Austurland


Austurland - 23.05.1985, Qupperneq 6

Austurland - 23.05.1985, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR, 23. MAl 1985. Vor- og Harðarmót á skíðum 1985 Vormót og Harðarmót Þrótt- ar voru haldin í Oddsskarði 4. - 5. maí sl. Er þá lokið anna- sömu vetrarstarfi skíðaiðkenda og því ekki úr vegi að rekja í stórum dráttum, hvernig starfið hefur gengið fyrir sig í vetur. Snjóleysi í byggð olli verulegri röskun á fyrirhuguðu starfi skíðadeildarinnar og var ekki stigið á skíði fyrr en í janúarlok, en þá var haldin firmakeppni sem er nokkuð stór þáttur í fjár- öflun félagsins. Oddsskarðsmót var síðan haldið í febrúar og sóttu það um 120 keppendur úr fj órðungnum. Á Seyðisfjörð fór 60 manna hópur barna og fullorðinna á Austurlandsmót í Alpagreinum og var sú ferð hin ánægjuleg- asta. Úrslit þessara móta sýndu okkur, hve vel sú tilsögn og þjálfun sem í boði hefur verið og ekki hvað síst öll sú mikla og góða ástundun sem krakkamir hafa sýnt, hefur skilað sér. Þá má ekki hjá líða að minn- ast á Andrésar andar leikana, sem haldnir voru á Akureyri 24. - 28. apríl. Að þessu sinni fóru 28 börn til leikanna ásamt hópi foreldra og hafa ekki farið fleiri keppendur áður til þessara leika frá Neskaupstað. Sá árangur, sem börnin náðu á þessu móti var mjög góður og komu þau heim með 8 verðlaun, þar af tvenn gullverðlaun og höfum við aldrei komið heim með fleiri verðlaunagripi af landsmóti. Þessi árangur og eins sú stað- reynd að tímamunur á þeim börnum sem við áttum í öðrum sætum allt upp í 10. - 12. sæti og þeim sem verðlaunasæti hlutu, var mjög lítill og vakti þetta mikla athygli margra þeirra, sem að skíðamálum starfa víða um land og má segja, að þetta hafi fært okkur heim sanninn um það, að við Aust- firðingar þurfum ekki að vera eftírbátar þeirra Vestfirðinga og Norðlendinga hvað skíðagetu varðar ef kennslu og þjálfun verður fram haldið. Á liðnum vetri sóttu ungl- ingaflokkar Þróttar punktamót á Akureyri, Siglufirði, ísafirði og Unglingameistaramót ís- lands í Reykjavík og var árang- ur þeirra mjög góður. Þá má geta þess, að Birki Sveinssyni var boðið að stunda æfingar í vikutíma með unglingalandslið- inu og hefur slíkt ekki gerst áður í skíðamálum Norðfirðinga. Á liðnum vetri sótti skíða- deild Þróttar um að halda punktamót í unglingaflokki á næsta vetri í þeirri von, að að- stæður til slíks mótahalds yrðu til staðar og er enginn vafi á því, að slíkt yrði ekki lítill ávinning- Keppendur Próttar á punktamótunum 1985. Verðlaunaafliending við nýja skíðaskálann við Óddsskarð. Ljósm. 1. S. Hluti œfingahóps skíðadeildar Þróttar. Ljósm. Ingþór Sveinsson. ur fyrir bæjarfélagið, hvað varð- ar auglýsingu skíðasvæðisins út á viðv hótelhald og margt fleira mætti telja. Að lokum þökkum við þeim, er starfað hafa með okkur í vet- ur og vonumst eftir öflugu sam- starfi á næsta vetri. Þá birtum við hér einnig úrslit úr Vormótinu og Harðarmót- inu. Skíðaráð Þróttar. Stórsvig Stiikar 7 ár» og yipi 1. Freyja Dögg Frímannsdóttir 59.50 2. Sylvía Ómarsdóttir 101.80 DKagr7án«gyagri 1. Daði Benediktsson 53.20 2. Sveinn S. Frímannsson 104.27 Stúlkar 8-9 ára 1. Sigrún Haraldsdóttir 2. Hjálmdís Tómasdóttir 3. Jóhanna K. Malmquist Drengir 8 - 9 ára 1. Grétar Jóhannsson 2. Valur Þórsson 3. Helgi J. Guðfinnsson Stúlkur 10 -11 ára 1. Vilborg E. Jónsdóttir 95.84 2. Þorbjörg Jónsdóttir %.05 3. Vilhelmína S. Smáradóttir %.86 Drengir 10 -11 ára 1. Karl R. Róbertsson 80.78 2. Ari Benediktsson 83.82 3. Hans Jóhannsson 87.58 Stúlkur 12 -13 ára 1. Jóna L. Sævarsdóttir 80.83 2. Anna Ó Sveinbjömsdóttir 86.23 3. Linda B. Ómarsdóttir 91.12 Drengir 12 -13 ára 1. Jóhann Þ. Þórðarson 82.19 2. Einar A. Jónsson 91.37 3. Guðmundur H. Þórsson 92.47 58.45 s 58.71 Stúlkur 7 ára og yngri 59.86 1. Freyja D. Frímannsdóttir 47.23 2. Sylvía Ómarsdóttir 71.24 56.93 Drengir 7 ára og yngri 63.58 1. Daði Benediktsson 40.31 63.65 2. Sveinn S. Frímannsson 61.31 Ingþór Sveinsson, þjálfari Þróttar.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.