Austurland - 14.02.1985, Page 1
Austurland
H JÓL ASTILLIN G AR
Benni & Svenni
© 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 14. febrúar 1985.
fi. tölublað.
Tillaga Halldórs Árnasonar í stjórn Kísilmálmvinnslunnar:
Framkvæmdir hefjist að vori
Ríkið og aðrir innlendir aðilar standi að verksmiðjunni
Á fundi stjórnar Kísilmálm-
vinnslunnar hf. í síðustu viku
flutti Halldór Árnason, fulltrúi
Alþýðubandalagsins í stjórn
verksmiðjunnar, svofellda til-
lögu:
Stjórn Kísilmálmvinnslunar
hf. skorar á iðnaðarráðherra að
leita nú þegar, eða í síðasta lagi
fyrir 15. febr. nk., heimildar
ríkisstjórnarinnar til að hefja
byggingu kísilmálmverksmiðju
Frá Taflfélagi
Norðfjarðar
Um áramótin voru haldin
þrjú skákmót á vegum félagsins.
Úrslit urðu sem hér segir:
Hraðskákmót
í yngri flokki:
Vinningar
1. Þorsteinnn Jóhannsson 11 l 2 3/i
2. Guðjón Guðmundsson 10V5
3. Marteinn Hilmarsson 10
Þátttakendur voru 12.
Jólahraðskákmót:
Vinningar
1. EinarMárSigurðarson ÍVA
2. Eiríkur Karlsson 10Vi
3. Páll Baldursson 10
Pátttakendur voru 12.
Firmakeppni:
Vinningar
1. Grunnskólakennarar
(Eiríkur Karlsson,
Gísli Sighvatsson) 7V5
2. Bæjarsjóður
(Einar Már Sigurðarson,
Stefán Guðjónsson) 7Vi
3. Síldarvinnslan
(Páll Baldursson,
Guðjón Smári Agnarsson) 7
Sl. þriðjudag hófst keppni f
útsláttarmóti félagsins. Fyrir-
komulag mótsins er þannig að
sá sem tapar fellur út úr keppn-
inni, en verði jafntefli heldur sá
áfram sem hefur færri skákstig.
Nk. þriðjudag hefst síðan
skákþing Norðfjarðar, sem er
helsta mót vetrarins, en þar er
teflt um titilinn skákmeistari
Norðfjarðar. Vonast er til að
allir sterkustu skákmenn bæjar-
ins taki þátt í mótinu.
E. M. S.
á Reyðarfirði, á grundvelli gild-
andi laga nr. 70/1982, þannig að
unnt verði að hefja framkvæmd-
ir á komandi vori.
I framhaldi af því verði kann-
aður áhugi innlendra aðila ann-
arra en ríkisins á eignaraðild að
Kísilmálmvinnslunni hf.
í greinargerð með tillögunni
bendir Halldór m. a. á, að
endurteknar athuganir og út-
reikningar á arðsemi verksmiðj-
unnar staðfesti, að hún geti orð-
ið arðvænlegt fyrirtæki.
Eins og fram hefur komið að
undanförnu, er mikil umfram-
raforka í landskerfinu, tvöfalt
meiri en kísilmálmverksmiðjan
myndi nýta og þannig búið að
fjárfesta um 50 millj. banda-
ríkjadala í raforkuframleiðslu,
sem verksmiðjan gæti hagnýtt á
móti 60 millj. dollara stofn-
kostnaði við sjálfa verksmiðj-
una.
„Með þetta í huga og niður-
stöður um væntanlega arðsemi
verksmiðjunnar má ljóst vera,
að veigamikil þjóðhagsleg rök
eru fyrir því að gangsetja hana
sem fyrst,“ segir Halldór í grein-
Sögufélag
F áskrúðsfj arðar
stofnað
Laugardaginn 9. febrúar var
stofnað hér að Búðum „Sögu-
félag Fáskrúðsfjarðar".
Markmið félagsins er að safna
hvers konar fróðleik og heimild-
um ásamt myndum frá liðinni
tíð í því augnamiði að gefa síðar
út sögu byggðarlagsins.
Petta er langtíma verkefni,
þar sem margir verða að leggja
hönd á plóginn.
í fyrstu stjórn félagsins voru
kjörin: Guðrún Einarsdóttir,
Sigmar Magnússon, Sigurður
Gunnarsson, Magnús Stefáns-
son og Páll Ágústsson, til vara
Friðrik Steinsson og Friðmar
Gunnarsson.
Nokkrir undirbúningsfundir
hafa verið haldnir um þetta mál-
efni, en aðalhvatamaður að
stofnun þessa félags er Guðrún
Einarsdóttir, Miðgarði.
Gestur fundarins var Ármann
Halldórsson, Egilsstöðum, sem
gaf mörg góð ráð.
Páll Ágústsson.
argerðinni. íslensk stjórnvöld
þurfi sjálf að meta það út frá
þeim efnahagslegu forsendum,
sem við búum við, hvort rétt sé
að fara af stað með framkvæmd-
ir, en láti það ekki vera komið
undir erlendum aðilum.
í niðurlagi greinargerðarinn-
ar segir orðrétt:
Ekkert er því til fyrirstöðu að
byggja og reka kísilmálmverk-
smiðju án erlendrar þátttöku,
því sýnt hefur verið fram á, að
hægt er á hagkvæman hátt að
afla hráefna, tækniþekkingar og
byggja upp öflugt markaðskerfi
án erlendrar eignaraðildar.
Með því að taka nú ákvörðun
um að hefja framkvæmdir við
verksmiðjuna styrkir ríkisstjómin
stöðu Kísilmálmvinnslunnar hf.
Verksmiðjan gæti þá hafið fram-
leiðslu á árunum 1987 - 1988.
Þá ber að hafa í huga að hinir
hagstæðu samningar sem stjórn
Kísilmálmvinnslunnar hf. gerði
við Demag vorið 1983, um kaup
á búnaði verksmiðjunnar renna
út um næstu áramót (1985/86).
Stjórnarmenn aðrir en Hall-
dór tóku þá afstöðu eftir miklar
umræður á fundinum að fresta
að taka afstöðu til tillögunnar,
en næsti stjórnarfundur í Kís-
ilmálmvinnslunni er ráðgerður
26. febrúar nk. Fyrir þann tíma
mun Stóriðjunefnd ríkisstjórn-
arinnar halda enn einn fund
með bandaríska stórfyrirtækinu
Dow Corning í von um að fá
þar svar við hugmyndum um, að
þessi erlendi aðili kaupi 25%
hlut í verksmiðjunni.
Frá Reyðarfirði.
Töfin á þessu stórmáli í hönd-
um núverandi ríkisstjórnar er
þegar orðin dýrkeypt fyrir þjóð-
arbúið og byggðarlögin hér á
Austurlandi. Því ætti tillaga
Halldórs Árnasonar að fá
óskorað fylgi í stjórn verk-
smiðjunnar og á það reynir
væntanlega fyrir lok þessa mán-
aðar.
Mikil aflaaukning í janúar
Alis bárust til Neskaupstaðar
tæpar 918 lestir af bolfiski í
janúar og er það veruleg aukn-
ing frá því í fyrra en þá bárust
hingað aðeins 320 lestir. Aflinn
sem á land barst skiptist þannig:
Fisktegundir
Kg
Grálúða ............. 126.227
Hlýri ................. 8.587
Karfi ................. 3.011
Keila .................... 80
Lúða ..................... 65
Síld.................. 16.430
Þorskur.............. 636.425
Ufsi................... 5.477
Ýsa................... 33.306
Alls 917.873
Togararnir þrír Barði, Birt-
ingur og Bjartur lönduðu 830
tonnum af þessum afla en tæp
Islandsgangan
Á haustþingi SKÍ, sem haldið
var á Egilsstöðum 9.-11. nóv.
sl. var ákveðið að koma á allt
að 5 trimmgöngum fyrir al-
menning, sem kölluðust einu
nafni fslandsgangan og væri
hver þeira a. m. k. 20 km að
lengd.
Ákveðið var, að mót þessi
færu fram á eftirtöldum stöðum
árið 1985.
16/2áEgilsstöðum
9/3 á Akureyri
23/3 í Reykjavík
13/4 á Ólafsfirði
4/5 á ísafirði
Skógargangan .............25 km
Lambagangan ..............20 km
Þingvallagangan ..........42 km
Lava Loppet . . 10 - 20 - 40 km
Fossavatnsgangan .........24 km
88 tonn bárust á land af smærri
bátum. Afli smábátanna sem
togaranna var mjög góður í
mánuðinum og til samanburðar
má nefna að smábátar lönduðu
aðeins 21 tonni hér í janúar í
fyrra, og þeir voru fáir mánuð-
irnir á síðasta ári sem togararnir
öfluðu betur en nú í janúar.
Þá bárust hér á land rúmar 13
þúsund lestir af loðnu í janúar
en nær engin loðnuveiði var í
janúar í fyrra.
Þannig er ljóst af framan-
rituðu að árið byrjar vel og von-
andi tekst að semja áður en flot-
inn stöðvast vegna verkfalla.
G. 11.
Frá blaðinu:
Aukablað
Sigfinnur Karlsson, formaður
Verkalýðsfélags Norðfirðinga
og forseti Alþýðusambands
Austurlands verður sjötugur
nk. þriðjudag, 19. febrúar.
Af því tilefni kemur út ;tuk;i-
blað af AUSTURLANDI þann
dag, þar sem m. a. birtist opin-
skátt viðtal, sem B. S. hefur ;ítt
við Sigfinn.
Sölubörn eru minnt á að
koma í Nesprent og sækja blað-
ið kl. II10 19. febrúar. Rilstj.
Þátttökutilkynningu skal senda síma á viðkomandi stöðum, á
til viðkomandi skíðaráða en Egilsstöðum í síma 97-1353.
einnig má tilkynna skráningu í Fréttatilkynning.
Félagsvist AB
er í kvöld í Egilsbúð
og hefst kl. 2045
Alþýðubandalagið