Austurland - 16.05.1985, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR, 16. MAÍ 1985.
Sigurður Gunnarsson, Fáskrúðsfirði:
„Hlauptu heim og sæktu stóra nafar föður þínsu
Um veggöng mill Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar
Mynd 2. Dœmigerl útlit Sandvíkurganga í Fœreyjum.
Mynd 3. Atlas Copco HP170 borvagninn sem notaður er í Leirvík-
urgöngunum í Fœreyjum.
Á síðasta aðalfundi Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi var
samþykkt samhljóða tillaga stjóm-
ar þess efnis að kanna skuli til hlít-
ar hagkvæmni og félagslega þýð-
ingu hugsanlegra jarðganga áður
en varanlegt vegarstæði er ákveð-
ið. Lögð var áhersla á að það
skyldi gert í náinni samvinnu við
heimamenn. Alþingj hefur sam-
þykkt þingsályktun í sama farvegi.
Samgöngumálin eru brenn-
andi umræðuefni á Austfjörð-
um. Vegalengdir eru þar miklar
og bein lína segir lítið til um
fjarlægðir, fjöll og annes meira.
Varanleg vegagerð er skammt
á veg komin og mörgum spurn-
ingum er enn ósvarað um vænt-
anlega gerð hennar.
Eitt af þeim vegarstæðum
sem menn greinir á um liggur
milli Fáskrúðsfjarðar og Reyð-
arfjarðar. Tveir kostir eru til
umræðu: Annars vegar að
byggja varanlega upp og klæða
50 km leið út Fáskrúðsfjörð, fyr-
ir Vattarnesskriður og inn Reyð-
arfjarðarströndina. Vegarstæðið
er víða stórbrotið. Fyrir annesið
liggur það 3 km leið í brattri
grjótskriðu og vegarstæðið inn
Reyðarfjarðarströndina er víða
erfitt og hættulegt.
Hins vegar er rætt um að bora
sig í gegnum Kollufjall í botni
Fáskrúðsfjarðar yfir í Handar-
hald innst í Reyðarfirði. Göngin
yrðu í 130 - 150 m hæð yfir sjó.
Beggja megin er greiðfær leið
aðgangamunnunum. (mynd 1).
í langtímaáætlun Vegagerð-
arinnar er gert ráð fyrir lagningu
varanlegs slitlags með strönd-
inni á árunum 1991 - 1993. Enn
er því nægur tími til að ganga
úr skugga um hvort ekki sé hag-
kvæmara að bora sig í gegn. Hér
er teflt um mikla hagsmuni og
stórar fjárfúlgur. Pað er því
mikilvægt að endanleg ákvörð-
un verði tekin að vel athuguðu
máli.
Ég hef haldið því fram að
ódýrasta leiðin til varanlegrar
vegagerðar milli Fáskrúðsfjarð-
ar og Reyðarfjarðar liggi úr
botni Fáskrúðsfjarðar 5 km leið
gegnum Kollufjall. Máli mínu
til stuðnings bendi ég á eftirfar-
andi:
1. Samanburðarrannsóknir
íslenskra jarðfræðinga benda til
þess að aðstæður til jarðganga-
gerðar á Austurlandi séu mjög
ámóta og í Færeyjum. í niður-
stöðum nýrrar skýrslu um þetta
mál segir orðrétt, „Segja má að
þær jarðfræðilegu aðstæður í
Færeyjum sem lýst hefur verið
hér að framan, séu svipaðar og
sums staðar á Islandi, sérstak-
lega í tertíeru bergi og þar af
leiðandi eru mestar líkur á að
finna sambærilegar aðstæður á
Vestfjörðum, Norðurlandi vest-
an Bárðardals og Austfjörð-
um.“ Þar er því einnig haldið
fram að bergmyndanir neðar-
lega í fjöllum á Austurlandi séu
jafnvel betri til gangagerðar en
færeyskt berg.
Lauslegar niðurstöður jarð-
fræðinga um jarðgangastæðið
milli Fáskrúðsfjarðar og Reyð-
arfjarðar fóru langt fram úr
björtustu vonum heimamanna.
í skýrslum jarðfræðings vega-
gerðarinnar segir „Munnar yrðu
í 130 m í Reyðarfirði og 150 m
í Fáskrúðsfirði. Gangastefna
yrði mjög nálægt stikstefnu og
lægju göngin því að mestu í
sama lagi (eða 2-3 lögum), sem
er allt að 40 m þykkt“. Mjög
líklegt verður að teljast að göng-
in lægju í einu berglagi í gegnum
allt fjallið. Náttúrulegaraðstæð-
ur virðast því vera einstaklega
góðar.
2. Lengdarmeter í einbreið-
um göngum með útskotum
(mynd 2) í Færeyjum kostar til
jafnaðar um 12 þús. danskar
krónur. Engin ástæða er til að
ætla að hann verði dýrari í okkar
tilviki. Heildarkostnaður við
göngin yrði samkvæmt því 60
millj. danskar krónureða innan
við 200 millj. íslenskar. Færey-
ingar nota enga galdra við
gangagerð, heldur fjögurra
arma Atlas Copco borvagn
(mynd 3), sem borar sig áfram
10 - 15 m á dag með tveimur til
þremur sprengingum. Grjótinu
er ekið frá á vörubílum og efnið
nýtist til uppbyggingar á vega-
stæði að gangamunnunum.
Á síðasta ári lét Vegagerðin
gera mjög lauslega athugun á
kostnaði við gerð Kollufjalls-
ganga. Notaðar voru kostnaðar-
tölur frá Oddsskarðsgöngum og
bætt við 40% fyrir ófyrirséðu!
Samkvæmt því ættu göngin að
kosta 600 millj. Reiknað í arð-
semismódeli Vegagerðarinnar
myndu slík göng samt borga sig
upp á um 40 árum miðað við
3% aukningu umferðar á ári.
Oddsskarðsgöng liggja í 800
m hæð yfir sjó í ungu og smá-
sprungnu bergi. Gerð þeirra var
samfelld sorgarsaga. Pau eru
því alls ónothæf til samanburðar
á framkvæmdakostnaði. Merki-
legt er samt að 600 milljón
króna göng myndu borga sig
upp á 40 árum miðað við mjög
hægfara aukningu umferðar.
Búðahreppur hefur nú fengið
Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen til að gera kostnaðar-
áætlun fyrir Kollufjallsgöngin.
Hún er eina verkfræðistofa
landsins sem hefur verulega
reynslu af og þekkingu á jarð-
gangagerð og hefur meðal ann-
ars verkfræðilega umsjón með
jarðgangagerð við Blöndu. Þar
hafa nú verið boruð 900 m göng
og verkinu miðar vel. Kostnað-
aráætlunin tekur mið af því
verki, en tekið er tillit til hag-
stæðari skilyrða í Kollufjalli.
Þó er bætt 20 prósentum við ein-
ingaverð þar sem tilboð í jarð-
göng Blönduvirkjunar er talið
mjög hagstætt. Samkvæmt
þeirri áætlun yrði verktaka-
kostnaðurinn við 5.5 km göng,
5 m breið og 5 m há með út-
skotum á 150 - 200 m millibili
sem hér segir:
Millj. kr.
1. Sprengingar .... 233.7
2. Sprautusteypa . . . 40.0
3. Aðrar styrkingar 10.0
4. Munnar ............. 10.0
5. Akbraut....... 10.0
Samtals 303.7
Hönnun er undanskilin, enda
er hún kostnaðarlega mjög
veigalítill þáttur í slíkri
framkvæmd. Hvorki er reiknað
með loftræstingu né lýsingu.
Með hliðsjón af reynslu Fær-
eyinga og berglögum í ganga-
stæðinu tel ég mjög ótrúlegt að
þörf sé fyrir steypuhúðun í
Kollufjalli og því líklegt að 10
millj. til bergstyrkinga nægi.
Sömuleiðis leyfi ég mér að
óreyndu að reikna með jafn
hagstæðu tilboði í Kollufjalls-
göngin eins og í Blöndugöngin.
í bjartsýnisspá tel ég því rétt að
miða einingaverð beint við
Blöndutilboðið. Samkvæmt því
yrði heildarkostnaður um 220
millj. kr. eða sambærilegur því
sem gerist í Færeyjum.
Jarðgöngin um Kollufjall
myndu stytta leiðina milli Fá-
skrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar
um 37 km. Við meðalaðstæður
kostar uppbygging og klæðning
þjóðvega um 4 millj. pr. km.
Samkvæmt því ættu að sparast
VOD-MJ- 334
84. 01. 0070.'OD
MYND 4
Mynd 1. Valkostir til vegagerðar milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar-
fjarðar.