Austurland - 23.05.1985, Side 1
Austurland
Bílasala - Bílaskipti
Vantar bíla á söluskrá
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur. Neskaupstað, 23. maí 1985. 21. tölublað.
íþróttahúsið á Egilsstöðum
Ljósm. M. M.
Iðnsýning Austurlands ’85
Undirbúningur Iðnsýningar
Austurlands ’85 sem haldin
verður í íþróttahúsinu á Egils-
stöðum dagana 25. maí - 3.
júní, er í fullum gangi. Tíðinda-
maður AUSTURLANDS leit
inn í höllina í síðustu viku. Þar
voru smiðir í óða önn að breyta
íþróttasalnum í sýningarhöll.
Búið var að leggja teppi á öll
gólf og smíði sýningarbása var
hafin.
Undanfarna daga hefur svæð-
ið utanhúss verið lagfært, en þar
verður sýnt á um 500 m2 svæði.
70 fyrirtæki hafa tilkynnt þátt-
Bergsteinn Gunnarsson Iðnfull-
trúi.
í tengslum við iðnsýninguna
verður efnt til ráðstefnu um stöðu
iðnaðar á Austurlandi. M. M.
íþróttasal breytt í sýningarhöll.
töku víðs vegar að úr fjórðungn-
um, en auk þess verður Póstur
og sími þarna með sérsýningu,
sem ber nafnið „Símabúnaður
’85“.
Sitthvað verður gert til að
auðvelda fólki aðgang, verði að-
göngumiða verður mjög í hóf
stillt, þeir verða um leið happ-
drættismiðar og ekki er að efa,
að vinningar verða góðir. Flug-
leiðir munu veita farmiðaafslátt
til Egilsstaða meðan á sýning-
unni stendur.
Eins og áður hefur komið
fram, munu alls konar skemmti-
legar uppákomur verða þessa
daga bæði fyrir unga og aldna.
Ljósm. M. M.
Austfar með allt að þrefalt
lægri farmgjöld en Eimskip
Félagsmerki Sindra
Dómnefnd í samkeppni um
félagsmerki Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Sindra hefur
lokið störfum. Fjölmargar til-
lögur bárust víða af Austurlandi
og voru margar athygliverðar.
Verðlaun hlutu þessi:
1. verðlaun. Kr. 10.000,
Skarphéðinn Þráinsson, Tjarn-
arbraut 21, Egilsstöðum.
2. verðlaun. Kr. 6.000, Hildur
Svavarsdóttir, Blómsturvöllum
35, Neskaupstað.
3. verðlaun. Kr. 4.000, Birkir
Sveinsson, Miðstræti 20, Nes-
kaupstað. Frá Sindra.
Fyrirtækið Austfar á Seyðis-
firði er umboðsaðili fyrir Nor-
röna þar, en auk þess er það
með umboð fyrir skiparekstur,
sem er íslenskt-færeyskt fyrir-
tæki. Þessi fyrirtæki annast
vöruflutninga á milli Austfjarða
og Færeyja, en flutningarnir
byrjuðu fyrir þremur árum og
venjulega er um að ræða þrjár
ferðir í mánuði. Aðallega ann-
ast lítil færeysk kaupskip flutn-
ingana, en á sumrin er flutnings-
geta Norröna nýtt eftir föngum.
Þessum flutningum er fyrst og
fremst ætlað að þjóna Austur-
landi og hafa stöðugt verið að
aukast. Farmgjöld eru að jafn-
aði lægri en annars staðar bjóð-
ast auk þess sem flutt er beint á
móttökuhafnir hér eystra.
Tvö dæmi skulu hér nefnd um
farmgjaldamismun: Fyrirtækið
Fjarðarnet á Seyðisfirði hefur
fengið flutt netaefni frá Noregi
fyrir næstum þrisvar sinnum
lægra verð heldur en kostað
hefði að flytja það með skipum
Eimskipafélagsins. Sama fyrir-
tæki hefur einnig fengið víra
flutta frá Hollandi um Ghent í
Belgíu fyrir helmingi lægra
farmgjald en býðst hjá Eimskip.
Knattspyrna
Um helgina fóru fram þrír
leikir í Norð-Austurlandsriðli 3.
deildar. Úrslit þeirra urðu sem
hér segir:
Leiknir - Einherji 3-0
Þróttur - Valur 1-2
Tindastóll - Austri 1-1
Heil umferð fer fram um helg-
ina og þá leika saman Austri og
Magni, HSÞ og Tindastóll,
Huginn og Leiknir og Einherji
og Þróttur. Allir leikirnir byrja
klukkan 14 á laugardag. Nk.
þriðjudag (28. maí) leika m. a.
saman í þriðju deildinni Leiknir
og Austri og Þróttur og Huginn,
hefjast leikirnir klukkan 20.
Keppni í 4. deild hefst 1. júní
nk. 6 lið af Austurlandi taka þátt
í íslandsmótinu, þau eru:
Lið Þjálfarí
Sindri Albert Eymundsson
Hrafnkell
Freysgoði Þorvaldur Hreinsson
Egill Rauði
Neisti ÞorbjörnBjörnsson
Súlan Ársæll Hafsteinsson
Höttur JónÞórBrandsson
G. B.
Þessi mismunur er skuggalega
mikill og ætti að sýna mönnum
að huga vel að áttum í farm-
gjaldamálum, en á undanförn-
um misserum hefur komið í ljós
að þar er víða maðkur í mys-
unni.
Hagkvæmari flutningsgjöld
eiga fljótlega að skila sér í lægra
vöruverði og kannski er þarna
að finna skýringuna á því hvers
vegna brauð er ódýrara á Aust-
urlandi en annars staðar á land-
inu, en verðlagskönnun upplýsti
okkur um þá staðreynd fyrir
skömmu. J. J. / S. G.
Neskaupstaður:
Fjölsótt sýning í Nesskóla
Sunnudaginn 12. maí var
haldin sýning á skólavinnu nem-
enda í Nesskóla í Neskaupstað
og jafnframt var ýmislegt annað
til skemmtunar einnig.
Skólavinnusýningin var afar
margbreytileg, þar var handa-
vinna nemenda, vinnubækur,
þemaefni, teikningar og föndur-
vinna o. m. fl.
En það voru ekki bara þögul-
ar sýningar, sem gestir gátu virt
fyrir sér í Nesskóla, þarna gaf
að líta lifandi skólastarf. Vide-
ódagskrá úr skólalífinu var í
gangi, flutt var efni af hljóm-
böndum, unnið af nemendum
og gestir gátu gripið í tölvuleiki
og ýmiss konar leikspil.
Þá var opið „verkstæði", þar
sem gestir gátu málað myndir
og var það óspart notað af
yngsta fólkinu og reyndar nokk-
uð stóru líka.
Skólahljómsveit Neskaup-
staðar lék í anddyri skólans und-
ir stjórn Jóns Lundberg.
Uppi þar sem áður var svo-
kölluð „Bláa stofa“ voru nem-
endur með veitingasölu og yngri
nemendur með merkjasölu í
stofu niðri. Allur ágóði rennur
í ferðasjóð nemenda.
Skólinn var smekklega skreytt-
ur og fána- og merkjaskreytingar
utan dyra, sem nutu sín vel í
glampandi sólskini sunnudagsins.
Mikil vinna liggur að baki öllu
þessu og eiga nemendur og
kennarar Nesskóla þakkir skild-
ar fyrir þennan skemmtilega
dag. B. S.
»Eigi skal höggva«
Skógræktarmenn og garðeig-
endur hafa haft miklar áhyggjur
af þeim usla, sem grenimaurinn
eða lúsin hefir valdið á
barrtrjám, svo að þau standa
með brúnum nálum eða barr-
laus og virðast lífvana. Margir
hafa hallast að því, að trén væru
dauðvona og ekki þýddi annað
en fella þau.
Nú er það álit sérfróðra manna,
sem ástæða er til að vekja athygli
á, að trén þurfi alls ekki að vera
dauð, þó að nær allt barr þeirra
sé fallið eða brúnt og sviðið. Þeir
telja, að trén muni ná sér aftur á
nokkrum árum, ef þau verða ekki
fyrir frekari áföllum.
Það er því ástæða til að benda
garðeigendum á að höggva ekki
tré sín, þó að þau sýnist lífvana,
nema að vel athuguðu máli. Þau
bera trúlega sitt barr á ný.
B. S.
Frá blaðinu
Vegna mikils vinnuálags í
prentsmiðjunni kemur næsta
blað út á föstudegi, þ. e. 31.
maí.
Það verður jafnframt síðasta
blað fyrir sumarfrí og skal aug-
lýsendum bent á það sérstak-
lega. Ritnefnd.