Eining - 01.08.1957, Page 1
15. árg.
Reykjavík, ágúst—september 1957.
8.-9. tbl.
HEIMSðKN MUU KQRINCSHJlNANIA
Einn ánægjulegasti viðburður hinna
björtu og sólríku sumarmánuða var hin
opinbera heimsókn konungs og drottn-
ingar Svíþjóðar. Engar háreistar kon-
ungshallir eru á íslandi til þess að hýsa
tigna gesti, en að þessu sinni lét landið
í té hið bezta. Það tjaldaði sínu feg-
ursta. Dagarnir sem konungshjónin
dvöldu hér um mánaðamótin júní-júlí
voru dásamlega bjartir og fagrir, og
þá fer enginn um ísland án þess að
gleðjast af náttúrufegurð þess.
Hinum tignu gestum var vel fagnað
af hjartanlegri gestrisni, bæði af hendi
forseta landsins, ríkisstjórn og þjóðinni
í heild. Konungshjónin voru elskulegir
gestir, er sýndu áhuga fyrir landi og
lýð, sögu þess, lífi og menningu. Slíkar
heimsóknir treysta vinabönd þjóðanna,
en það er flestu mikilvægara í sambúð
þeirra. Vegur samúðar, skilnings og
vináttu er hin örugga leið til alþjóða
bræðralagsins.
í Móttökuræðu forsetans, herra Ás-
geirs Ásgeirssonar, fórust honum orð
á þessa leið:
Það er mér sérstök ánægja að bjóða
yður hjartanlega velkomin í opinbera
heimsókn til íslenzku þjóðarinnar. Þetta
er mér kærkomið tækifæri til að þakka
yður innilega þær ágætu viðtökur, sem
við hjónin fengum, þegar við fyrir tæp-
um þrem árum vorum gestir yðar i
Stokkhólmssloti og gestir sænsku þjóð-
arinnar.
Vér Islendingar höfum einnig aðra
þökk að gjalda. Sem krónprins Svía
veittuð þér, herra konungur, oss þann
heiður og ánægju að heimsækja oss á
Sœnsku konungshjónin og íslenzku forsetahjónin fyrir utan ráSherrabústaS inn i Tjarnargötu. (Ljósm: S. M.)