Austurland - 19.09.1985, Page 5
FIMMTUDAGUR, 19. SEPTEMBER 1985.
5
Lýðrædið, . . .
Framh. af 6. síðu.
sem ríkinu þóknast að vera með
í þá stundina, þó svo að okkur
langi jafnvel til að gera eitthvað
allt annað.
A Austurlandi hefur mikið
verið rætt um þriðja stjórn-
stigið, - miðstjórnarvald í hér-
aði. A síðasta ári var um það
sérstök ráðstefna á Egilsstöðum
og það mótaði alla umræðu á
SSA þinginu á Reyðarfirði ný-
verið. Upphaflega voru menn
mótfallnir millistiginu. Peir
voru hræddir um að þetta yrði
þröskuldur milli ríkis og sveitar-
félaga undir miðstjórn ríkisins
en á kostnað heimamanna.
Menn óttuðust einnig að sam-
böndum sveitarfélaga hyrfi allur
kraftur, ef þau yrðu bundin í
lagabálkum embættismennsk-
unnar.
Með neikvæðri afstöðu sveit-
arfélaga til þriðja stjórnstigsins
þá eru stjórnvöldum gefnar
frjálsar hendur um uppbyggingu
þess sem embættismannakerfis.
Lagasmíð síðustu ára er ein-
hliða í þá áttina. Við getum ekki
komið í veg fyrir þriðja stjórn-
stigið og við getum ekki gert öll
sveitarfélög stór, - en við getum
frá grunni sambanda sveitarfé-
laganna byggt upp héraðsstjórn-
ir, þar sem kjörnir fulltrúar
sveitarstjórna ákveða fram-
kvæmdir, rekstur og önnur má-
lefni fjórðungsins. Fjármagn
ríkissjóðs kæmi óskipt, enda er
drjúgur hluti ríkistekna frá
landsbyggðinni runninn. Því
fjármagni ber að skipta sam-
kvæmt vilja heimamanna fyrst
og fremst.
Yfirgangur og hroki ríkisins
er nú slíkur að þeir lokuðu
m. a. s. bönkunum og sjálfa sig
af með öllum sérfræðingum dag-
inn sem forráðamenn allra sveit-
arfélaga landsins héldu fjár-
málaráðstefnu í Reykjavík í
haust sem leið. Efnið átti að
vera fjármálastefna þessa árs.
Par sem ríkið tekur þátt í kostn-
aði. ræður það mestu og jafnvel
öllu um hvernig peningarnir
eiga að notast, það sem við
kaupum reiknast jafnvel ekki til
kostnaðar. Þröngsýnin erslík að
sem minnst er hugsað um sér-
stakar aðstæður á landsbyggð-
inni, heldur boðið upp á „mini“
útgáfur af Reykjavíkurlausn-
um.
Fjárveitingar ríkissjóðs til
landsbyggðarinnar eru ekki
ölmusa. Þær eru endurgjald
ríkisins á örlitlum hluta þeirra
skatttekna sem upprunnar eru
á landsbyggðinni. íslenska ríkið
er eins og páfugl, með fæturna
suður í Reykjavík og kroppandi
um allt land. Þjónustu sína og
þægindi vill hann hafa við fætur
sér, þar sem fæðan skilar sér.
1419 '85 Sigurður Gunnarssoti,
Fáskrúðsfirði.
afsláttur á öllum ljósum og
ljósabúnaði
Nesgötu 7 Neskaupstað
© 97-7117
Opið 900 -1200 og 1300 -1800 virka daga
Austfirðingar - Reyðfirðingar
Opinn fundur verður með Svavari Gestssyni,
formanni Alþýðubandalagsins í Félagslundi,
Reyðarfirði föstudaginn 27. sept. nk. kl. 230
Einnig verða á fundinum alþingismennirnir
Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson
Allir velkomnir
Alþýðubandalagið
Haustfundur
Kvenfélagsins Nönnu verður í
safnaðarheimilinu mánudaginn 23.
september kl. 2030
Dagskrá:
Vetrarstarfið
Önnur mál
Júlíus Haraldsson verður með kynningu á
áleggi frá Síldarvinnslunni hf. Neskaupstað
Mætum allar og höldum uppi líflegu
vetrarstarfi
Nanna
Minjavörður á Austurlandi
Starf minjavarðar á Austurlandi er laust til
umsóknar frá og með 1. nóvember nk. — í
starfinu felst skipulag, uppbygging og fagleg
aðstoð við söfn á safnsvæðinu, sem er
Austurlandskjördæmi — Minjavöðrður er
jafnframt forstöðumaður Safnastofnunar
Austurlands og starfar undir stjórn hennar
Leitað er að starfsmanni með menntun í
þjóðfræði eða fornleifafræði, sem hefur áhuga
á safnamálum og gæddur er góðum
samstarfseiginleikum - Laun samkvæmt
samkomulagi starfsmanna ríkisins um
minjaverði
Umsóknarfrestur er til 1. október nk. —
Skriflegar umsóknir sendist Halldóri
Sigurðssyni á Miðhúsum, 700 Egilsstaðir
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu SAL fyrir
hádegi® 97-1451 oghjáHalldóriSigurðssyni
S 97-1320 á ótilgreindum tíma
Stjórn SAL
Fasteignir til sölu
íbúðarhús:
Egilsbraut23
Mýrargata 32
Þórhólsgata 3
Hlíðargata22
Ásgarður 8
Strandgata 36
Naustahvammur 56
Hólsgata 9
ásamt ýmsum öðrum eignum
Ýmis skipti koma til greina
Allar upplýsingar gefur:
Ibúðir:
Þiljuvellir 27
2 íbúðir Miðstræti 22
Hafnarbraut 36
Nesbakki 15
Starmýri
Þiljuvellir 28
2 íbúðir á Seyðisfirði
Viðskiptaþjónusta
Guðmundar Ásgeirssonar
Melagötu 2, Neskaupstað ® 7677 & 7177
Sýslumaðurinn
í Suður-Múlasýslu
og bæjarfógetinn
á Eskifirði
Gerir kunnugt: Þriðjudaginn 10. september
1985, var í fógetarétti Suður-Múlasýslu og
Eskifjarðar kveðinn upp svohljóðandi
LÖGTAKSÚRSKURÐUR
„Hér með úrskurðast, að lögtök mega fara
fram til tryggingar eftirtöldum vangoldnum
gjöldum álögðum 1985 á einstaklinga og
lögaðila á Eskifirði og í Suður-Múlasýslu, að
liðnum 8 dögum frá birtingu þessa úrskurðar
Gjöldineruþessi: Tekjuskattur, eignaskattur,
sóknargjald, slysatryggingargjald
v/heimilisstarfa, iðnlánasjóðs- og
iðnaðarmálagjald, slysatryggingagjald
atvinnurekenda, skv. 20. gr.,
atvinnuleysistryggingagjald,
vinnueftirlitsgjald, launaskattur,
kirkjugarðsgjald, sjúkratryggingagjald, gjald
í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af
skrifstofu- og verslunarhúsnæði —Einnig fyrir
aðflutningsgjaldi, útflutningsgjaldi,
skráningargjaldi skipshafna,
skipaskoðunargjaldi, lestagjaldi og
vigtagjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi,
bifreiða- og slysatryggingagjaldi ökumanna
1984, áföllnum og ógreiddum söluskatti af
skemmtunum, skipulagsgjaldi af
nýbyggingum, sýsluvegaskatti, söluskatti
sem í eindaga er fallinn, svo og fyrir viðbótar-
og aukaálagningum söluskatts og þinggjalda
vegna fyrri tímabila
Lögtökin fara fram án frekari fyrirvara, á
kostnað gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs"
Eskifirði, 10. sept. 1985
Bjarni Stefánsson