Austurland - 16.05.1985, Síða 1
Austurland
Bílasala - Bílaskipti
Vantar bíla á söluskrá
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 16. maí 1985.
20. tölublað.
Neskaupstaður:
Tónlistarhátíð til minningar
um Harald Guðmundsson
s
A Einarsstöðum 1. maí
í tilefni 1. maí hafði Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs opið hús á
Einarsstöðum á Völlum. Þar voru bornar fram ríkulegar veitingar
og nutu menn þeirra bœði inni og svo utan húss, en veðrið var
einstaklega gott þennan dag. Margir notuðu tœkifœrið og fóru í
fjölskyldubíltúr uppeftir, settust út í sólskinið og ræddu málin.
Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs á tvö hús á Einarsstöðum, sem
tekin voru í notkun 1983 og 1984. Ljósm. M. M.
Furðuleg framkoma
Silla NK 42, sem er 8 lesta
bátur, stundar veiðar í þorska-
net um þessar mundir, eins og
margir aðrir bátar á Austfjörð-
um af svipaðri stærð og minni.
Eigandi Sillu er Jón Sigurðsson
í Neskaupstað og rær hann nú
við annan mann á bátnum.
9. maí sl. fóru þeir Jón að
draga net sín undan Skálanes-
bjargi, en þar höfðu þeir lagt
þrjár trossur. Þegar þeir komu
að trossunum, voru straumbelg-
irnir horfnir, en í ljós kom, að
þeir höfðu verið skornir og
stungnir í sundur.
Þeir fundu hins vegar netin
vegna þess, að þarna var
straumlaust og veður gott. Jón
varð svo þegar heim kom að
kaupa sér nýja belgi á trossurn-
ar, en þeir kosta allmikið. Málið
var kært til lögreglunnar.
Þennan sama dag var trossa,
sem Anný frá Mjóafirði átti á
sömu slóðum undir Skálanes-
bjargi, samanvöðluð í einn hnút
og hefir það hvorki gerst af völd-
um veðurs né strauma.
Ljóst er að þessi spjöll hafa
verið unnin af mannavöldum og
er þetta ekki í fyrsta skipti, sem
skemmdir eru unnar á veiðar-
færum báta á þessum slóðum.
Er torskilið, hvaða hvatir liggja
hér að baki og ekki gerir það
verknaðinn skiljanlegri, ef það
skyldu reynast aðrir smábáta-
sjómenn, sem fremdu hann.
Þess má svo geta, að afli smá-
báta frá Norðfirði hefir verið
fremur tregur það sem af er, en
þegar munu um eða yfir 30
smábátar hafa byrjað veiðar frá
Neskaupstað.
Það eru fremur kaldar
kveðjur, sem smábátasjó-
menn fá nú frá stjórnvöldum
í byrjun sumarvertíðar, en
þær eru á þá leið, að veiði-
kvóti smábátanna út júní sé
að fullu veiddur eða því sem
næst. Hlutur Austfjarðabáta
í þeim afla er ekki stór og þeg-
ar þetta er skrifað veit enginn,
hvort nokkur smábátaútgerð
verður yfirleitt frá Austfjörð-
um næstu mánuði - og há-
bjargræðistíminn er skammt
framundan. B. S.
í vetur hafa samverustundir
aldraðra verið í safnaðar-
heimili Norðfjarðarkirkju
annan hvern miðvikudag. Það
eru Norðfjarðarsöfnuður og
kvenfélagið Nanna sem hafa
staðið fyrir þessum samveru-
stundum og notið til þess fjár-
styrks frá bæjarsjóði. Aðsókn
hefur verið góð að þessum
stundum og ýmislegt verið þar
á dagskrá. Kvenfélagskonur
hafa séð um kaffiveitingar af
rausnarskap.
Hópur áhugafólks og Menn-
ingarnefnd Neskaupstaðar
munu efna til tónlistarhátíðar til
minningar um Harald Guð-
mundsson á hvítasunnunni.
Eins og flestir vita var Haraldur
mikilvirkur í tónlistarlífi Nes-
kaupstaðar frá árinu 1955 til
dauðadags og var hann m. a.
skólastjóri Tónskóla Neskaup-
staðar, stjórnandi lúðrasveitar
og stjórnandi kóra auk þess sem
hann stýrði danshljómsveitum
um árabil.
Tónlistarhátíðin hefst kl. 1600
á hvítasunnudag með tónleikum
þar sem fyrrverandi nemendur
Haralds koma fram. Auk
heimamanna munu þar leika
Lárus Sveinsson við undirleik
Guðna Þ. Guðmundssonar, Sig-
urður Þorbergsson, Daníel Þor-
steinsson, Harpa Birgisdóttir og
Ingibjörg Lárusdóttir. Á tón-
leikunum munu einnig leika
Skólahljómsveit Neskaupstað-
ar, Skólahljómsveit Mosfells-
sveitar og Hljómsveit Tónskóla
Fljótsdalshéraðs.
Seinna um daginn verður
boðið upp á veitingar í Egilsbúð
og verður þá leikin viðeigandi
tónlist fyrir gesti.
Lokið er byggingu þriggja
íbúða á vegum stjórnar verka-
mannabústaða á Fáskrúðsfirði.
Hér er um að ræða tvær tveggja
herbergja íbúðir og eina þriggja
herbergja og eru þær fyrsti hluti
af tólf íbúða áfanga sem byggð-
ur verður í tveimur raðhúsum.
Er þetta fyrsta bygging, sem
Á uppstigningardag, 16. maí,
verður síðasta samverustundin
á þessu misseri. Uppstigningar-
dagur er dagur aldraðra í söfn-
uðum kirkjunnar og fer því vel
á því að enda starfið á þeim
degi. Messa verður í Norðfjarð-
arkirkju kl. 14 og síðan kaffi-
veitingar í safnaðarheimilinu á
eftir. Þar verða ýmis dagskrár-
atriði, söngur o. fl.
Aldraðir Norðfirðingar eru
hvattir til þess að koma og njóta
dagsins.
Haraldur Guðmundsson.
Á miðnætti hefst síðan dans-
leikur þar sem Bumburnar
ásamt félögum úr gamla H. G.
sextettinum leika. Á ballinu
ættu allir að fá tónlist fyrir sinn
smekk.
reist er í nýskipulögðu hverfi,
Holtahverfi, innan við núver-
andi byggð.
Verktaki var Þorsteinn
Bjarnason, byggingameistari
Fáskrúðsfirði, en arkitekt húss-
ins er Klaus Hólm, starfsmaður
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Tilboð í næsta hluta voru opn-
uð 23. apríl og buðu fjórir aðilar
í verkið. Stjórn verkamanna-
bústaða mælti með því að tekið
Fyrirhuguð er ljósmyndasýn-
ing í fundarsal Egilsbúðar í
tengslum við tónlistarhátíðina.
Á sýningunni munu verða
myndir úr lífi og starfi Haralds
Guðmundssonar.
yrði tilboði Sævars Sigurðsson-
ar, byggingameistara Fáskrúðs-
firði. Tilboðin eru nú til skoðun-
ar hjá Húsnæðisstofnun.
í þessum hluta verða tvær
íbúðir, fjögurra og fimm her-
bergja. Verða þær sambyggðar
því húsi sem risið er.
Stefnt er að því að fram-
kvæmdir hefjist á næstu vikum
og verði lokið á átján mánuð-
um. M. S.
Ljósm. Albert Kemp.
Frá félagsstarfi aldraðra
Afhending verkamannabústaða á Fáskrúðsfirði