Austurland - 20.12.1985, Side 3
FÖSTUDAGUR, 20. DESEMBER 1985.
3
Aðalfundur SKO
Laugardaginn 30. nóv. sl. var
aðalfundur Skíðamiðstöðvarinn-
ar í Oddsskarði haldinn á Eski-
firði. Fundurinn hófst reyndar í
hinum nýja glæsilega skála, sem
verið er að byggja á skíðasvæð-
inu, en þar hittust fulltrúar Nes-
kaupstaðar, Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar, en þessi þrjú
sveitarfélög standa saman að og
eiga Skíðamiðstöðina. Fulltrúar
skoðuðu skálann en héldu síðan
í Valhöll á Eskifirði, þar sem
aðalfundarstörf fóru fram. Þar
fluttu formenn þeirra nefnda sem
starfandi eru á vegum SKO
skýrslur sínar. Þar kom fram að
bygging skálans er langt komin,
neðri hæðin er að mestu búin, en
eftir er að innrétta svefnloft.
Fundarmenn voru sammála
um að með tilkomu skálans
muni gestum í skíðalandinu
fjölga og meira líf færast í skíða-
íþróttina. I skálanum verður
gistiaðstaða fyrir hópa, sem
vilja koma til skíðaiðkunar.
í máli Ómars Skarphéðins-
sonar, sem hefur verið starfs-
maður skíðamiðstöðvarinnar
kom fram m. a. að það var
óvenjulítill snjór sl. vetur. Lyft-
an var opin í 56 daga og var
keyrð í 280 stundir. Notendur
voru um 3600, sem er í minna
lagi því mjög leiðinlegt veður
var alla páskana, en páskarnir
hafa verið sá tími sem flest fólk
kemur á skíði. Starfsemin í vet-
ur verður með svipuðu sniði og
verið hefur sl. ár, en að auki er
fyrirhugað að nota snjótroðar-
ann mun meira en verið hefur
og verður það til mikilla bóta.
Þá verður öll aðstaða til snyrt-
ingar hin besta. Það er von okk-
ar að veitingaaðstaðan verði til-
búin í byrjun næsta árs.
Voru nefndarmönnum og
stjórn SKO þökkuð vel unnin
störf og voru allir endurkosnir.
í aðalstjórn voru kjörnir:
Stefán Pálmason, Neskaupstað,
formaður, Jósefína Ólafsdóttir,
Reyðarfirði og Jóhann Klausen,
Eskifirði.
I framkvæmdanefnd voru
kjörnir: Ómar Skarphéðinsson,
Neskaupstað, Borgþór Guð-
jónsson, Reyðarfirði og Þor-
steinn Kristjánsson, Eskifirði.
í byggingarnefnd vorru
kjörnir: Kristinn ívarsson, Nes-
kaupstað, formaður, Guðjón
Björnsson, Eskifirði, Hjördís
Káradóttir, Reyðarfirði.
Að lokum var fundarmönn-
um boðið til kaffidrykkju. Þetta
samstarf þriggja sveitarfélaga
sem þarna á sér stað hefur
gengið mjög vel og það skyldi
þó ekki vera að þau gætu verið
fleiri verkefnin, sem mætti
vinna saman að. K. í.
ÁRNAÐ HEILLA
Afmæli
Sigurbjörg Porvarðardóttir,
húsmóðir, Mýrargötu 18,
(Breiðabliki), Neskaupstað
varð 85 ára 14. des. sl. Hún er
fædd á Þiljuvöllum í Berunes-
hreppi, en flutti til Neskaup-
staðar 1924 og hefir átt hér
heima síðan.
Eiginmann sinn, Kristin
ívarsson, útgerðarmann, missti
Sigurbjörg árið 1973.
Veiðigleði 1985
Hin árlega Veiðigleði verður haldin í
Egilsbúð laugardaginn 28.
desember og hefst með
borðhaldi kl. 2000
Skemmtiatriði og dans
Hljómsveitin Bumburnar
Mætið stundvíslega
Aðgöngumiðar verða seldir í
Egilsbúð föstudaginn 27.
desember kl. 1600 - 2100
Stjórnin
Norðf irðingar - Austf irðingar
# Margar gerðir af rúmteppum #
# Ný húsgögn um helgina #
# Fullt af nýjum myndum #
NESVIDEÓ
Egilsbraut 19
Neskaupstað S 7780
Lítið við í Jaspis
Sérstæð gjafavara - takmarkað magn
Opið: föstudag 20. kl. 13 - 19
laugardag 21. kl. 13 - 19
Þorláksmessu kl. 13 - 22
Jaspis
Þiljuvöllum 4 Neskaupstað
Visa þjónusta
Nýjar íbúðir
í janúar koma til sölu 6 nýjar íbúðir við
Lyngbakka byggðar á vegum Byggðar hf.
í Neskaupstað
íbúðirnar eru af fjórum gerðum, frá
einstaklingsíbúð í allt að 5 herbergja íbúðir
Viðskiptaþjónusta
Guðmundar Ásgeirssonar
Melagötu 2, Neskaupstað S 7677 & 7177
'ílO'l <£»
m
<n o
1 C*
lcZÍ ^
S
íl'jl
STORA VIDEOLEIGAN MEÐ ALLAR NYJU MYNDIRNAR
Við óskum Norðfirðingum gleðilegra jóla
með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu
Jafnframt viljum við minna á
opnunartíma um jól og áramót
m1
Aðfangadagur
Jóladagur . .
2. í jólum .
Gamlársdagur
Nýársdagur
. lotiiie
. LOKAÐ
. 13til22
. 10till6V .
ntíO’1
. LOKAÐ
Annars alla daga 13 til 22 eins og venjulega
‘TVV *$> * Lnol ólO1
HUSNÆÐIS
SPARNAÐUR
• skattafsláttur
0 lántökuréttur
0 háirvextir
Alþýóubankinn hf.
við gerum vel við okkar fólk