Austurland - 29.08.1985, Side 1
Austurland
LJÓSA-
STILLINGAR
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 29. ágúst 1985.
30. tölublað.
Verður bónusvinnu í físk-
vinnu hætt 9. september?
Þegar kjarasamningar verka-
lýðsfélaganna voru gerðir í
sumar, var gert ráð fyrir því, að
gerðir yrðu sérsamningar um
bónusvinnu og premíu í fisk-
vinnu og síldarsöltun. Ekki er
enn farið að ræða um laun fyrir
síldarsöltun, en gert er ráð fyrir,
að samningaviðræður hefjist
eftir mánaðamót.
Sigfinnur Karlsson.
Samningaviðræður hafa hins
vegar verið í gangi milli Verka-
mannasambands íslands og
Vinnuveitendasambands ís-
lands um laun fyrir bónusvinnu
og premíu í fiskvinnu. Allirvita,
að laun fiskvinnslufólks eru svo
lág, að óviðunandi er og
vinnuálag er einnig mikið. Fólk
er því að gefast upp á þessari
vinnu og víða vantar fólk orðið
til þessara starfa, svo að til vand-
ræða horfir.
□ AUSTURLAND leitaði
fregna hjá Sigfinni Karlssyni,
forseta Alþýðusambands
Austurlands um gang þessara
mála og spurði fyrst, hvernig
samningaviðrœður hefðu gengið
og hvernig þœr stœðu nú.
■ í júlí voru haldnir fjórir
samnignafundir með fulltrúum
bónusvinnufólks víðs vegar að
- Vestfirðingar eru reyndar ekki
með í þessu - og fulltrúum VSÍ.
Á þessum fundum gerðist
ekkert. Fulltrúar VSÍ fóru fram
á frestun samninga vegna
sumarfría hinna vanalegu
reiknimeistara sambandsins.
Fulltrúar verkafólks gáfu kost á
30 kr. greiðslu á klst. til handa
þeim, sem vinna í bónus og
premíu, meðan á samningavið-
ræðum stæði. Fulltrúar VSÍ
báðu þá um dags umhugsunar-
frest, en er þeir mættu á fund
aftur, tilkynntu þeir, að þeir
samþykktu enga aukagreiðslu
og báðu um frest til 4. septem-
ber.
Það var samþykkt, en það
skilyrði sett, að ef ekki yrði búið
að semja fyrir 9. september,
yrði bónus- og premíuvinna
lögð niður þá og aðeins unnið
eftir tímakaupi.
Nefndarmenn VSÍ vildu held
ég gjarnan gera eitthvað, en er
þeir komu frá höfuðstöðvunum,
var algert nei.
□ Hvernig meturðu samninga-
horfurnar?
■ Á þessum tíma reynir á at-
vinnurekendur, því að þeir
komast ekki hjá að lagfæra kaup
þessa fólks, ef þeir vilja halda
áfram frystihússrekstri.
Við trúum á það, að ekki
komi til stöðvunar og þeir vilji
bæta hag þess fólks, sem vinnur
við fiskvinnu.
□ Hvernig eru atvinnurekendur
á Austurlandi viðfangs?
Stöðvast bónusvinna?
■ Það er trú min, að atvinnu-
rekendur hér á Austurlandi vilji
gera eitthvað fyrir þetta fólk
því til hagsbóta, en þeim sé
haldið niðri af öflum, sem þeir
eru tengdir við og eru í Reykja-
vík.
□ Hverjar eru helstu kröfur um
kjarabœtur?
■ Krafist er hækkaðrar greiðslu
fyrir hverja unna klst. og í bón-
usútreikningunum verði miðað
við fasta nýtingu, sem gerir
kaupið jafnara og vinnuna
mannlegri. Þá er krafist ýmissa
lagfæringa á stöðlum o. fl., sem
starfsfólkinu finnst, að gefi of
lítið nú.
□ Er góð samsataða um bón-
usvinnustöðvunina meðal
verkafólks á Austurlandi?
■ Búið er að kanna þetta í
frystihúsunum hér á Austur-
landi. Já, fólk er samstíga með
að standa að þessum aðgerðum,
ef ekki verður samið fyrir þenn-
an tíma, þ. e. fyrir 9. september.
□ Erfarið að gœta fólksflótta úr
fiskvinnu hér á Austfjörðum?
■ Ég er ekki viss um það, fólk
hefur ekki í neitt annað að fara
- fólk hefur ekkert að flýja.
AUSTURLAND þakkar Sig-
finni spjallið og sendir fisk-
vinnslufólki baráttukveðjur.
B. S.
Framkvæmdir á vegum Seyðisfjarðarkaupstaðar
Eins og sagt hefir verið frá í blaðinu áður, var Hafnarkaffi í
Neskaupstað opnað á ný fyrir mánuði eftir gagngerar breytingar.
Að sögn hinna nýju eigenda, Aðalbjargar Þorvarðardóttur og
Kristins S. Guðmundssonar, fer aðsókn að matstofunni vaxandi
og um síðustu helgi var mjög mikil aðsókn, enda var þá í gangi
sérlega hagstœtt matartilboð, sem auglýst var í AUSTURLANDI
í síðustu viku.
í Hafnarkaffi er hœgt að fá margs konar rétti og hvort heldur
er borða í hinni vistlegu matstofu eða taka þá með sér heim.
Meðfylgjandi mynd tók B. S. fyrir skömmu af hinum nýju eig-
endum Hafnarkaffis í afgreiðslunni.
Fréttaritari AUSTUR-
LANDS á Seyðisfirði náði tali
af Sigurði Jónssyni bæjarverk-
fræðingi á staðnum og bað hann
að greina frá helstu fram-
kvæmdum á vegum bæjarins í
sumar.
Sigurður sagði að verklegar
framkvæmdir hefðu verið með
nokkuð hefðbundnum hætti.
Unnið hefur verið við gatnagerð
og var m. a. skipt um jarðveg
og lagnir í elsta hluta Austur-
vegar. Þá er á dagskrá að leggja
varanlegt slitlag á Gilsbakka-
hverfið. Þar var gerð tilraun
með að leggja klæðningu á safn-
götu, en á botnlanga á að leggja
olíumöl. Útlagningu olíumalar-
innar er ekki lokið, en undir-
búningur er langt kominn.
Heildarlengd þeirra gatna, sem
slitlag verður lagt á í ár er um
1 km.
Sl. haust var 1. áfanga nýja
grunnskólans lokið. Það var
smíðastofan og var kennt í
henni sl. vetur. Nú eru í bygg-
ingu tvær álmur ætlaðar til al-
mennrar kennslu. Unnið er þar
af fullum krafti og skal skila
þeim fullgerðum næsta sumar,
þannig að kennsla geti hafist þar
haustið 1986.
Bygging nýja sjúkrahússins
hófst síðsumars 1977. Heilsu-
gæslustöðinni, sem er á neðri
hæð hússins var skilað fullgerðri
í júní sl., en í þeim útboðsá-
fanga sem er í gangi á eftir að
ljúka við að innrétta apótek og
fullgera loftræstikerfi fyrir þann
hluta sem nú hefur verið tekinn
í notkun. J. J. / S. G.
Góð sala hjá Berki
Börkur NK seldi í Grimsby í
gær 133.750 kg af fiski fyrir kr.
6.178.270. Meðalverð er kr.
46.19 á kg, sem er gott verð.
Börkur fer nú í slipp í
Grimsby og verður þar senni-
lega eina 10 daga.
Neskaupstaður:
Loðnubræðsla hefst um 20. sept.
Samkvæmt upplýsingum Jó-
hanns K. Sigurðssonar mun
loðnubræðsla geta hafist í verk-
smiðju Síldarvinnslunnar hf.
um 20. september.
í sumar hafa staðið yfir miklar
endurbætur á verksmiðjunni.
Er þar um að ræða nýjar skil-
vindur, dælur og forsjóðara og
mikla endurnýjun á rörum.
Þessi endurnýjun tækja miðar
að auknum afköstum, sem ættu
að verða 650 - 700 lestir á sólar-
hring og leiðir einnig til elds-
neytissparnaðar. Jafnframt er
hér um að ræða áfanga í hreinsi-
búnaði til að draga úr mengun,
en vart mun reykur úr verk-
smiðjunni þó verða minni á
komandi bræðsluvertíð en verið
hefir. B. S.