Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.09.1942, Blaðsíða 1
FÉLAGSRIT SLATURFELAGS SUÐURLANDS
X. árg. Reykjavík, sept. 1942. 2. tbl.
Kjötverð
og útborgun sláturfjárafurða í haust.
Kjötverðlagsnefnd hefur nú ákveðið heildsöluverð á
kjöti í haust, og var það gengið í gildi, þegar slátrun hófst
í Reykjavík að þessu sinni. Sumarslátrun verður því eng-
in. Yerðið er kr. 6.40 pr. kgr. af 1. verðflokk, kr. 6.10 fyrir
2. verðflokk og kr. 5.80 fyrir 3. verðflokk. Ærkjöt lcemur
ekki undir þessa flokka, enda er það ekki verðskráð af
nefndinni.
Ekki byggist verð þetta á markaðshorfum á erlendum
markaði né heldur þvi, að vissa sé fyrir, að allt kjötið selj-
ist innan lands því hvort tveggja er, að ef til þess kemur,
að flytja verði kjöt úr landi, er ekki von á nema mjög lágu
verði fyrir það og, að líkur henda varla til þess, að hin er-
lendu setulið kaupi nú eins mikið af íslenzku kjöti og þau
gerðu s. 1. ár. Verðákvörðun þessi hyggist því fyrst og
fremst á þörf bænda fyrir það, að fá tilkostnaðarverð fyrir
afurðir sínar og því, að síðasta Alþingi befur samþykkt
heimild til ríkisstjórnarinnar til að bæta svo upp verð þess
kjöts, sem út kann að verða flntt, að það verði ekki lakar
úti en hitt, sem selt verður á innlendum markaði.
Sláturfélagið mun vera eina félagið á landinu, sem á-
vallt hefur borgað mestan hluta fjárverðsins út við mót-
töku, strax að liaustinu. Þó að þetta hafi þótt nauðsyn og