Íþróttablaðið - 01.09.1928, Page 13

Íþróttablaðið - 01.09.1928, Page 13
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 223 Kaupið bækur I. S. I. Af bókum þeim, sem Sambandið hefir gef'ð úl, eru þess- ar til; Glímubók í. S. í. — Útg. 1916............kr. 2,75 Olympíuförin 1912 og Ákvæði um afreks- merki í. S. í. — Útg. 1919...............— 0.50 Sundbók í. S. í. I. hefti, útg. 1920 .... — 2,50 II. — — 1921 .... — 2,50 Ársskýrla í. S. í. 1921—’22, reglugerðir o. fl. - Útg. 1922 .........................— 1,50 Heilsufræði handa íþróffamönnum.— Útg. 1925 — 3,50 Leikreglur í. S. í. — Útg. 1928 ...........— 1,50 Knaftspyrnulög í. S. í. — Útg. 1928 .... 1,50 Bækurnar fást í flestum bókaverslunum og Leikreglurnar hjá útsöulmönnum íþróttablaðsins og afgreiðslumanni. Kaupið ritin og lesið! son, Gunnar Eiriksson, Gústaf Þórðarson, Gunnar Kristmannsson og Hjalti Jónsson, 5' 6,9". 7. Trésmiðir: St.: Gunnar Björnsson, ræð: Geir Gíslason, Axel Grímsson, Sveinn Erlends- son, og Þór. Jónsson, 5' 9,5". 8. Drengjufl. Skátafél. ,,Ernir: 6 drengir ó- nafngreindir, 5' 21,8". Dolsund umhverfis Örfirsei/ þreyttu í sam- ltandi við mót þetta þau Charlotte kona Mar- leins Einarssonar kaupmanns, þýsk að ætt, komin hingað upp fyrir múml. 2 árum. Mun hún hafa átl að einhverju leyti upptökin að því að þetta var reynt. Svo og Ásta Jóhann- esdóttir og Jón Kristinnsson. Komu þati í öf- ugri þessari röð að marki. Er timi þeirra ekki nefndur i skýrslu þeirri, senr þetta er tekið eftir. G,erir það ekki heldur neitt til eða frá því að flýtir á svona sundi fer eftir veðri og straumum og er þvi aldrei sambærilegur nema ntilli þeirra er þreyta í hvcrt skifti. Eins má scgja um flest viðavanshlaup, þar sem timinn cr mikið kominn undir veðri og færð. IV. Kappróðramót 16. ágúst. d. keppt á dönskum bátum frá Fyllu inn verðlaunagrip frá isl. dómsmálaráðuneytinu. ^cgalcngd 1000 metrar. 1. Hafnamenn, sömu og fyr laldir, á 6' 7,5". 2. Sjóliðar af Fijllu á 6' 23,7". Hafnamenn unnu bikarinn. B. Keppt á íslenzku bátunum. Fyrst sjóliðar af Fyllu, sem urðu 5' 4,5" og Bræðurnir (sjá fyr), sem urðu 5' 11,5". Þá skipverjar af Óðni, stm.: Þórarinn Björns- son, ræð.: Guðbjörn Björnsson, Stefán Björns- son, Sveinbjörn Sighvatsson og Magnús Björns- son, 5' 2" og flokkurinn, sem keppti við Fyllu i fyrra: stm.: Lúðvik Bjarnason, ræð.: Jó- hann Þorláksson, Steinar Gíslason, Þórður Helgason og Marteinn Guðmundsson, 5' 7,7". Nokkrum mín. seinna voru svo sigurvegar- arnir, Fylluflokkurinn og Óðins, látnir þreyta sín á milli til úrslita og urðu nú Fyllumenn fyrri, þó 1 mín. lengur en áður, hlutu þeir því verðlaunagrip þann, er um var keppt, ávaxta- skál úr slifri og kristal, og danska flotamála- ráðuneytið hafði gefið. Á eftir var samsæti á Hótel Skjaldbreið fyrir keppendur og starfsmenn mótsins. Fór það vel fram; en — nóg var þar óloftið í enda- lokin, ekki betra en í eldhúsi þar sem elda- vélin reykir, reykháfarnir voru þarna all- margir og sló niður i alla. Sundfélag Reykjavíkur stóð fyrir þessum mótum öllum. Er Valdemar leikfimiskennari Sveinbjörnsson þar framkvæmdarstjóri, eins og í fyrra, og farnast vel. íþróttamót á Álafossi. Þar hefir okkar gamli, góði vinur, Sigurjón Pétursson, haldið uppi skemtunum alloft í sumar, þar sem aðalþátturinn hefur verið í- þróttasýningar í ýmsri mynd. Byrjaði hann sunnud. 10. júní með 15 ára afmæli fánadagsins. Var dagskrá mjög fjöl- breytt og henni fylgt. Töluðu þar auk Sigur- jóns: Jakob Möller, bankaeftirlitsmaður, fyrir minni fánans og Helgi Hjörvar, kennari fyrir minni sundlistarinnar. Þar fór svo frarn leik- fimissýning undir stjórn Jóns Þorsteinssonar, dýfingar í sundlauginni og ýmiskonar sundsýn- ingar fleiri bæði af konum og körlum. Auk þess kom Jóhanna litla Erlingsdóttjr, 5 ára

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.