Austurland - 15.08.1985, Page 1
Austurland
Viku - Færeyjarferð
Brottför 22. 8.
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 15. ágúst 1985.
28. tölublað.
Frá Reyðarfiröi.
Aðalfundur SSA
29. - 30. ágúst
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi
verður haldinn í íþróttahúsinu
á Reyðarfirði dagana 29. - 30.
ágúst nk.
Fundurinn verður settur kl.
1330 fimmtudaginn 29. ágúst og
síðan munu hinar ýmsu stofnan-
ir og nefndir SSA svo og stjórn
SSA gefa skýrslur sínar.
Síðdegis verða framsöguer-
indi og umræður um:
1. Samstarf sveitarfélaga á
Austurlandi um verk- og
tæknimenntun.
Skýrsla nefndar sem kjör-
in var á vegum SSA til að
fjalla um samstarf sveitarfé-
laga á Austurlandi um rekst-
ur og uppbyggingu kjarna-
skóla iðn- og tæknimenntun-
ar í fjórðungnum.
Framsögumenn: Porvald-
ur Jóhannsson, form. SSA,
Smári Geirsson, skólameist-
ari og Einar Már Sigurðar-
son, skólafulltrúi.
2. „Byggðamálin frá sjónarhóli
heimamanna".
Framsögumenn: Jónas
Pétursson, fyrrv. alþingis-
maður: Samtök um jafnrétti
milli landshluta, Kristinn V.
Jóhannsson, forseti bæjar-
stjórnar Neskaupstaðar:
Valddreifing og stjórn-
skipunin og Sigurður Gunn-
arsson, sveitarstjóri,
Búðum: Verðmætasamskipti
eins byggðarlags.
3. Tölvuþjónusta sveitarfélaga,
framsögumaður Logi Krist-
jánsson.
Seinni fundardaginn verða
nefndarálit afgreidd og kosning-
ar fara fram.
Fundinum lýkur með kvöld-
verði og staðarkynningu. B. S.
Þorsteinn Skúlason, bœjarfógeti í Neskaupstað heilsar Vigdísi for-
seta við komu hennar til Neskaupstaðar 18. júlí. Ljósm. B. S.
Helgi Seljan:
Tvöföldun greiðslna til húsmæðra
Gjarnan er um það getið, sem
miður fer í löggjafarstarfi okkar
eða orkar þar tvímælis, en
minna fer fyrir hinu, sem já-
kvætt er og telja má til ávinn-
inga.
Heldur hefur verið hljótt um
þá réttarbót til handa húsmæðr-
um, sem engar beinar atvinnu-
tekjur hafa, sem náðist fram í
þinglokin varðandi greiðslur
sjúkradagpeninga.
Upphaflegt frumvarp var um
það, að húsmæður skyldu njóta
hámarksgreiðslna, en endanleg
afgreiðsla var breyting úr 14 í
hálfa sjúkradagpeninga - mikil-
vægur áfangi, sem meta ber og
þakka öllum, sem stóðu þar að
lausn.
A tímum Magnúsar heitins
Kjartanssonar sem trygginga-
ráðherra fékkst fram sú dýr-
mæta trygging, að heimilishjálp,
sem fengin væri í veikindatilfell-
um húsmæðra, væri greidd að
verulegum hluta.
Hins vegar mun lítt hafa verið
eftir því gengið mjög víða og
óvíst, að fólk hafi í þessu tilfelli
vitað um ótvíræðan lagarétt
sinn.
M. a. til að vekja athygli á
þeim rétti er þetta greinarkorn
skrifað.
í nefndaráliti heilbrigðis- og
trygginganefndar Efri deildar
frá í vor segir, að nefndin sé
sammála um að beina þeirri
áskorun til þeirra, sem endur-
skoða tryggingalöggjöfina að
huga sérstaklega að fullum
greiðslurétti allra til sjúkradag-
peninga, þannig að mismunun
öll hverfi þar.
Það er líka ákveðin ábending
löggjafans um framhaldið, þó
að stærra skref hafi ekki verið
stigið nú að þessu sinni.
Mikilvægi húsmóðurstarfsins
ætti enginn að efa, viðurkenning
þess í reynd fæst með auknum
réttarbótum húsmæðrum til
handa. Ekki síst gildir það um
ýmis tryggingamál og lífeyrisrétt-
indi þeim til handa. Einnig þar
var áfanga náð í vetur sem leið,
þótt ekki færi mikið fyrir honum.
Sjúkradagpeningar eru í dag
veikur og vanburða hlekkur í
heilbrigðiskerfi okkar. Par þarf
í heild að huga að endurbótum.
Tvöföldun þessara greiðslna
til húsmæðra er einn áfangi af
mörgum, sem vinna þarf að og
ná sem víðtækastri einingu um
réttlátar úrbætur.
Um það ættu allir að geta
sameinast.
Skólahljómsveit Neskaupstaðar lék í lystigarði bœjarins við forsetakomuna 18. júlí. Stjórnandinn
Jón Lundberg lengst til hœgri. Ljósm. B. S.
í Breiðabliki í Neskaupstað 18. júlí.
Þorvarðardóttir.
Frá vinstri Vigdís Finnbogadóttir, Lísil Sigurðsson og Sigurbjörg
Ljósm. B. S.