Íþróttablaðið - 01.09.1928, Page 6
216
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
sundinu og var Jón Pálsson sundkennari meðal
þeirra, er í öðrum bátnum voru.
Ásta er fyrsta konan, er þetta sund þreytir
og sú fyrsta hér, er syndir svona iang't sund
síðan í fornöld, svo að sögur fari af.
Ásta, nýkomin af Viðeyjarsundinu.
Áður hafa þeir Benedikt G. Waage og Erling-
ur Pálsson synt úr Viðey, Ben. í sept. 1914 frá
Sundhelli að Völundarbryggju, en Erl. frá
suðaustur enda eyjarinnar að Hauksln-yggju.
Um sund Erlings má lesa í íþróttablaðinu I.
árg., 8.—9. tölubl., bls. 69, en um sund Bene-
dikts í ,,Vísi“ 8. sept. 1914.
(Af því að aldrei hefur verið sagt frá því í
fþróttablaðinu okkar, set ég hér eftirfarandi um:
Viðeijjarsund Iien. G. Waage. Aðaldrættirnir
í frásögn „Vísir“ eru þessir: Ben. synti 6. sept.,
sunnudag, frá Sundhelli. „Lítill austankaldi
var á, er róið var úl í eyna, en brátt lygndi og
gerði sléttan sjó“. Hann lagðist til sunds kl.
12° 18' e. h„ synti ýmist hliðarsund eða
bringusund, en við og við „cra\vl“, svo sem V2
mín. i senn til að hita sér. Sjávarhiti var 10,7°
C. — Fyrst synti hann með 40 tökum á mín-
útu, kl. 12° 45' með 37 tökum, kl. 1° með 39
tökum, kl. 1° 15' með 38 tökum, kl. 1° 30' með
35 tökum, kl. 1°45' með 37 tökum og kl. 2°
með 40 tökum á mínútu. Lenti hann kl. 2° 14'
við Völundarbryggju. Vegalengd talin beina
línu 3y2 kílómeter, en áætlað að sundið væri
4—4% km. Það synti hann á lklt. og 56 min.).
Ásta syndir inn Reykjavíkurhöfn.
Skotakoman.
Sýnilcg framför lxjá islenzkum
knattspyrnumönnum.
Ivnattspyrnuráð Reykjavíkur ákvað í velur
i samráði við knattspyrnufélögin í Reykjavík,
að fá hingað til lands í sumar úrvalsfloklc frá
einhverri af nágrannaþjóðunum. Skrifaði ráðið
núverandi bezta knattspyrnufélagi Dana uin að
koma hingað og keppa við íslenzka knatt-
spyrnumenn. Félagið svaraði, að því miður
gæti ekki orðið úr því að þessu sinni. Rétt i
þvi, að þelta svar kom frá Danmörku, barst
forseta í. S. í. bréf frá Glasgow University
Alletic Club, þar sem þeir sögðust gjarnan
vilja koma til fslands í sumar og keppa í