Eining - 01.06.1956, Síða 4

Eining - 01.06.1956, Síða 4
4 EINING FUNDUR MEÐ FORMÖNNUM ÁFENG- ISVARNANEFNDA VIÐ EYJAFJÖRÐ haldinn í Skjaldborg á Akureyri 24. marz 1956 Brynleifur Tobiasson, áfengisvarna- ráðunautur, setti fundinn og bauð fund- armenn velkomna og flutti þeim kveðjur frá áfengisvarnaráði. Hann nefndi til fundarstjóra Þorstein M. Jónsson og fundarritara Brynjólf Sveinsson, Efsta- landskoti, og Eirík Sigurðsson, Akur- eyri. Tekið fundarmanntal. Á fundinum voru mættir þessir menn: Brynleifur Tobiasson, áfengisvarna- ráðunautur, Reykjavík. Pétur Björnsson, erindreki, Siglufirði. Brynjólfur Sveinsson, form. áfengis- vaman. Svalbarðsstrandarhrepps. Páll Ólafsson, form. áfengisvarnan. Skriðuhrepps. Davíð Árnason, form. áfengisvarnan. Glæsibæjarhrepps. Þorsteinn M. Jónsson, form. áfengis- varnan. Akureyrar. Ari Bjarnason, form. áfengisvarnan. Grýtubakkahrepps. Guðm. Benediktsson, form. áfengis- varnan. Svalbarðsstrandahrepps. Tryggvi Sigmundsson, form. áfengis- varnan. Öngulstaðahrepps. Hjalti Finnsson fyrir áfengisvarnan. Saurbæj arhrepps. Halldór Guðlaugsson, form. áfengis- varnan. Hrafnagilshrepps. Eiríkur Sigurðsson, framkv.stj. áfeng- isvarnan. Akureyrar. Síðar komu fleiri á fundinn. Útbýtt var meðal fundarmanna: Reglugerð fyrir áfengisvarnaráð frá 22. okt. 1954 og lögum fyrir Landssamband gegn áfengisbölinu. Áfengisvarnaráðunautur skýrði frá stofnun áfengisvarnaráðs og störfum þess. Fyrst skýrði hann frá sambandi ráðsins við áfengisvarnanefndir og störf- um erindrekanna, sem ferðast hafa milli nefndanna. Hefur Pétur Björnsson haft þetta starf hér á Norður- og Austur- landi. Þá hefur að tilhlutun ráðsins og nefndanna verið ritað allmikið í blöð um þetta efni á síðastliðnu ári. Áfengis- varnaráð hefur einnig gefið út nokkra bæklinga um áfengis- og bindindismál. Áfengisvarnaráðunautur hefur annast ritstjórn handbókar um bindindisfræðslu í skólum, og hefur hún verið send öllum kennurum. Þá skýrði ræðumaður frá stofnun Landssambands gegn áfengisbölinu á síðastliðnu hausti. Stóðu að þeirri stofn- un 22 félagasambönd. Eru miklar von- ir bundnar við þessi samtök. Áfengisvarnaráð ásamt stórstúkunni og Bindindisfélagi ísl. kennara gekkst fyrir bindindismálasýningu í Reykjavík í vetur, og hefur hún nú verið sýnd á Akureyri, ísafirði, Vestmannaeyjum og Akranesi. Aðsókn að henni hefur verið mjög góð og hefur hún verið sýnd nem- endum í skólum á öllum þessum stöð- um. Hófust þá almennar umræður, og tóku þessir til máls: Davíð Árnason, Eiríkur Sigurðsson, Þorsteinn M. Jóns- son, Halldór Guðlaugsson, Hjalti Finns- son, Páll Ólafsson, Guðmundur Bene- diktsson og Ari Bjarnason og sumir oftar en einu sinni. Kom fram í ræðum manna, að þeir teldu sölubann áfengis á Akureyri hafa dregið úr áfengisnautn á Akureyri og í nærliggjandi sveitum, og bragur á skemmtunum batnað. Áfengisvarnaráðunautur skýrði frá hugmynd sinni um félög áfengisvarna- nefnda í hverri sýslu og ráðningu fram- kvæmdarstjóra. Bæri honum að hafa samvinnu við önnur menningarfélög. Bar hann fram eftirfarandi tillögu: „Fundurinn samþykkir að kjósa 5 manna nefnd til að undirbúa félag meðal áfengisvarnanefnda fyrir Eyja- fjarðarsýslu, Akureyri og þrjá vest- ustu hreppa S.-Þingeyjarsýslu og gera uppkast að lögum fyrir félagið". Tillagan var samþyktt í einu hljóði. I nefndina voru kosnir: Eiríkur Sig- urðsson, Guðm. Benediktsson, Halldór Guðlaugsson, séra Sigurður Stefánsson og séra Stefán Snævarr. Þá var útbýtt meðal fundarmanna þrem bæklingum frá áfengisvarnaráði, en síðan gefið fundarhlé og drukkið kaffi í boði áfengisvarnaráðs. Þá mættu á fundinum Hannes J. Magnússon, formaður Bindindisfélags íslenzkra kennara, Friðjón Skarphéð- insson, bæjarfógeti, og Jón Benedikts- son yfirlögregluþjónn. Áfengismálaráðunautur reifaði þá næsta mál fundarins, sem var löggcezla á skemmtunum og tollgcezla. Skýrði hann frá, að nú væru til athugunar til- lögur í dómsmálaráðuneytinu frá sýslu- mönnam um þetta efni. Er gert ráð fyr- ir auknu fé til þessara mála. Þá tók til máls Friðjón Skarphéðins- son, bæjarfógeti og ræddi um tillögur þær, er hann sendi ráðuneytinu í þess- um mánuði um löggæzlu og tollgæzlu. Taldi hann ekki unnt að sameina þetta hér, meðan ekki væri sameiginlegt hús- næði fyrir þessa starfsemi. Þá ræddi hann nokkuð um löggæzlu á samkom- um í sveitum. Ekki hefur fengizt fé frá ríkinu fyrir einkennisbúningum handa þessum mönnum. Taldi hann, að bif- reiðaeftirlitsmenn gætu annast meira eftirlit með umferð á vegum úti en nú er. Sagði ræðumaður, að hann hefði lagt til í tillögum sínum, að allsherjar- reglugerð yrði samin fyrir allt landið í þessu efni. Þar yrði ákveðið kaup lög- gæzlumanna og einkennisbúningur. Tollgæzlunni er í mörgu ábótavænt. Lítið eftirlit er á smærri höfnum og tollverðir of fáir. Vörugeymslur vantar, svo að hægt sé að tollskoða vörurnar. Vinnuskilyrði lögreglunnar hér eru erfið. Lögregluhúsið er of lítið, og eng- in skilyrði þar fyrir rannsóknarlögreglu. Hér eru 10 lögregluþjónar og geta ekki verið nema 2—3 á vakt í einu, þar sem þeim er skipt í þrjár vaktir á sólar- hring. Áfengisvarnaráðunautur þakkaði ræðu bæjarfógeta og beindi því til hans, og yfirlögregluþjónsins, hvernig þeir litu á árangur héraðsbannsins. Bæjarfógeti taldi sig ekki hafa að- stöðu til að kveða upp rökstutt álit í þessu efni, en þó virtist ástandið hafa batnað, en beindi því til yfirlögreglu- þjónsins að öðru leyti, því að hann fylgdist með þessu daglega. Jón Benediktsson, yfirlögregluþjónn, taldi að lokun áfengisverzlunarinnar hafi orðið til mikilla bóta hér í bænum, bæði fjárhags- og menningarlega. BæjL arbragur hafi mjög mikið batnað. Hér þyrfti að bæta við 4—6 lögregluþjón- um, ef vínbúðin yrði opnuð aftur. Segir það sína sögu. Pétur Björnsson ræddi um, að ekki væri samræmi í því, hvað ríkið greiddi fyrir löggæzlu í hinum ýmsu sýslum. Þetta þyrfti að samræma. Þá þakkaði áfengisvarnaráðunautur bæjarfógeta og yfirlögregluþjóni kom- una, og viku þeir þá af fundi. Var þá tekið fyrir síðasta mál dag- skrárinnar: Hvað geta áfengisvarna- nefndirnar gert til eflingar bindindis- hreyfingunni? Flutti Pétur Björnsson fróðlegt og at- hyglisvert erindi um þetta efni og byggði þar á reynslu sinni. Áfengisvarnaráðunautur flutti að lokum kveðjuorð og þakkaði fundar- mönnum komuna og þátttöku þeirra í fundinum. Þá flutti fundarstjóri kveðjuorð og óskaði mönnum góðrar heimferðar. Fundargerð var þá upplesin og sam- þykkt. — Fundi slitið. Þorsteinn M. Jónsson, fundarstjóri. Brynj. Sveinsson, Eiríkur Sigurðsson, fundarritarar.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.