Austurland - 07.11.1985, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 7. NÓVEMBER 1985.
---------Austurland-------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Einar
Már Sigurðarson, Sigrún Þormóðsdóttir og Smári Geirsson.
Ritatjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) S7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir - Pósthólf 31
- 740 Neskaupstað - 5S7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Landsfundur AB hefst í dag
’Það telst alltaf nokkuð fréttnæmt í heimi stjórnmál-
anna, þegar stjórnmálaflokkar halda landsþing sín eða
landsfundi. Þar eru lagðar pólitískar línur til lengri tíma
og ákveðið uppgjör fer fram varðandi liðið starfstímabil.
í dag hefst Landsfundur Alþýðubandalagsins og mun
hann standa fram á sunnudag. Andstæðingar AB hafa
hlakkað mikið til þessa landsfundar og virðast vænta þar
einhverra tíðinda, er túlka megi sem veikleika og sund-
urlyndi sósíalista.
Alþýðubandalagsmenn munu hins vegar ekki telja
þennan landsfund merkilegastan fyrir hugsanlegan
ágreining þar eða fjölmiðlaupphlaup og er þó langt frá
því, að allir flokksmenn ætli sér að verða þar sammála
í öllum greinum.
Alþýðubandalagsmenn fara til þessa landsfundar til að
stilla saman krafta sína og snúa vörn í sókn í íslenskum
stjórnmálum - snúa vörn launafólks í sókn gegn harðsvír-
uðu atvinnurekendavaldi framsóknaríhaldsins.
En til þess að svo megi verða þurfa flokksmenn vissu-
lega að meta stöðu síns flokks á raunsæjan hátt, efla þá
þætti, sem vel hafa tekist, en endurskipuleggja baráttuað-
ferðir á öðrum sviðum, þar sem verr hefir vegnað. Hrein-
skiptin umræða í þessa veru er ekki veikleikamerki, held-
ur skynsamleg og lýðræðisleg vinnuregla, sem að vísu
útheimtir ákveðinn félagslegan þroska, sem alþýðu-
bandalagsmenn treysta að sé fyrir hendi innan þeirra
flokks.
Á landsfundi AB verða rædd fjölmörg mikilsverð mál
svo sem efnahags- og atvinnumál, kjara- og verkalýðs-
mál, utariríkismál, uppeldis- og menntamál, félags- og
jafnréttismál, sveitarstjórnarmál og auk þess flokksstarf-
ið og starfshættir flokksins. Ekki fer á milli mála, að það
skiptir miklu um velferð almennings í þessu landi, hvernig
til tekst hverju sinni um stjórnun þessara málaflokka. í
þeim hefir AB haft skýra stefnu, en ætíð er endurmats
þörf og svo er nú ekki síður en endranær. Innri mál
flokksins verða vonandi rædd af heilindum einnig, því
að það skiptir íslenskt launafólk einnig miklu, að í þessum
stærsta stjórnarandstöðuflokki landsins ríki eining og
stefnufesta.
Stjómmálaflokkar, starfsemi þeirra og stjómmálamenn
virðast ekki vera í miklum metum um þessar mundir, ef
dæma má eftir nýlegri skoðanakönnun, sem birt hefir verið.
Alþýðubandalagið er vart betur statt í þessum efnum en
aðrir flokkar og skoðanakannanir hafa verið því óhagstæð-
ar yfirleitt að undanfömu. Þróttmikill og baráttuglaður
landsfundur á að geta breytt þessu og þá gerir ekkert til,
þó að andstæðingar flokksins geti sagt þaðan sögur af hvass-
yrtum og eðlilegum skoðanaskiptum. B. S.
FRÁ ALÞINGI
Afnám mismununar
Hjörleifur Guttormsson og
Guðrún Helgadóttir hafa flutt
þingsályktunartillögu um út-
tekt á mismunun gagnvart
konum hérlendis. Er þar gert
ráð fyrir, að Alþingi feli félags-
málaráðherra og Jafnréttisráði
að gera á því úttekt, hvað á
skorti, að íslendingar uppfylli
ákvæði alþjóðasamnings um
afnám alls misréttis gagnvart
konum, en Alþingi veitti ríkis-
stjórninni heimild til að stað-
festa þennan samning fyrir ís-
lands hönd sl. vor.
í tillögunni er bent á þá
þætti, sem sérstaklega þurfi að
beina sjónum að í þessari
úttekt, m. a. kynbundið launa-
misrétti.
Sjávarútvegsfræði
á Höfn
Helgi Seljan hefur mælt fyrir
þingsályktunartillögu, sem
hann flytur ásamt Agli Jóns-
syni og Jóni Kristjánssyni um
könnun á námi í sjávarútvegs-
fræðum á Höfn í Hornafirði.
Samkvæmt tillögunni á að
vinna að þeirri könnun í sam-
ráði við skóla tengda sjávarút-
vegi, Háskólann og samstarfs-
nefnd um framhaldsnám á
Austurlandi.
Sjúkra- og iðjuþjálfun
Helgi Seljan hefur endur-
flutt þingsályktunartillögu um,
að sjúkra- og iðjuþjálfun verði
sem víðast komið á í heilsu-
gæslustöðvum. Kannað verði,
hvernig tengja megi þessa
starfsemi við kennslu í heilsu-
rækt í efstu bekkjum grunn-
skóla og einnig að efldir verði
möguleikar Vinnueftirlits
ríkisins til að vinna að fyrir-
byggjandi aðgerðum á vinnu-
stöðum.
Tillagan gerir ráð fyrir sam-
ráði við samtök launafólks og
atvinnurekenda um þetta mál
svo og hlutaðeigandi heil-
brigðisstéttir.
Umhverfismál og
náttúruvernd
Hjörleifur Guttormsson
hefur flutt ásamt fjórum öðr-
um þingmönnum AB þingsá-
lyktunartillögu um úrbætur í
umhverfismálum og náttúru-
vernd.
Þar eru tiltekin 10 veiga-
mikil atriði, sem ríkisstjórn-
inni er falið að undirbúa og
framkvæma á þessu sviði bæði
varðandi stjórnun þessara
mála og lagabætur. í greinar-
gerð er safnað saman miklum
fróðleik um stöðu umhverfis-
mála og ættu sem flestir áhuga-
menn um þessi efni að kynna
sér tillöguna.
Námsstefna um atvinnumál ungs fatlaðs fólks
í vikunni 10. til 16. nóvember
nk. verður á öllum Norður-
löndunum í tilefni af alþjóðaári
æskunnar vakin sérstök athygli
á atvinnumálum ungs fatlaðs
fólks. Þann 16. nóvember
hyggst æskulýðsnefnd Sjálfs-
bjargar ls. f. því gangast fyrir
námsstefnu um atvinnumál ungs
fatlaðs fólks. Námsstefnan, sem
haldin verður í Reykjavík á að
hefjast kl. 900 fyrir hádegi og
standa með matar- og kaffihlé-
um til kl. 1800.
Okkur væri mikil ánægja, ef
Kirkja
Barnastund í safnaðarheimil-
inu Neskaupstað næstkomandi
sunnudag 10. nóvember kl. 1030
f. h. Sóknarprestur.
ÁRNAÐ HEILLA
Afmæli
Hjörleifur Guttormsson, al-
þingismaður, Mýrargötu 37,
Neskaupstað varð 50 ára 31.
okt. sl. Hann er fæddur og upp
alinn á Hallormsstað, en fluttist
að loknu námi í Austur-Þýska-
landi til Neskaupstaðar árið
1963 Qg hefir átt hér heima
síðan.
Fríður Björnsdóttir, húsmóð-
ir, Ekrustíg 6, Neskaupstað
varð 50 ára 3. nóv. sl. Hún er
fædd í Neskaupstað og hefir allt-
af átt hér heima að undanskild-
um 7 árum, er hún bjó á Akur-
eyri.
þið sæjuð ykkur fært að senda
fulltrúa á námsstefnuna. Nánari
upplýsingar um dagskrá og
staðsetningu munu verða veittar
af skrifstofu Sjálfsbjargar ls. f.
(félagsmáladeild), ® 91-29133
og sendar þeim sem þess óska.
Þátttaka óskast einnig til-
kynnt til framangreindrar skrif-
Áformaö aö
Framh. af 1. síðu.
ekki síst vegna þess að lóðin er
á heppilegum stað við sjóinn.
Sjórinn og eyðifirðirnir í ná-
grenni Norðfjarðar koma án efa
til með að laða að ferðamenn til
Neskaupstaðar og því er það
kostur að hægt skuli vera að
reisa hótel við sjóinn í hjarta
bæjarins.
í apríl í vor voru Halldór
Gíslason arkitekt og Guðni
Þórðarson verkfræðingur
fengnir til að gera frumtillögur
og kostnaðaráætlanir varðandi
hótelbyggingu. Út úr þeirri
vinnu kom að margra mati af-
skaplega skemmtileg hugmynd
að húsi og var þá tekin ákvörðun
um að láta til skarar skríða.
Byggingarnefndarteikningar
voru fullgerðar um miðjan
október og voru þá fljótlega
lagðar fyrir byggingarnefnd,
sem samþykkti þær. Bæjar-
stjórn staðfesti síðan samþykkt
byggingarnefndar á fundi sínum
sl. þriðjudag.
Áætlaður byggingarkostnað-
ur á núgildandi verðlagi er rúm-
lega 20 milljónir króna og er þá
stofu. Þátttökugjald verður
ekkert, en þátttakendur verða
að greiða fyrir sameiginlegan
hádegisverð.
í von um að sjá sem flesta,
f. h. æskulýðsnefndar Sjálfs-
bjargar ls. f.
Ásgeir Sigurðsson, formaður.
reisa . • .
miðað við hótelið fullfrágengið.
Lágmarkskostnaður til þess að
hægt sé að hefja rekstur er á
bilinu 15 - 18 milljónir króna.
Ljóst er að nokkuð erfitt
verður að fjármagna bygging-
una, en kannað hefur verið,
hvaða leiðir eru færar í þeim
efnum. Auk eigin fjármagns
hluthafa er fastlega búist við að
ferðamálasjóður láni verulegan
hluta byggingarkostnaðar, en
auk þess hafa bankayfirvöld
tekið vel í málið. Einnig er hægt
að leita til fleiri aðila varðandi
fj ármagnsútvegun.
Vissulega er að mörgu leyti
rennt blint í sjóinn hvað rekstur
svona hótels varðar, en reynslan
í ýmsum öðrum byggðarlögum
sýnir, að þar sem sköpuð er góð
aðstaða til móttöku ferðamanna
laðast þeir að. Ferðamanna-
þjónusta er vaxandi atvinnu-
grein og ástæðulaust annað en
að taka þátt í uppbyggingu á
því sviði. Forsvarsmenn hótel-
byggingarinnar vonast auk þess
til að þarna skapist góð aðstaða
fyrir Norðfirðinga til samkomu-
halds og skemmtana. S. G.