Austurland - 19.09.1985, Side 4
4
FIMMTUDAGUR, 19. SEPTEMBER 1985.
Alyktanir fjórðungs-
þings fiskifélagsdeilda
Stjórnun fiskveiða
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið í
Neskaupstað dagana 13. - 14.
september 1985 leggur til:
1. Að fiskveiðistefnan fyrir árið
1986 verði með svipuðum
hætti og 1985. Þar sem ekki
eru komnar fram hugmyndir
fiskifræðinga um fiskveiði-
stefnu næstu ára, telur þingið
ekki ástæðu til að breyta
fyrra fyrirkomulagi. Þó er
vonast til, miðað við þá
bjartsýni, sem ríkir hjá
ýmsum, að kvóti geti aukist.
Frá smábátahöfninni í Neskaupstað.
2. Þingið ályktar, að gegndar-
lausu moki á smáfiski fyrir
Vestur- og Norðurlandi á
viðkvæmasta tíma ársins
verði hætt og sett verði þak
á veiðarnar á umræddum
tíma, þannig að tryggt sé, að
veiðar og vinnsla haldist sem
best í hendur.
3. Þingið álítur, að misnotkun
á og brask með úthlutaðan
kvóta sé komið út í öfgar og
leggur til, að kaup og sala á
aflakvóta verði í höndum
eins aðila, t. d. LÍÚ.
Greinargerð
Stofnaður verði fiskibanki,
þar sem hægt verður að leggja
inn kvóta til geymslu eða sölu
án þess að vita fyrirfram, hver
kaupir.
Verð á kvóta verði ákveðið af
bankanum, þanmg að sama
verð gildi fyrir alla aðila.
Þá er hægt að hugsa sér, ef
um umfram kvóta verður að
ræða á næsta ári, að hluti af hon-
um renni beint til bankans.
4. Þingið leggur til, að veiðar
smábáta undir 10 brl. verði
eingöngu bundnar við sókn-
armark, þannig að þorsk-
veiðar verði bannaðar í 150
daga á árinu 1986.
Útgerðarmaður ákveði
sjalfur með mánaðar fyrir-
vara sóknartíma sinn fyrir
hvort misseri ársins.
Allar úthlutanir til þorska-
Ljósm.Jóh. G. Kristinsson.
netaveiða verði háðar kvóta,
sama af hvaða stærð bátur er,
sem sækir um leyfið.
Endurnýjun
fiskiskipaflotans
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið í
Neskaupstað dagana 13. og 14.
september 1985 ítrekar enn þá
kröfu, sem gera verður til
stjórnvalda, að eðlilega rekin
útgerð geti borið sig. Með öðr-
um orðum, að fundinn verði
hinn margumtalaði rekstrar-
grundvöllur.
Fundurinn bendir einnig á þá
hættu, sem við blasir, ef útgerð-
um er gert ókleift að grípa bestu
tækifæri sem bjóðast til endur-
nýjunar úr sér genginna skipa,
er endar síðan með því, að yfir
dynur á stuttum tíma flóðbylgja
nýrra skipa. A meðan fiskistofn-
ar okkar eru í þeirri lægð, sem
nú er almennt talið, verði sú
endurnýjun þó ekki til stækkun-
ar flotans.
Greinargerð
Þrátt fyrir margendurtekin
loforð stjórnvalda hverju sinni
um bættan hag þeirra, sem við
sjávarútveg fást, bólar ekki á
neinni hreyfingu í þá veru. Er
nú svo komið að fólk, sem ann-
ars vildi starfa við framleiðslu
sjávarfangs, flýr af vettvangi,
þar sem fiskvinnslu og útgerð er
gert ókleift með vitlausum
fjármálaaðgerðum eða aðgerð-
arleysi stjórnvalda að greiða
þessu fólki það kaup, sem þarf
til þess að koma í veg fyrir, að
þjónustugreinar og ýmiss konar
tilbúnar sníkjugreinar sogi þetta
vinnuafl til sín.
Sinnuleysi ráðamanna um
það að snúa þessari óheilla-
þróun til betri vegar hefur
valdið því, að úrbætur þola nú
enga bið, ef allt á ekki að enda
í einni rjúkandi rúst.
Afkoma sjávarútvegs
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið í
Neskaupstað dagana 13. og 14.
september 1985 leggur enn á ný
áherslu á, að stjórnvöld hlutist
til um, að rekstrargrundvelli
sjávarútvegsins verði komið í
viðunandi horf og fyrirtækjun-
um gert kleift að stunda eðli-
legan rekstur og standa við
skuldbindingar sínar.
Unnið verði að lækkun orku-
verðs, vaxta og annars kostnaðar.
s
Arsrit
Sjálfsbjargar
Sjálfsbjörg 1985, ársrit Sjálfs-
bjargar, landssambands fatl-
aðra er nýkomið út. Ritið, sem
er 66 sfður er fjölbreytt að efni
og má þar nefna viðtal við Reyni
Pétur Ingvarsson, göngugarp á
Sólheimum í Grímsnesi, viðtal
við Örn Ómarsson Ragnarsson-
ar og frásögnina Furðuleg gest-
koma eftir Hálfdan Haraldsson,
skólastjóra á Kirkjumel í Norð-
firði.
Um helgina mun Sjálfsbjörg
á Norðfirði selja ársritið í bæn-
um og sveitinni og einnig endur-
skinsmerki landssambandsins,
en á sunnudaginn er hinn árlegi
blaða- og merkjasöludagur
Sjálfsbjargar. B. S.
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför
Guðmundar Ölverssonar
Matthildur Jónsdóttir, systkini og aðrir vandamenn
HAFNARKAFFI
Föstudagur:
Tilboðsverð á kjúklingum
Laugardagur og sunnudagur:
Rjómalöguð blómkálssúpa
Sítrónumarineraður skötuselur
m/grænmetissalati og hvítum kartöflum
Blandaður kjötréttur m/hrísgrjónum,
kryddsmjöri og salati
Óska eftir fóki til vinnu við
síldarsöltian á komandi vertíð
Söltunarstöðin Máni
Upplýsingar ‘ZS' 7724
Heimasímar: Jón Gu.nn.sr 'SS' 7662
Gylfi 7315 & 7421
vusrisrA
Oskum eftir konum og körlum til
starfa við síldarsöltun á komandi
síldarvertíð
Upplýsingar hjá Haraldi
eða Páli S 7650
Síldarvinnslan hf.
Neskaupstað
Reyni Pétri Ingvarssyni fagnað fyrir framan Sjálfsbjargarhúsið í
Hátúni við komuna til Reykjavíkur. Ljósm. Jóhannes Long