Eining - 01.10.1947, Side 9
t
E I N I N G
9
■ »
<
Ég vil fá þeim ungmenni fyrir höfðingja, og smásveinar
skulu drotna yfir þeim. Og á meðal fólksins skal maður manni
þrengja, ungmennið mun hrokast upp í móti öldungnum og
sKrílmennið upp í móti tignarmanninum. Þegar einhver þrífur
í bróður sinn í húsi föður síns og segir: „Þú átt yfirhöfn, ver
þú stjórnari vor, og þetta fallandi ríki skal vera undir þinni
hendi“, þá mun hann á þeim degi hefja upp raust sína og
segja: ,,Ég vil ekki vera sáralæknir, og í húsi mínu er hvorki
til brauð né klæði, gerið mig ekki að þjóðstjóra". Því að Jerú-
salem er að hruni komin og Júda er að falla, af því að tunga
þeirra og athæfi var gegn drottni, til þess að storka dýrðar-
augum hans. Andlitssvipur þeirra vitnar í gegn þeim, og þeir
gera syndir sínar heyrum kunnar, eins og Sódóma, og leyna
þeim ekki. Vei þeim, því að þeir hafa bakað sjálfum sér ógæfu.
Heill hinum réttlátu, því að þeim mun vel vegna, því að þeir
munu njóta ávaxtar verka sinna. Vei hinum óguðlega, honum
mun illa vegna, því að honum mun goldið verða eftir tilgerð-
um hans. Harðstjóri þjóðar minnar er drengur, og konur
drottna yfir heiini. Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afleiðis
og villa fyrir þér veginn . . . Drottinn gengur fram til dóms
gegn öldungum lýðs síns og höfðingjum hans: „Það eruð þér,
sem etið hafið upp víngarðinn, ræntir fjármunir fátæklinganna
eru í húsum yðar“. Jesaja, 3, U—1U.
Hva5 segja menn um
Fyrir skömmu barst ritstjóra blaðs-
ins bréf frá manni í nágrenni Reykja-
víkur. Þar segir svo:
„Ég undirritaður hef safnað 12 á-
skrifendum að blaði yðár Einingu og
get séð um innheimtu fyrir blaðið, ef
þér viljið . . . Ég þakka hjartanlega fyr-
ir blaðið og allt, sem í því er. Það er
meira virði fyrir innra manninn, en
margar 10 krónur fyrir hinn ytri“.
Ungur námsmaður skrifar:
Herra ritstjóri. Ég hef verið í skóla
tvo undanfarna vetur og komizt í kynni
við blaðið Einingu. Ég hafði ekki lesið
mörg blöð, en með eftirtekt og aðdáun,
er ég ákvað að gerast kaupandi blaðs-
ins . . . Ég ann af alhug þeim málstað,
sem blaðið fjallar um og vildi að það
gæti orðið útbreiddara, en ég hygg að
það sé“.
Þá segir hátemplar, Oscar Olsson, í
skýrslu sinni, sem gefin er út bæði á
sænsku og ensku:
„Eining er eitt hið glæsilegasta rit,
sem Góðtemplarar um heim allan gefa
út, einnig hvað snertir myndir og allan
frágang. En blaðið er auðvitað, eins og
önnur hin stærri rit bindindismanna á
Norðurlöndum, sannkallað menningar-
rit“.
Prestur nokkur, sem enginn mundi
saka um yfirborðshátt eða hneigð til
að skjalla menn, skrifar á þessa leið:
„Ég held að ekkert íslenzkt blað sé
eins hreinskilið og Eining, ekkert eins
eggjandi til umbóta og dáða, né eins
„inspírerandi“ á leiðum andans og lífs-
ins dýpstu sannindi. Þetta eru engir
gullhamrar, heldur aðeins eins og séð
frá mínum bæjardyrum".
Ritstjóri blaðsins þakkar öll þessi vin-
samlegu og góðu orð velviljaðra manna.
En ýmsum mun þykja þar of mikið sagt.
Fundur presta og
kennara norðanlands
Dagana 20. og 21. sept. s. 1. sat rit-
stjóri Einingar fund presta og kennara
norðanlands. Fundurinn var á Akur-
eyri og var sá fimmti í röðinni. Upp-
runalega fóru þessir fundir af stað sem
fundir presta, kennara og annara á-
hugamanna um trúar- og menningar-
mál. Þeir hafa þegar markað spor, sem
koma mun í ljós í sögu þjóðarinnar á
sínum tíma.
Aðal umræðuefni fundarins var að
þessu sinni þegnskapur. Fannst fund-
armönnum full þörf á að ræða það efni.
Samþykktar voru allmargar tillögur.
Þar á meðal um nauðsyn á utanferðum
presta og kennara, þeim til aukins
þroska og menntunar, um endurheimt-
un fornra íslenzkra skjala og handrita
úr erlendum söfnum, um fágun skemmt-
ana- og samkvæmislífs þjóðarinnar, að
bönnuð yrðu pólitísk æskulýðsfélög
unglinga innan 18 ára aldurs, um nauð-
syn á stjórnlagaþingi og nýrri stjórnar-
skrá, um þegnskap og þjóðhollustu til
tryggingar fjárhagslegu sjálfstæði þjóð-
arinnar, sókn gegn áfengisneyzlunni,
þörf á sterkum kristilegum áhrifum á
uppeldi æskulýðsins í landinu og endur-
vakinni heimilisguðrækni.
Fundurinn vottaði Sigurði Guð-
mundssyni skólameistara virðingu og
þökk, er hann nú lætur af giftusamleg-
um störfum við Menntaskólann á Akur-
eyri.
Öll mál voru rædd af miklum áhuga
og í mesta bróðerni, og bendir allt til
þess, að fundir sem þessir, geti haft
mikla þýðingu og látið margt gott af
sér leiða. Presta- og kennarastétt lands-
ins þarf að efla samstarf sitt um far-
sælt uppeldi ungu kynslóðarinnar og vel-
ferð þjóðarinnar.
Til kaupenda blaðsins
Kæru kaupendur Einingar. Nú sígur
ört á síðari hluta ársins. Margir hafa
þegar gert hreint fyrir sínum dyrum,
en þeir eru þó fleiri, sem enn eiga ó-
greitt blaðið þetta ár.
Það er afgreiðslunni ómetanlegur
léttir, ef kaupendur blaðsins senda
greiðslu án þess að kosta þurfi til inn-
heimtu, sérstaklega í strjálbýlinu.
Blaðið kostar enn 10 kr. eins og á með-
an það var aðeins 8 blaðsíður, en það
reiðir sig á skilvísi kaupendanna. Það
kemur til ykkar minnst 11 sinnum á
ári, en þið þurfið að senda því greiðslu
einu sinni.
Gleymið svo ekki að tilkynna bústaða-
skipti, þegar þau verða, eða ef um van-
skil er að ræða. Sendið blaðinu greiðslu
og útvegið því nýja kaupendur.
Vinsamlegast og virðingarfyllst,
Pétur Sigurðsson.
Frá héraðsfundi
V.-ísaf j arðarsýslu
Fundurinn harmar það, að á þessum
alvörutímum í áfengismálum þjóðar-
innar hafi á löggjafarþinginu komið
fram tillaga um aukin vínveitingaleyfi.
Fundurinn fagnar áhuga og aðgerð-
um kvenþjóðarinnar í landinu til áfeng-
isvarna og heitir á alla bindindisvini
að fylkja sér um það mál.
Fundurinn skorar eindregið á þing
og stjórn að láta lögin um héraðabönn
koma tafarlaust til framkvæmda.
Fundurinn skorar á næsta Alþingi
að samþykkja tillögur þær, er fram
komu í bindindisátt á síðasta þingi, m.
a. tillögu um að banna vínveitingar í
veizlum ríkisins.
Ráðvendni
En það, sem skelfir mig, er þetta,
að ráðvendnin er orðin fremur úrelt
hjá okkur, að margir finna að henni
einhvern keim af vitsmunasljóleik, og
fjöldi manna trúir ekki á hana, af því
að innri gallar þeirra láta þá dæma
aðra eftir þeim sjálfum.
C. Wagner, — Manndáð.