Austurland - 29.08.1985, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 29. ÁGÚST 1985.
---------Austurland------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guömundsdóttir, Guömundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) ©7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir — Pósthólf 31
— 740 Neskaupstað — ©7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
©7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Stéttarvitund bænda eflist
Lengi hafa bændur hér á landi virst vera leiðitamir
ákveðnum stjórnmálaflokkum og hagsmunafyrirtækjum
og sjálfir verið lítt mótandi um málefni stéttarinnar. Nú
virðist sem betur fer örla á breytingum í þessum efnum.
Stéttarvitund bænda er vöknuð og þeim hefir skilist, að
þeir sjálfir verða að berjast fyrir málefnum stéttarinar og
móta stefnuna í landbúnaðarmálum yfirleitt.
Sérgreinasamtök bænda í hinum ýmsu búgreinum,
sem orðið hafa til á fáeinum undanförnum árum, eru
dæmi um þessa stéttarvakningu meðal bænda. Nýjasta
dæmið er stofnun Samtaka sauðfjárbænda.
Landbúnaðurinn er einn af undirstöðuatvinnuvegum
íslendinga og það skiptir miklu, að hann sé rekinn á
sem skynsamlegastan hátt og von er til, að svo verði,
ef bændum tekst að brjóta af sér ok þeirra flokka og
fyrirtækja, sem hafa ráðskast með málefni landbúnaðar-
ins oft að því er virðist með hagsmuni allt annarra en
bænda og neytenda að leiðarljósi. Hagsmunir bænda
og neytenda fara hins vegar hiklaust saman, ef rétt er
á spilum haldið og æskilegt væri, að einhvers konar
samráð gæti komist á milli samtaka bænda og neytenda.
Slíkt frjálst samráð án valdboða hlyti að auka skilning
milli þessara hagsmunahópa.
Offramleiðsla kindakjöts hefir verið vandamál í ára-
raðir og útflutningsbætur eru neyðarúrræði, sem stjórn-
völd hafa beitt til að unnt hafi reynst að flytja eitthvað
af kjötinu úr landi. Á það hefir hins vegar aldrei verið
lögð áhersla í alvöru að selja kindakjöt úr landi á við-
unandi verði. Markaðsöflun er sögð erfið og árangurs-
lítil, en grunur leikur á, að aldrei hafi hún verið reynd
til þrautar og einnig, að við hana hafi átt sér stað ýmiss
konar mistök.
Því verður ekki enn trúað, að ekki sé hægt að selja
íslenska dilkakjötið einhvers staðar í heiminum á viðun-
andi verði, ef að því er skipulega unnið um lengri tíma.
Það hlýtur meira að segja að vera hægt að gera það að
eftirsóttri lúxusvöru - lúxusvöru í neytendaumbúðum,
sem framleidd er við náttúruleg skilyrði án verksmiðju-
framleiðslu og lyfjanotkunar.
Ef nýstofnuðum samtökum sauðfjárbænda tekst
þetta, brjóta þau blað á fleiri en einn hátt í íslenskum
landbúnaðarmálum.
Til þessa þarf hins vegar fjármagn og kunnáttu á sviði
markaðsmála.
Eðlilegt er, að stjórnvöld hjálpi hér eitthvað til og land-
búnaðurinn getur e. t. v. lagt eitthvert fjármagn til sjálfur,
ef fjármálaráðherranum tekst að láta framfylgja íslensk-
um lögum og láta hætta að flytja inn kjöt til varnarliðsins,
en láta það þess í stað kaupa íslenskt kjöt. B. S.
Aðalfundur NAUST 1985
Fundurinn verður haldinn 31.
ágúst og 1. september í Nes-
kaupstað og þeir sem ekki búa
í nágrenni Neskaupstaðar koma
á föstudagskvöld 30. ágúst og fá
svefnpokapláss í kennslustofum
framhaldsskólans.
Á laugardag kl. 9°° verður
farið í skoðunarferð með skipi
út í Norðfjarðarflóa og jafnvel
suður fyrir Horn ef veður leyfir.
Aðrir skoðunarmöguleikar
koma líka til greina svo sem
gönguferðir, en það mun ráðast
eftir veðri og öðrum ástæðum.
Kunnugir leiðsögumenn
munu verða með í ferð. Um
kvöldið kl." 2100 verður kvöld-
vaka í máli og myndum í tram-
haldsskólanum.
Sunnudagur 1. september
Aðalfundur verður settur í
ÁRNAÐ HEILLA
Afmæli
Ólafur Helgi Jónsson, hús-
gagnasmíðameistari, Hlíðar-
götu 32, Neskaupstað, varð 60
ára 24. ágúst sl. Hann er fæddur
í Neskaupstað og hefir alltaf átt
hér heima.
Helga Björgúlfsdóttir, hús-
móðir, Starmýri 23, Neskaup-
stað, varð 60 ára 26. ágúst sl.
Hún er fædd í Neskaupstað og
hefir alltaf átt hér heima.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
fyrrv. húsmóðir og verkakona,
Breiðabliki 4, Neskaupstað,
varð 80 ára í gær, 28. ágúst. Hún
er fædd og upp alin í Reykjavík.
Árið 1932 fluttist hún til Seyðis-
fjarðar og bjó þar til 1958. Þá
flutti hún til Eskifjarðar, þar
sem hún bjó til 1968, en það ár
flutti hún til Neskaupstaðar og
hefir átt hér heima síðan.
Eiginmann sinn, Thorvald
Imsland, missti Guðrún árið
1972.
Guðrún dvelst nú á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað.
Guðrún Magnúsdóttir, fyrrv.
húsfreyja á Berunesi við Rgyð-
arfjörð, nú til heimilis að Hlíð-
argötu 30, Fáskrúðsfirði, verður
70 ára nk. laugardag, 31. ágúst.
Hún er fædd á Hjalla í Ölfusi,
en fluttist með foreldrum sínum
til Vestmannaeyja 1918 og ólst
síðan upp þar. Um 1930 fluttist
hún til Reykjavíkurog hóf síðan
búskap þar, en flutti að Beru-
nesi 1936 og bjó þar til 1978 með
búsetu á Búðum frá 1971.
Eiginmann sinn, Stefán B.
Björnsson, bónda á Berunesi,
missti Guðrún árið 1971.
Guðrún tekur á móti gestum
á heimili sínu og sonar síns og
tengdadóttur að Hlíðargötu 30,
Fáskrúðsfirði, áafmælisdaginn.
skólanum kl. 930 og hefst með er-
indi um náttúruvemdarmál sem
formaður Náttúmvemdarráðs,
Eyþór Einarsson flytur, síðan
verða umræður og fyrirspurnir
um það. Því næst verða hin hefð-
bundnu aðalfundarstörf.
1. Skýrsla stjórnar, 2. reikn-
ingar samtakanna, 3. skipað í
nefndir, 4. ýmis mál, a) má þar
nefna rannsóknir á lífríki
Hjaltastaðarblár, sem þeir Ein-
ar Þórarinsson og Skarphéðinn
Þórisson hafa annast í sumar, b)
bygging radarstöðvar á Gunn-
ólfsvíkurfjalli en um hana munu
vera mjög skiptar skoðanir enda
fjallið á náttúruminjaskrá, c)
önnur mál.
Að umræðum loknum verða
nefndastörf, síðan afgreiðsla
mála og fundarslit.
Þá má minna á skoðun
Náttúrugripasafnsins eftir nán-
ari tímaákvörðun annan hvorn
daginn. Fréttatilkynning.
Fóstra
eða kona vön barngæslu óskast að
Hallormsstað frá miðjum september
Húsnæði og mötuneyti á staðnum
Möguleiki á mikilli vinnu
Nánari upplýsingar
í símum 97-1781 og 97-1849
HAFNARKAFFI
Nætursala
Laugardaginn 31. ágúst höfum við opið í
lúgunni til kl. 4 eftir miðnætti
Hafnarkaffi
Restaurant ® 7320
Neskaupstað
Norðfirðingar - Athugið
Vegna hreinsunar í frystihúsi okkar eru allir
þeir, sem geyma matvæli í frystihólfum,
vinsamlegast beðnir um að tæma þau fyrir
8. september nk.
Kaupfélagið Fram
Neskaupstað
Fasteignir til sölu
Einbýlishús: Blómsturvellir 3
Blómsturvellir 15
Gauksmýri 6
Hesthús: 5 bása hesthús við Vindheim
Söluskrá liggur frammi á skrifstofu
Viðskiptaþjónusta Austurlands hf.
Brynjólfur Eyvindsson hdl.
Valur Þórarinsson
Egilsbraut 11 Neskaupstað S 97-7790