bent á, að nú drekki
konur líka, en þar sem það séu þær,
sem eigi helzt að annast um siðgæði og
heimilislífið, þá séu börnin og ungling-
arnir í hættu. Mörg morð hafi komið
fyrir dómstólana í Manitobafylki árið
sem leið, yfirfullt sé í fangelsunum, og
þó geti konur fengið sig til að krefjast
þess, að Manitobafylki setji upp sér-
stakar bjórstofur fyrir þær, líkt og gert *
hafi verið í Ontario.
Hér á árunutn lofuðu andbanningar
og Hófsemdarfélagið í Canada öllu
fögru, ef bannlögin yrðu afnumin. Nið-
urstaðan hefur orðið allt önnur þar,
eins og víðar.
Skrítin sjón. ^
„Undarlegar verur“, segir eitt norskt blað,
„með rjúkandi stöngul í rauðmáluðum munni“.
Dómkirkjan í Uppsölum
Gengið um borð i skemmtisnekkju lil heimferöar úr Uppsalaförinni.
i