Austurland - 23.05.1985, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR, 23. MAÍ 1985.
---------Austurland-------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason,
Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritatjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) S7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir - Pósthólf 31
- 740 Neskaupstað - S7756.
Rttstjóm, afgreióela, auglýelngar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Tilgangsleysi trúðleikanna
Oft hefir þess gætt að undanförnu og það í síauknum mæli,
að virðing manna fyrir Alþingi og störfum þess fer dvínandi.
Menn líta ekki lengur á það sem vettvang, er veiti verðuga
fyrirmynd í grunduðum vinnubrögðum, lýðræðislegum starfs-
háttum og agaðri vinnusemi.
Ef menn hafa ekki tekið undir þessa neikvæðu gagnrýni, hafa
menn gjarnan verið nefndir kerfiskarlar, sagðir samdauna kerf-
inu eða eitthvað álíka.
Frá þeirri skoðun skal ekki hvikað hér, að viðgangi lýðræðis
og þingræðis er það brýn nauðsyn, að Alþingi njóti almenns
trausts meðal þjóðarinnar. Það er hins vegar ekki hafið yfir
gagnrýni og skynsamlegt aðhaid er því nauðsynlegt. Alþingi á
að endurspegla það ástand, sem ríkir í þjóðfélaginu á hverjum
tíma, á að fást við að bæta það, sem miður fer og leggja línur
til betri framtíðar. Þetta tekst auðvitað ekki nema skilvirkur
meirihluti sér fyrir hendi á Alþingi og einstaklingarnir, sem á
Alþingi sitja og ráða ferðinni, séu vanda sínum vaxnir á öllum
sviðum þingstarfanna.
Því miður verður það að viðurkennast, að mikið af þeirri
gagnrýni, sem Alþingi verður nú fyrir, er í mörgum greinum á
rökum reist.
Á þjóðinni og Alþingi brenna nú mörg mál, sem bíða skjótra
og skilvirkra úrlausna. Má þar nefna húsnæðismálin og sérstakan
vanda húsbyggjenda og -kaupenda síðustu ára, sjávarútveginn
og vanda hans, landbúnaðarmálin, efnahagsmál almennt, kjara-
mál og vaxtamál. Allt eru þetta málefni, sem skipta landsmenn
í heild miklu, öll ráðast þau af opinberri íhlutun og í þeim öllum
ber Alþingi að marka stefnuna.
Alþingi stendur að líkindum lengur fram eftir þessu vori en
dæmi eru um áður og skyldu menn því ætla, að það væri að
fást við einhver af framangreindum stórmálum eða önnur
ámóta. En hver er raunin? Svarið er stutt og einfalt - engar
líkur eru á, að nokkurt af þessum mikilvægu málum fái af-
greiðslu á þessu þingi.
Einstakir ráðherrar og aðrir ráðamenn stjómarflokkanna hafa
marglofað afgreiðslu og úrbótum í einstökum málum fyrir þing-
lok svo sem í húsnæðismálunum, en allt slíkt virðist nú eiga að
svíkja ýmist vegna almenns úrræðaleysis stjómarliðsins, sund-
urlyndis í stjómarflokkunum eða stjómleysis á Alþingi.
Á meðan stórmálin, undirstöðumálin, brenna á þjóinni og
komast í æ harðari hnút, dunda alþingismenn sér við það að
þrefa um allt önnur og fj ölmiðlafíknari mál svo sem bjórmál
og útvarpslagamál og enn munu mörg mál ókomin fram, sem
þó er ætlast til, að þingið afgreiði fyrir þinglok.
Auðvitað ber ríkisstjórnin ábyrgð á þessu vinnulagi öllu, sem
einmift stuðlar að dvínandi áliti almennings á Alþingi og störfum
þess, en stjómarandstaðan virðist heldur ekki vera nægilega
skelegg og samstillt til að knýja á um afgreiðslu hinna mikilvæg-
ustu mála. B. S.
Alfreð Guðnason, Eskifirði 70 ára
Alfreð Guðnason. Ljósm. Vilberg Guðnason.
Alfreð Guðnason er fæddur
á Eskifirði 20. maí 1915. Allan
aldur sinn hefur hann átt þar
heima og þar hefur hann í rösk
50 ár verið í fararbroddi fyrir
eskfirsku verkafólki.
19 ára gamall hóf hann störf
fyrir verkamannafélagið Árvak-
ur og enn situr Alfreð í trúnað-
armannaráði félagsins. Hann
hefur allra manna lengst gegnt
formennsku í félaginu eða í 19
ár. Fjölmörgum öðrum trúnað-
arstörfum fyrir félagið hefur
hann sinnt á þessu 50 ára tíma-
bili um lengri eða skemmri
tíma. Fyrstur allra var hann kos-
inn heiðursfélagi Árvakurs
1976. Alfreð hefur verið fulltrúi
Árvakurs á þingum ASÍ oftar
en aðrir. í miðstjórn ASÍ hefur
hann setið einn Austfirðinga, en
þar sat hann tvö kjörtímabil.
Þá var hann forseti Alþýðu-
sambands Austurlands eitt
kjörtímabil. Eins og vænta má
með félagshyggjumann á borð
við Alfreð þá lét hann sveitar-
stjómarmál mjög til sín taka og
hefur átt sæti í sveitarstjóm á
Eskifirði um árabil. Hann var í
hópi þeirra Eskfirðinga, sem
harðast börðust fyrir endurreisn
atvinnulífs á Eskfifirði eftir áföll
heimskreppunnar á fjórða ára-
tug aldarinnar, og lagði með
því undirstöður að því atvinnu-
lífi, sem í dag er kjölfesta
byggðar á staðnum. Það er síð-
an lýsandi fyrir þróun mannlífs
á íslandi, að það atvinnulíf, sem
félagshyggjumenn á Eskifirði
byggðu upp af ódrepandi bjart-
sýni og baráttuhug, skuli í dag
allt vera á hendi einkaaðila, þeir
njóta sjaldnast eldanna, sem
fyrstir kveikja þá.
Alfreð Guðnason er hug-
sjónamaður, einn þeirra sem í
gegnum árin hefur aldrei misst
sjónar á því markmiði, að öllum
mönnm skuli tryggður sami rétt-
ur til gagna og gæða landsins.
Hann er sósíalisti og hefur verið
frá fyrstu tíð og hefur ætíð verið
trúr þeirri köllun, sem frum-
herjar verkalýðsbaráttu og sós-
íalisma settu sér í öndverðu.
Kynni okkar Alfreðs hófust
fljótlega eftir að ég flutti á Eski-
Klrkja
Hátíðarmessa í Norðfjarðar-
kirkju á hvítasunnudag, kl. 10.
f. h. Sóknarprestur.
Sumarblómin
eru komin
Verslun Kr. Lundberg
Neskaupstað S 7179
fjörð 1974, og síðan höfum við
starfað saman á vettvangi verka-
mannafélagsins og innan Al-
þýðubandalagsins, á meðan ég
var húskarl á þeim bæ. Ég tel
mér mikinn ávinning að hafa
notið leiðsagnar Alfreðs og vits-
muna, fáir hafa verið mér heil-
ráðari. Fyrir þessi samskipti og
allt okkar samstarf flyt ég Al-
freð þakkir.
Þrátt fyrir umfangsmikil fé-
lagsmálastörf þá hefur Alfreð
ávallt unnið fullan vinnudag,
um 40 ára skeið var hann starf-
andi sem vélstjóri bæði til sjós
og lands, en nú hin seinni ár hef-
ur hann verið starfsmaður
Pöntunarfélags Eskfirðinga og
þar starfar hann enn. Þess má
geta, að í stjórn þess fyrirtækis
hefur hann verið um árabil. Það
hefur verið mikið lán eskfirsku
verkafólki að eiga Alfreð að
sem talsmann og „oddvita", fyr-
ir það flyt ég honum þakkir og
árnaðaróskir.
Við Sigríður sendum þér hug-
heilar árnaðaróskir á afmælinu
með þökk fyrir samstarf á liðn-
um árum.
HrafnkellA. Jónsson, Eskifirði.
NESKAUPSTAÐUR
Malbik
Þeim húseigendum sem hafa í
hyggju að láta malbika heimkeyrslur
eða annað við hús sín í sumar er
vinsamlegast bent á að leggja
pantanir inn á bæjarskrifstofuna
sem allra fyrst
Bæjarstjóri