Íþróttablaðið - 01.09.1928, Blaðsíða 3
/þróttablaðið
/ /
Gefið út af Iþróttasambandi Islands.
(Áður „Þróttur" stofnaður af í. R.)
III. árgangur.
September—Október 1928.
9-10. tölublað.
Heilsulindiv.
Helgað íþróttasambandi Islands.
Hellir sunna hollum yfir
höf og löndin geislastöfum.
Fjöllin laða, faðminn bre.iða
[ullan dýru heilsngulli.
Ægir tiginn, áin fögur
íþrótt góða mönríum bjóða.
Frosti liaslar fólki hraustu
fönn og svetl að leikja velti.
Island se.iðir oss og laðar,
eggjar og hvetur. Keppum betur!
Traust vort eflum, táp og hregsti,
leggum lífsins heilsuveigar.
Djarfir leikir drengskap aulci,
deilur víki, samúð riki.
Lifið er bezti leikur hrgustum
Igð, og sigur vinnsl um síðir.
Sigurður Vigfússon.
r r
Allsherjarmót I. S. I.
Ræða forseta í. S. í. Ben. G. Waage,
17. júní 1928.
Virðulegu tilheyrendur!
Ekkerl land í heiini hefir meiri þörf fyrir
góða íþróttamenn en Island. I>að er hin óblíða
náttúra landsins, sem því veldur.
Hinir vösku sjómenn vorir og landbúnaðar-
menn, einkum einyrkjar, verða að heyja harða
baráttu við náttúruöflin, og til þess að bera sig-
ur úr býtum i þeirri erfiðu baráttu, verða þeir
að vera hinir inestu þrekmenn, bæði andlega
og likamlega. — En að mönnum vaxi ásmegin
við líkamsíþróttir, er svo alkunnugt, að óþarfi
er að færa rök að því, — þeim, sem enn kynnu
að vera vantrúaðir á að svo sé, má benda á
hina merku bók: „Heilsufræði handa iþrótta-
rnönnum", er f. S. f. gaf út árið 1925. —
Best er að menn byrji snemma á líkams-
íþróttum, bæði vegna þess, að æskumannmum
veitist léttara námið, og af því að árangurinn
verður oftast betri; — „því það ungur nemur,
gamall temur".
íþróttir þær, sem allir íslendingar eiga að
kunna, eru islenzk glíma, fimleikar, skiðafarir
og sund; ættu þessar fjórar iþróttagreinir að
vera skgldunámsgreinir við alla skóla landsins.
A siðari árum virðast menn vera að taka betur
undir þetta, þó fullur skilningur sé enn ekki
kominn á þetta nauðsynjamál.
Nokkuð hefir verið deilt um það, hvaða i-
þrólt væri bezt og ágætust — mun svo lengi
verða, því „hverjum þykir sinn fugl fagur“. —
Sú íþrótt, sem margir telja ágætasta og bezta,
vegna nytsemi hennar, hollustu og alls þrifn-
aðar, er sundlistin. Það er sú iþrótt, sem Frón-
búanuin verður mest til farsældar, vegna þess,
hve hann verður oft að fara vota vegi. Sund-
maðurinn verður ölluin öruggari í striðinu við
þá höfuðskepnu, af skiljanlegum ástæðum.
Hann neytir léttleika sins, og fer á sundi yfir
fljótið, í stað þess að bera grjót á sig og vaða
í botni, eins og sagt er að margir ofurhugar
hafi gert hér á iandi, er þeir þurftu að fara
yfir straumvötn.
Eins og allir borgarbúar vita, samþykti síð-