Eining - 01.01.1957, Síða 1
15. árg. Janúar 1957. 1. tbl.
Kaþólski presturinn Theobald Matthew
og eindæma afrek hans
Eftir WILFRID WINTERTON
~n langt skeið stóð óbrúað djúp milli mótmælenda
og kaþólskra, sem ofsóknir, píningar og blóðs-
úthellingar höfðu dýpkað og breikkað. En á
rúmri öld hefur það verið eitt sérstakt málefni,
sem brúað hefur djúpið og verið hollur sátta-
semjari. Það er málefni þeirra manna, sem
mestan áhuga hafa á því, að leysa mannkynið
frá bölvun áfengisneyzlunnar. I baráttunni fyrir algeru bind-
indi taka höndum saman sem bræður, bæði mótmælendur
og kaþólskir, einnig menn, er ala í brjósti sér ýmsar aðrar
ólíkar lífsskoðanir, og sanna þetta ýms alþjóðabindindisþing,
t. d. hið síðasta í Istanbul.
Einmitt nú eru liðin 100 ár frá því að uppi var kaþólski
postulinn Theobald Mathew. Flestu fremur varð líf og starf
hans til þess að draga úr ofsa trúarskoðananna og er nafn
hans því blessað jafnt af mótmælendum sem kaþólskum.
Hann var prestur í Cork á írlandi, varð fyrir sterkum áhrifum
frá kvekaranum, William Martin, sem var ritari bindindis-
félagsskapar á staðnum. Minnisvarði Mathews minnir fólkið í
bænum og öllu landinu á herferð hans gegn áfengisneyzlunni,
sem bar þann árangur að næstum sex milljónir manna undir-
rituðu heit um algert bindindi og brutu af sér fjötra áfengis-
drykkjunnar. Þá voru íbúar Irlands 8,375,000, og af þeim
höfðu 5,708,073 skráð sig sem bindindismenn, á aðeins sex
árum. Á þessum tíma hafði áfengisneyzlan í landinu minkað
úr 8,12 milljónum gallóna í rúmar 5 milljónir, og sparisjóðsfé
manna hafði tvöfaldast.
um fimm ára skeið ferðaðist Faðir Mathew um allt írland
aftur og fram, einnig víða í Englandi, og talaði þá oft á veg-
um The United Kingdom Alliance. Alls staðar voru viðtök-
urnar óvenjulegar. Til dæmis í Limerick. Frásögnin er á þessa
leið: „Slíkur mannfjöldi hafði safnast saman á tveggja mílna
löngum götukafla, að öll umferð stöðvaðist. Hvert hús og
hvert herbergi var fullskipað, einnig kjallarar húsanna. 500
manns fékk húsaskjól í skrifstofum og verzlunarhúsum, en þá
voru fimm þúsund eftir á götunni, sem hvergi komust inn á
kaldri desembernóttu. Verð á mat og drykk þréfaldaðist.
Morguninn eftir prédikaði Faðir Mathew, en síðari hluta
dagsins tók hann á móti bindindisundirskriftum manna. Und-
ir umsjón hermanna, er héldu öllu í röð og reglu, krupu 20
þúsundir manna niður á götunni til þess að láta þenna guðs-
mann blessa yfir sér. Er þessir höfðu staðið upp, kom næsti
hópur“. Að síðustu höfðu 150,000 undirritað sitt bindindis-
heit. Ekki má svo gleyma því, að flestir af þessum mannfjölda
höfðu komið fótgangandi til Limerick.
Eins og áður sagt, minkaði áfengisneyzla þjóðarinnar um
töluvert meira en helming. Peningar streymdu til verzlana,
er seldu nauðsynjavörur, í stað þess að lenda í höndum áfeng-
issalans, knæpum var breytt í íbúðarhús, heimili voru búin
húsgögnum og bankar skýrðu frá meti í spariféssöfnun. Skatt-
ar af áfengisverzlun féllu um40%, en öll önnur skattgreiðsla
flaug upp, og þannig varð starfsemi prestsins hinu opinbera
góð tekjulind. Heilbrigðisástand fór batnandi, og hefði stjórn
Englands leyft mönnum að loka algerlega áfengisverzlunum