Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.02.1933, Blaðsíða 1
ÍÉLAGSRIT SLÁTURFELAGS SUÐURLANDS
1- árg. Reykjavík, febr. 1933. 2. tbl.
Verðframfærsla.
Þegar horfi'ð var frá því árið 1924, að halda eftir
Vb hluta hins áællaða fjárverðs að haustinu, eins og
gert hafði verið jafnan áður, var í þess stað ákveðið
að halda aðeins eftir y10 liluta fjárverðsins, en selja
kjöt í heilum kroppum 10 aurum liærra hvert kgr., en
það var áætlað i innkaupi. Ákvæðinu um % o hluta
hefir síðan verið brejrlt í: slátrunarlaun, tillög til sjóða
og 3% sölulaun til félagsins. En 10 aura verðframfærsl-
an hefir haldist óbreytt þar til síðastliðið haust (1932).
Akvæðinu um 10 aura verðframfærslu á kgr., jafnt
hvort i hlut áttu einstaklingar, scm lceyptu einn kropp,
eða verslanir, er keyptu tugi eða hundruð kroppa, var
iajög erfitt að framfylgja. Aukin samkepni um kjöt-
sölu gerði þetta erfiðara með ári hverju. Verslanir
sögðu, sem rélt var, að þeim væri ómögulegt að selja
kjötið fyrir sama verð og þær keyptu það af félaginu,
og kváðust einnig ómögulega geta sclt einstakling-
um það fyrir liærra verð en þeir fengju það fyrir hjá
félaginu í heilum kroppum. Verðlag félagsins, meðan
það var hið sama lil einstaklinga og verslana, réði þvi,
að verslanir gátu aðeins selt kjötið i smásölu, en ekki