Íþróttablaðið - 01.09.1928, Síða 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
221
>aoaoooaooo»»oooooooooooooacHC«a<í00oog
| Auglýsingaverð íþróttablaðsins o
er lægra en nokkurs annars blaðs. Það er: >/i síða 30
kr., V2 síða 16 kr., 'h síða 11 kr., lk síða 9 kr. O
'/8 síða 5 kr., 1 dálksentimeler 1 kr. — Ef augl. er §
að mesfu leyti mynd eða sett (matrise), er verðið 'li <j
lægra. — Afsláttur gefinn af þessu lága verði, ef mikið O
er auglýst og lengi. §
Alt er lesið, sem í Iþróttablaðinu stendur! a
S A.V. Blaðið flytur ekki áfengis- eða tóbaksauglýsingar! Ó
moooooooooooooooooooooooooooooooooo
nr. 2 Valur (5 stig), nr. 3 Víkingur (2 stig),
nr. 4 Fram (0 stig). K. R. vann því bikarinn,
sem var afhentnr í leikslok. Mótið fór ágæt-
lega fram og var ánægjulegt að horfa á hina
ungu keppendur í knattspyrnu.
Knattspyrnmót 2. flokks (15—18 úra).
Mótið byrjaði 30. maí. Tóku 3 félög þátt í
því. Kappleikar fóru á þessa leið:
K. R. vann Víking með 5 : 0, Valur vann
Víking með 7 : 0. K. R .jafntefli við Val I : 1.
Urðu þau félög að keppa aftur til urslita, fól’u
þá leikar svo, að Valur vann með 4 : 2. Virt-
ust þessir flokkar mjög jafnir nú sem fyrr. í
fyrra urðu þeir að keppa þrisvar til úrslita.
Kappleikarnir á milii þeirra að þessu sinni
voru mjög „spennandi“ og léku báðir í'lokkar
drengilega. Valur hlaut bikarinn til fullrar
eignar. Hafði nú unnið hann þrisvar (1925,
1927, 1928).
Knattspijrnumót íslands.
25. júni hófst aðal-knattspyrnumót Islands,
þar sem kept er uin knattspyrnubikar Islands
og tignarheitið „bezta knattspyrnufélag ís-
lands“. Aðeins 3 félög tóku þátt í því héðan
úr Reykjavík, en ekkert félag utan af landi.
Þarl' þetta nauðsynlcga að breytast. Mörg
knattspyrnufélög eru nú víðsvegar um Iandið
og ættu þau heztu að minsta kosti að geta sótt
þetta mót öðru hvoru. Mundi þáttaka þeirra
setja meira líf og fjör i knattspyrnuna, bæði
hér i höfuðborginni cg eins um hygðir lands-
ins. —
Félögin, sem þátt tóku i mótinu, voru K. R„
Valur og Vikingur. Fram var ekki með og er
það illti farið ef það lelag ætlar að lognast
út af. lvappleikar mótsins fóru sem hér segir:
K. R. vann Val með 1 : 0.
Valur vann Víking með 4 : 3.
K. R. vann Víknig með 5 : 2.
Iv. R. hlaut því íslandsbikarinn og sæmdina
„bezta knattspyrnufélag íslands“. og á þann
heiður með réttu. K. R. hefir unnið íslands-
bikarinn síðustu 3 árin. Valur og Víkingur
sækja nú mjög á og m.á K. R. vara sig á þeim
hvað úr hverju. — E. —
íþróttanámsskeið
var eins og að undanfö’rnu haldið i Reykja-
nesi \ið Isafjörð, að tilhlutun U. M. F. ..Huld“.
Stóð það yfir frá 29. maí til 1. júlí þ. á. Kenn-
arar voru: Hjörtur Kristmundsson i'rá Rauða-
mýri og Brynjólfur Ketilsson frá Álfhóli.
Nemendur voru alls 02, þó ekki allan tímann.
Kent var: margskonar sund, æfingar 1. P. Mul-
lers og Nielsar Buch, stökk, hlaup og vikivak-
ar. Próf fór fram að viðstöddu miklu ljöl-
menni sunnud. 1. júlí. Þó varð eigi prófað í
hlaupum og stökkum sökum þess að töluvert
regn var fyrri hluta dags og völlurinn því
sleipur. Prófsundið er lengd sundlaugarinnar,
30 metrar. Fljótustu nemendur voru 28 sek.
Frámfarir nemenda voru mjög góðar, enda
samvinna kennara prýðileg. Á prófinu voru
seld merki til ágóða l'yrir hinn fyrirhugaða
sundskála. Seldist fyrir ca. 220 kr. En daginn
áður söfnuðu þeir Vilmundur Jónsson læknir
og Jón S. Eðvald konsúll, í frjálsum samskot-
um, á ísafirði, í Hnífsdal og Súgandafirði 1370
krónum. Hinn 11. júlí koni svo húsgerða-
meistari ríkisins, Guðjón Samúelsson, í Reykja-
nes til að mæla út skálastæðið og athuga alt
þar að lútandi. Hefi ég heyrt að honum hafi
litist vel á staðinn, og undrar mig eigi. Nú
kemst skálinn því skjótt upp, þvi áhuginn er
mikill.
Heill og hamingja sé öllum, er vinna að
skjótum framförum og góðum aðbúnaði í
„Paradís íþróttanna" hér vestra, Reykjanesi.
,/. l>. I>.