Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.09.1942, Blaðsíða 6
30
Félagsrit Sláturfélags Suðurlands
I árslok 1941 eru sjóðeignir félagsins þar með orðnar
samtals kr. 1.318.780.31.
Vörur seldi félagið á lárinu fyrir rúmlega 6 miljónir
króna. Eru gærur frá því liausti ekki meðtaldar, þar sem
þær lágu óseldar um áramót. Sala Ullai'verksmiðjunnar
Framtíðin er heldur ekki meðtalin.
Til nýrra framkvæmda á árinu má telja það, að byggt
var sláturhús á Hellu, keypt sláturhúsið á Rauðalælc og
byggður skúr við húseignir félagsins í Reykjavík.
Starfandi voru allar sömu starfsdeildir og áður. Niður-
suða á kjöti og pylsugerð var með mesta móti.
Sömu söluhúðir voru starfandi, og seldu þær vörur
fyrir samtals kr. 2.065.365.38.
Ekkert kjöt fná félaginu var flutt út á árinu.
Ullarverksmiðjan Framtíðin starfaði á sama liátt og
áður, — en seldi nú prjónavörur, band, lopa og kembingu
fyrir rúinlega 126 þús. kr. hærri upphæð en næsta ár á
undan.
Félagsmenn í árslok eru taldir 2.139.
Guðjón Jónsson kvaddi sér liljóðs og minntist á þá
miklu erfiðleika, sem bændur hefðu átt við að stríða um
sölu sláturfjár, áður en Sláturfélagið var stofnað, og hvern-
ig það liefði stöðugt bætt aðstöðu bænda á félagssvæðinu,
cg væri það fyrst og fremst að þakka hinni ágætu stjórn
félagsins undir forystu Ágústs í Birtingaholti og hinna
tveggja prýðilegu forstjóra, sem félaginu hafa veitt for-
stöðu frá stofnun þess.
Frekari umræður urðu ekki um starfsskýrsluna.
2. Reikningar félagsins:
Forstjóri lagði fram reikningana, en þar eð þeir voru
svo ítarlega skýrðir frá hans hendi á deildafulltrúafund-
inum, voru þeir samþykktir umræðulaust með öllum
greiddum atkvæðum.
3. Kosnir 2 menn í stjórn félagsins í stað Péturs Otte-