Austurland


Austurland - 05.12.1985, Síða 1

Austurland - 05.12.1985, Síða 1
Austurland Leikfangamarkaður Lifandi blóm Benni & Svenni ® 6399 & 6499 35. árgangur. Neskaupstað, 5. desember 1985. 44. tölublað. Eskifjörður: Fiskmatsnámskeið Sl. laugardag lauk á Eskifirði viku námskeiði í saltfiskmati og var það haldið á vegum Fisk- vinnsluskólans. Einar Gíslason, yfirfiskmats- maður á Austurlandi, sá um skipulagningu námskeiðsins heima fyrir, en forstöðumaður þess var Sigurður Óskarsson, kennari við Fiskvinnsluskólann. AUSTURLAND hafði sam- band við Einar Gíslason, sem var einn af kennurum á nám- skeiðinu og spurði hann nánar um þetta námskeiðshald. Einar sagði, að þetta væri í fyrsta skipti, sem svona nám- skeið væri haldið hér á Austur- landi, en Fiskvinnsluskólinn hefir tvisvar haldið námskeið á Akureyri. Hann kvað það mikilsvert að fá svona námskeið út í fjórðungana og það hefði líka sannast, að full ástæða var til þessa námskeiðshalds, því að þátttakendur voru 15 af svæðinu frá Djúpavogi til Borgarfjarðar. Eins og áður sagði var Sigurð- ur Óskarsson forstöðumaður námskeiðsins, en auk hans voru þrír kennarar frá Sölusambandi fiskframleiðenda og einn frá Ríkismati sjávarafurða, en það var Einar Gíslason. Á nám- skeiðinu var aðallega um verk- legt nám að ræða, en þó var þar bóklegt nám einnig. Verklega kennslan fór fram í saltfiskverk- un Hraðfrystihúss Eskifjarðar, sem einnig lagði til fiskinn, sem metinn var, en frá saltfiskverk- un Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað, sem Guðjón Mar- teinsson stjórnar, fengust þær fisktegundir, sem á vantaði. Námskeið sem þetta standa yfirleitt í hálfan mánuð, en þessu var lokið á einni viku og kennt frá kl. 9 til 19. Námskeiðið veitir þátttak- endum réttindi til að meta salt- fisk og því fylgir veruleg kjara- bót einnig, því að laun mats- manna eru tvöföld verka- mannalaun, sagði Einar Gísla- son að lokum. B. S. Neskaupstaður: Kennarar á fiskmatsnámskeiðinu. Ljósm. Vilberg Guðnason. Nemendur á fiskmatsnámskeiðinu. Ljósm. Vilberg Guðnason. Kosning um heimild til áfengisútsölu 28. des. Eins og sagt hefir verið frá áður í blaðinu fór fram í Nes- kaupstað söfnun undirskrifta undir áskorun á bæjarstjórn Neskaupstaðar þess efnis, að hún léti fara fram almenna kosningu um það, hvort heimila eigi að opna áfengisútsölu í bænum. Alls skrifuðu undir þessa áskorun 370 manns. Þar sem það er meira en þriðjungur atkvæðisbærra manna í bænum, var bæjarstjórn skylt að láta slíka kosningu fara fram. Og nú er ljóst, að Norðfirðingar eiga þess kost að greiða atkvæði um þetta fyrir áramót. Á fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var í fyrradag, 3. des- ember, var eftirfarandi tillaga frá Ásgeiri Magnússyni, bæjar- stjóra samþykkt með 7 atkvæð- um gegn tveimur. „Þar sem fram hefur verið lagður listi með nöfnum 370 at- kvæðisbærra manna, sem óska eftir því, að fram fari kosning um opnun áfengisútsölu hér í bæ, þá samþykkir bæjarstjórn Neskaupstaðar, að kosningin skuli fara fram laugardaginn 28. desember 1985. Kjörskrá verði lögð fram mánudaginn 9. desember og verði kærufrestur til 20. desem- ber 1985.“ Á bæjarstjórnarfundinum kom fram önnur tillaga, sem gerði ráð fyrir, að kosningin færi fram um leið og bæjarstjórnar- kosningar á næsta vori. Sú til- laga kom ekki til atkvæða, þar sem tillagan um kosningu 28. desember var samþykkt, eins og áður sagði. B. S. Námskeiðinu slitið. Ljósm. Vilberg Guðnason. Er fréttaflutningur sjónvarpsins aö einskorðast við höfuðborgarsvæðið? Um síðustu helgi stóð yfir umfangsmikil leit, að ungum manni á Hellisheiði eystri. Um það bil sjötíu manns víðs vegar af Austurlandi tóku þátt í leit- inni. Þessari leit lauk um kl. 15 á sunnudag með giftusamlegri björgun mannsins. Ekki var minnst á þennan at- burð í fréttum sjónvarpsins á sunnudagskvöld, enda átti hann sér stað alllangt frá suðvestur- horni landsins. Það er undar- legt, að atburður sem þessi skuli ekki teljast fréttnæmur í sjón- varpinu, sem á þó að teljast fjöl- miðill allra landsmanna. Fréttamönnum þótti hins veg- ar ástæða að geta þess í frétta- tíma sjónvarps á mánudags- kvöld, að til hefði staðið að senda hunda úr Reykjavík til að taka þátt í leit austur á Fljóts- dalshéraði. Hefði leitin ef til vill þótt fréttnæm ef hundarnir hefðu verið sendir austur? Þ. O. Neskaupstaður: Betri flugþjónustu krafist Á fundi í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar 3. des. sl. var sam- þykkt einróma eftirfarandi ályktun, sem bæjarráð hafði gert 14. nóv. sl. „Bæjarráð ítrekar að Flug- leiðir hf. gegni því þjónustu- hlutverki, sem félagið hefur tek- ist á hendur og mótmælir harð- lega síendurteknum niðurfell- ingum á flugi til Neskaupstaðar að nauðsynjalausu, jafnvel við allra bestu flugskilyrði. Þá ítrekar bæjarráð kröfu um, að flugferðum verði ekki fækkað yfir sumarmánuðina, þvert á móti sé ástæða til að fjölga ferðum, þar sem flug fell- ur mjög oft niður.“ Félagsvist AB er í kvöld í Égilsbúð og hefst kl. 2045 Alþýðubandalagið

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.