Austurland - 17.10.1985, Blaðsíða 1
Austurland
HELGARFERÐIR
TIL AKUREYRAR
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 17. október 1985.
37. tölublað.
Píanótónleikar í Egilsbúð
Nú í október er hinn efnilegi
píanisti Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson á ferð um landið og ætl-
ar að spila á 12 stöðum í öllum
fjórðungum.
Þorsteinn lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskóla Reykja-
víkur 1979 og hefur síðan stund-
að framhaldsnám í New York
og Róm. Hann er nú búsettur í
Bandaríkjunum.
Porsteinn hefur komið fram
víða erlendis, í Þýskalandi,
Noregi, Svfþjóð, Finnlandi og
Bandaríkjunum.
Hér heima hefur hann komið
fram á tónleikum og í útvarpi
og sjónvarpi. í febrúar síðastlið-
inn lék hann með Sinfóníu-
hljómsveitinni við mikinn
fögnuð áheyrenda.
Þorsteinn heldur tónleika í
Egilsbúð Neskaupstað mánu-
daginn 21. okt. kl. 21 og þess er
að vænta að allir tónlistarunn-
endur sem þess eiga kost láti sjá
sig. Á tónleikunum verða verk
eftir Bach, Chopin, Stravinsky
og Lizst. Fréttatilkynning.
Bónussamningar
Bónussamningarnir frá 16.
september sl. voru í síðustu viku
afgreiddir í nokkrum félögum
innan ASA.
10. október hélt Verkalýðs-
félag Norðfirðinga fundi um
samningana. í frystihúsinu voru
þeir felldir með 53 atkvæðum,
3 seðlar auðir, í saltfiskverk-
uninni felldir með 12 atkvæðum
gegn 10, 4 seðlar auðir.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Fáskrúðsfjarðar hélt fund um
samningana 11. október. Par
voru í frystihúsinu samningarnir
samþykktir með 32 atkvæðum
gegn 10, 7 seðlar voru auðir. í
saltfiskverkuninni samþykkt
með 12 atkvæðum.
Sama dag hélt Verkalýðs- og
sjómannafélag Stöðvarfjarðar
fund um samningana. f frysti-
húsinu voru þeir felldir með 23
atkvæðum gegn 4,3 seðlar auðir.
f saltfiskverkuninni felldir
með 8 atkvæðum gegn 1.
Sama dag hélt Verkalýðsfélag
Breiðdælinga fund um samning-
ana. Þar voru þeir felldir með
20 atkvæðum gegn 4, 1 seðill var
auður.
Þá er búið að greiða atkvæði
um samningana í 6 félögum á
svæði ASA. Þeir hafa verið
felldir í 4 félögum og samþykkt-
ir í 2 félögum.
Þau félög sem hafa fellt
samningana vinna því eftir
gömlu samningunum sé ekki
samkomulag um annað milli
vinnuveitenda og viðkomandi
félags.
Óljóst er um framhald samn-
inga hjá þeim er fellt hafa samn-
ingana, en ASA mun athuga
umræður sameiginlega fyrir þau
félög er ekki smaþykktu samn-
ingana. S. K.
Sigurjón Bjarnason:
Halldór og erlendu
Leiðari Halldórs Ásgríms-
sonar í Austra 10. okt. fjallar
um erlendu skuldirnar. Er þar
margt vel sagt og raunar fróð-
legt að velta fyrir sér skulda-
aukningu þjóðarinnar, sem hef-
ur orðið 45% að raungildi síð-
ustu 5 árin að sögn H. Á.
Halldór ber höfuð og herðar
yfir flesta alþingismenn, þegar
efnahagsmál eru til umræðu, og
sér auðvitað manna best hætt-
una sem þessi þróun hefur í för
með sér.
En hvaða lækningum hefur
sú ríkisstjórn sem Halldór situr
í (reyndar í snarvitlausum stól)
beitt sér fyrir?
Launastefnan
af allt öðrum orsökum. Afkoma
flestra fyrirtækja í fiskvinnslu og
útgerð er ekki betri en svo að
þau safna vaxtaskuldum erlend-
is ár frá ári.
Sérstaklega skal getið ítrek-
aðrar yfirlýsingar Steingríms
Hermannssonar um að áfram
verði fylgt „aðhaldssamri stefnu
í gengismálum". Hvað hefur
þetta í för með sér? Jú, þetta
auðveldar innflutning (og
skuldasöfnun) á meðan útflutn-
ingsfyrirtækin bera óeðlilega
lítið úr býtum.
Skuldasöfnun og stöðugur
viðskiptahalli við útlönd er
gengisfelling í sjálfu sér, og þýð-
ingarlaust að berja þarna hausn-
um við steininn.
Kjör óbreytts launafólks hafa
verið skert verulega.
Meiningin er góð, margir eru
svo einfaldir að halda að með
þessu megi draga úr innflutningi
(eyðslu). Gallinn er hins vegar
sá að mikill innflutningur og
skuldasöfnun erlendis hafa aldr-
ei verið á vegum þeirra sem
lægstu tekjurnar hafa, heldur
hinna sem hafa ríflega til hnífs
og skeiðar, ekki síst þeirra sem
stjórna atvinnurekstri.
Lítum nú á þann hóp.
Fjárfestingar milliliða
í verslun og þjónustu standa
nú yfir umfangsmestu fjárfest-
ingar sem sögur fara af. Þrátt
fyrir stórfelldan samdrátt í
íbúðabyggingum á höfuðborg-
arsvæðinu, hefur ekki heyrst
orð um verkefnaleysi bygginga-
manna. Siík er þenslan í at-
vinnurekstrinum fyrir sunnan.
Auðvitað skapast af þessu
vörukaup erlendis frá. Og það
sem meira er, hluti af þessari
fjárfestingu er fenginn að láni.
Vel rekin og traust fyrirtæki eiga
jú rétt á slíku samkvæmt lögmáli
bankanna, innlent lánsfé er aft-
ur á móti því miður ekki fyrir
hendi, og liggur þá beint við að
leita út fyrir landsteinana, þar
sem víða er meira framboð en
eftirspurn eftir lánsfjármagni.
Hafa stjórnvöld sett einhverj-
ar hömlur á þessar lántökur?
Svar: Nei.
Framleiðslan lifír
við örbirgð
Lítum á undirstöðuatvinnu-
greinarnar, sjávarútveg og land-
búnað. Þar er einnig um gífur-
lega skuldasöfnun að ræða, en
Ríkissjóður og
einkaframtakið
Þá er að líta á ríkisfjármálin.
Þar hefur að vísu verið dregið
úr framkvæmdum, þó að minna
megi á flugstöðvarbyggingu á
Keflavíkurflugvelli og að orku-
framkvæmdir, sem hafa alfarið
verið fjármagnaðar með erlend-
um skuldum, hafa síður en svo
verið stöðvaðar.
En meðlagsgreiðslur ríkisins til
atvinnurekstrarins (skattaíviln-
animar) hafa samt sem áður or-
sakað sífelldan hallarekstur í
ríkisbúskapnum. Þann halla er
ekki hægt að greiða nema með
erlendum lánum, því að innlent
lánsfé er ekki fyrir hendi, og nýj-
Bókasafnavika
Nú líður senn að lokum bóka-
safnavikunnar, sem er haldin
um allt land. í Bókasafni Nes-
skuldirnar
ar tekjuöflunarleiðir fyrir ríkis-
sjóð eru bannorð í ríkisstjóm
Steingríms Hermannssonar.
Niðurstaðan = 0
Hvað hefur þá þessi blessuð
stjórn gert til að lækka erlendar
skuldir?
Svar: Ekkert.
Hefur hún reynt að stöðva
skuldasöfnun erlendis?
Svar: Engin af hennar efna-
hagsaðgerðum miðar í þá átt.
Halldór minnist á þjóðhags-
áætlun ríkisstjómarinnar fyrir
næsta ár, og segir að samkvæmt
henni eigi að stöðva skuldasöfn-
unina á næsta ári. Ekki veit ég á
hve traustum gmnni þetta plagg
er byggt, en mikið ósköp er ég
hræddur um að það sé byggt á
sandi, enda lýkur Halldór svo máli
sínu að mikilvægast sé að skapa
skilning þjóðarinnar, svo að hægt
sé að snúa af þessari braut.
Halldór minn! Skilningur
þjóðarinnar er áreiðanlega fyrir
hendi. En þeir sem auðinn og
völdin varðveita í landi þessu
hafa engan minnsta áhuga á því
að breyta þessari þróun, einfald-
lega vegna þess að ávöxturinn af
blóðpeningum þessum rennur í
þeirra vasa eingöngu.
Og hvað segir þú sjálfur um að-
gerðir ykkar ráðherranna að
undanfömu? Eftir vandlegan yfir-
lestur sé ég ekki betur en að við
séum nákvæmlega sammála. Eng-
ar aðgerðir, enda enginn árangur.
14. - 20. okt.
kaupstaðar hefur verið sérstök
dagskrá í gangi, í kvöld fimmtu-
dag er „opið hús“ fyrir alla vel-
unnara safnsins, þar sem bæjar-
fulltrúar koma í heimsókn, og
boðið er upp á kaffisopa. Á
laugardag er „sérstök sögu-
stund“ fyrir 5 og 6 ára börn, frá
kl. 13 til 14, þá verður m. a.
barnakrókurinn skreyttur.
Markmið bókasafnavikunnar
er kynning á bókasöfnum, svo
að sem flestir komist í tengsl við
þá þjónustu sem veitt er þar.
Bókasafn er lifandi stofnun, en
ekki aðeins lífvana bókahillur.
Er ekki þægilegt að geta notið
hvíldar frá amstri dagsins, og
sest niður á bókasafninu til að
lesa blöð, tímarit eða velja sér
góða bók?
Sjáumst í bókasafninu.
H. M. S.