Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.06.1933, Side 1
félagsrit sláturfélags suðurlands
1. árg. Reykjavík, júní 1933. 5. tbl.
Fnndargjörð
aðalfundar Sláturfélags Suðurlands, 30. maí 1933.
Þriðjudaginn 30. maí 1933 var setlur og haldinn aðai-
fundur Sláturfélags Suðurlands á Hótel Borg í Reykjavik,
og liófst fundurinn kl. 5 síðdegis.
Mætlir voru á fundinum auk forstjóra, Helgi Bergs,
endurskoðendur báðir, þeir Eggert Benediktsson og Ól-
efur Ólafsson og stjórnarmaður Kolbeinn Ilögnason, cnn-
fremur eftirtaldir aðalfundarfulltrúar:
Fyrir Skaflafellssýslu: Lárus Helgason, stjórnarmaður.
Fyrir Rangárvallasýslu: Guðmundur Þorbjarnarson,
stjórnarm., Guðjón Jónsson og Sæmundur Ólafsson.
Fyrir Ámessýslu: Ágúst Helgason, formaður, Benedikt
Einarsson, Páll Stefánsson og Þorsteinn Sigurðsson.
Fyrir Kjósarsýslu: Björn Birnir.
Fyrir Borgarfjarðarsýslu: Pétur Ottesen stjórnarm.
Formaður Ágúst Helgason setti fundinn og minntist lát-
ins stjórnarmanns félagsins, Einars Jónssonar á Geldinga-
læk. Tóku fundarmenn undir það með því að rísa úr sæt-
um sinum.
Þá nefndi bann til fundarstjóra Eggert Benediktsson,
°g var það samþykt. Ritari var valinn Kolbeinn Högna-
son. —