Austurland - 21.02.1985, Qupperneq 1
Austurland
35. árgangur. Neskaupstað, 21. febrúar 1985.
HJÓLASTILLTNGAR
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
8. tölublað.
Krakkarnir sem gáfu gjöfina. Talið f. v. Aftari röð: Berglind Porbergsdóttir, Helga Guðnadóttir,
Þóra Jóna Árbjörnsdóttir, Lilja Bára Kristjánsdóttir, Freyja Björk Kristinsdóttir og Sigríður Rósa
Kristinsdóttir. Fremri röð f. v.: Helgi Árbjörnsson, Guðmundur Ragnar Kristjánsson og Pálmi Geir
Konráðsson. Ljósm. Halla Óskarsdóttir.
Færðu dvalarheimilinu gjöf
Níu ungir Eskfirðingar
ákváðu í afmæli hjá einum
þeirra 29. okt. sl. haust að halda
hlutaveltu til styrktar elliheimil-
inu á Eskifirði eða til þess að
þeir gætu gefið elliheimilinu ein-
hverja smágjöf. í upphafi ætl-
uðu krakkarnir að reyna að fá
nóga peninga til þess, að hægt
væri að kaupa spilapakka handa
vistfólkinu. Börnin byrjuðu svo
að safna á hlutveltuna og fóru
um allan bæinn og var mjög vel
tekið á móti þeim. Hlutaveltan
var svo haldin viku seinna og út
úr henni fengust kr. 5.450.-. Pá
var ákveðið að kaupa eitthvað
stærra en spilapakka og var
keypt loftvog með hita- og raka-
mæli.
Börnin afhentu svo gjöfina á
dvalarheimilinu á Þorláksmessu
eða 23. des. sl. og við það tæki-
færi voru meðfylgjandi myndir
teknar. H. Ó. / B. S.
Oddsskarðsmót
Oddsskarösmót í svigi og
stórsvigi í barna- og ungl-
ingaflokkum verður haldið
við Oddsskarð um næstu
helgi. Það hefst kl. 930 laug-
ardaginn 23. febrúar og
verður fram haldið á sunnu-
daginn. Þátttakendurmunu
verða víða að af Austur-
landi.
Frá skíðaráði Þróttar.
Seyðisfjörður:
Góður fundur
Ný lögreglustöð á Seyðisfirði
Sl. laugardag var formlega
tekin í notkun ný lögreglustöð
á Seyðisfirði að viðstöddum
fjölda gesta, þ. á m. fulltrúa
dómsmálaráðherra, Hjalta
Zophaníassyni.
Húsið stendur við Hafnar-
götu, miðsvæðis í bænum og er
hin laglegasta bygging. Arkitekt
þess er Gylfi Guðjónsson, en
byggingameistari Garðar Ey-
mundsson.
Athyglisvert er að upphafleg
kostnaðaráætlun og raunveru-
legur kostnaður er því sem næst
sama upphæð, eða um 5 milljón-
ir króna.
Stærð hússins er 190 fermetr-
ar á einni hæð og virðist öll að-
staða og fyrirkomulag vera góð.
Sigurður Helgason bæjarfóg-
eti ávarpaði gesti og lýsti hús-
inu. Fram kom í máli hans að
ekki myndi annars staðar á
landsbyggðinni, vera aðgengi-
legri eða betri starfsaðstaða fyr-
ir lögreglumenn.
Æði mörg undanfarin misseri
hefur seyðfirska lögreglan verið
á hálfgerðum hrakhólum með
húsnæði og reyndar fauk aðset-
ursstaður hennar, þá í skúrgarmi
á hafnargarðinum, í stórviðri 1.
desember fyrir nokkrum árum.
Bæjarfógeti benti réttilega á
að mikill hluti lögreglustarfa eru
þjónustu- og hjálparstörf og góð
aðstaða stuðlar því aö meira ör-
yggi borgaranna og væntanlega
þá betra mannlífi.
Eru öllum sem nýta og njóta
munu færðar bestu óskir með
þetta framfaraspor.
J. J. / S. G.
Vistmenn á dvalarheimilinu á Eskifirði. Aftari röðf. v.: Friðbergur
Einarsson, Tryggvi Eiríksson og Níels Beck. Fremri röð f. v.:
Hallfríður Beck, Sigurveig Kristjánsdóttir (er með gjöfina), Jó-
hanna Magnúsdóttir og Halldóra Guðnadóttir.
Ljósm. Halla Óskarsdóttir.
Föstudaginn 14. þessa mán-
aðar hélt Alþýðubandalagið al-
mennan stjórnmálafund í
Herðubreið. Á fundinn mættu
formaður flokksins, Svavar
Gestsson ásamt alþingismönn-
unum Helga Seljan og Guð-
mundi J. Guðmundssyni.
Fundinn sóttu tæplega 40
manns og var gerður góður róm-
ur að málflutningi framsögu-
manna. Guðmundur og Svavar
fluttu ræður um stjórnmálavið-
horfið og fjallaði Guðmundur
einkum um launa- og kjaramál
og sýndi fram á hve kaupmáttur
launa almennings er langt fyrir
neðan öll velsæmismörk, enda
sé stjórnarliðið haldið þeirri
þráhyggju að kenna of háum
launum um flest sem aflaga fer
í efnahagsmálum.
Svavar ræddi málin á breiðari
grundvelli, m. a. vaxtafarganið,
sem brennur ef til vill heitar á
landsmönnum en flest annað nú
um stundir. Hann talaði einnig
um neðanjarðarhagkerfið marg-
umrædda, skattsvik, olíusölu-
mál, innflutnignsverslunina og
nýjustu hneykslin á þeim vett-
vangi. Hann benti á að þótt víða
sé maðkur í mysunni hafí ríkis-
stjómin lítið aðhafst til úrbóta í
þessum málum, enda tæpast sam-
staða um annað hjá henni en að
skerða kjör hins vinnandi manns.
Þingmennirnir svöruðu síðan
allir fjölmörgum fyrirspurnum
fundarmanna og lauk góðum
fundi um miðnætti með sameig-
inlegri kaffidrykkju.
J. J. I S. G.
Um blak
Pá er seinni hluti „blakvertíð-
ar“ Próttar hafinn, en leikir
Próttar frá áramótum til mars-
loka verða ekki færri en 24.
Fyrir nokkru var haldið Aust-
urlandsmót í blaki. Fór mótið
hið besta fram og bar þess vitni
að um vaxandi íþrótt er hér að
ræða í fjórðungnum.
Austurlandsmeistari í karla-
flokki varð lið Þróttar en lið
Hugins í kvennaflokki.
íslandsmótið í II. aldurs-
flokki pilta er þegar hafið og
hefur lið Þróttar leikið tvo leiki
í því - báða við lið Laugaskóla.
Þróttur vann báðar viðureign-
irnar 2:1. Voru leikimir hinir
fjörugustu og á köflum mjög vel
leiknir.
í II. deild var keppt um síð-
ustu helgi er KA sótti Þrótt
heim. Leiknum lauk með sigri
KA, 0:3 (11 : 15, 13 : 15,
7 : 15). Voru KA-menn vel að
þeim sigri komnir og sínu frísk-
ari en Þróttarar. Þó náðu okkar
meir' sér verulega á strik bæði
í 1. og 2. hrinu; unnu m. a. upp
1 : 9 forskot KA, en náðu ekki
að fylgja eftir. Hætt er við að
róðurinn verði þungur um næstu
helgi ef ekki tekst að loka há-
vöminni betur og halda út heilar
hrinur, þegar vel gengur.
íslandsmeistararnir leika
í Neskaupstað
Um næstu helgi verða þrír
blakleikir hér í Neskaupstað,
allir við Þrótt frá Reykjavík. Á
föstudagskvöld eigast nafnarnir
við í II. deild (Þróttur R.-B-lið),
en á laugardag í II. aldursflokki
íslandsmótsins fyrst, en síðan
leika okkar menn við I.-deild-
arlið Þróttar R. í bikarkeppn-
inni. Þróttur Rvík hefur undan-
farin ár verið yfirburða blaklið
hér á landi og nú þegar eru þeir
nánast búnir að tryggja sér ís-
landsmeistaratitilinn í 5. skiptið
íröð. Þeireru um þessarmundir
í góðu formi ef marka má úrslit
síðustu leikja. Það væri strákun-
um okkar mikil hvatning að sjá
nú og finna öflugan stuðning
áhorfenda um helgina. öflugt
íþróttalíf er of mikils virði fyrir
unga fólkið til þess að foreldrar
og aðrir megi láta það afskipta-
laust. Blakunnandi.
Félagsvist AB
er í kvöld í Egilsbúð
og hefst kl. 2046
Alþýðubandalagið