Íþróttablaðið - 01.09.1928, Page 17
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
227
Heimsmet í 800 metra hlaupi
hefur ekki gengið eins ört að lækka eins og í
mörguni öðrum íþróttum. Á leikunum í St. Louis
1904 hljóp Amerikum. Lightbody, það á 1' 56".
A leikunum í London 1908 færir landi hans,
Melvin W. Sheppard, það nðiur í 1' 52,8", en í
Stockhólmi 1912 kemur Ted Meredith fram og
færir það niður í 1' 51,9". Við það stóð svo þar
lil að Dr. Otto Peltzer færir það 1926 niður í
1' 51,6". En 14. júlí í sumar kemur Frakkinn
Seraphin Martin því niður í 1' 50.6". Hversu
fór í úrslitasprettinum á Olympíuleikunum nú,
sést á fréttum þaðan i næsta hlaði.
Noregsmeistari
í fimtarþraut varð í ár Sigurd Marcus-
sen frá Tönsberg Turn, með 3537,945
stig. í íþróttagreinunum varð hann þannig:
Langstökki: nr. 4, 6,04 metr., spjótkasti: nr.
2, 49,51 m., 200 m. hlaup: nr. 1, 23,7 sek.
Kringlukasti: nr. 3, 34,85 m., 1500 m. hlaupi nr.
1, 4' 20".
i tiic/þraut varð i sumar Gunnar Hagen með
6707 stigum. — Hver mun verða fyrstur til
þess hér að reyna sig á lugþraut? Og hversu
hátt mun sá geta komist að stigatölu?
Kvennaheimsmet
i 200 metra bringusundi setti Lotte Miile þ.
15. júlí með 3' 11,2".
í káluvarpi (5 kg.) setti Frl. Háublein þ.
15. júlí. Hún varpaði 11,96 metra.
i spjótkasti setti ungfrú Hargos frá Lubeck
í Bremen 1. júlí í sumar. Kastaði hún 38,36 m.
Hvenær fara íslensku stúlkurnar að æfa
lrjálsar íþróttir?
Dönsk sundmet
voru bætt þ. 22. júlí, í 100 m. baksundi
kvenna, Else Jacobsen: 1' 29,2", og' í 500 m.
frjálsri afiferð karla: Gottfr. Havsteen, 7' 34".
Heimsmet:
i kringlukasti, bætti Þjóðverjinn Hoffmeister
á móti í Gelsenkirchen-Neuer þ. 21. júlí síðastl.
Hann kastaði betri hendi 48,77 metra.
í sundi settu Japanar tveir i París 18. júlí í
Miniar. Synti Tsuruda 200 metra bringusund á
47,4" og Takasshi 100 metra frjálst á 59,4"
í kúluvarpi. „Idrædsbladet" 7. mai éíðastl.
segir frá því að þann dag hafi Þjóðverjinn
Hirschfeld á móti í Breslau varpað kúlu 15,79
metra með betri hendi og að öll 6 ,,köst‘‘ hans
á móti þessu hafi verið yfir eldra met. Og það
Frá ameríska meistaramótinu i sumar; úr-
slitin á 200 metrum. Á instu brautinni (til
hægri) er Charles Borah, hann varð 1. Á. 4.
brautinni er Paddock, sem varð annar. Hinir
eru ekki sérlega kunnir.
bætir þessu við: Fyrra heimsmet setti Ralph
Itóse, hinn efldi Ameríkumaður, 1909, 15,54%
m. Hirschfeld var kominn það langt fyrir
skömmu á æfingu að metinu nam. Og rétt á eftir
var tilkynt frá Ameríku að Kuck hefði varpað
15,56 metra. Nú hafa þeir áttst við á Olympíu-
leikunum eins og áður er getið.
í þolsundi setti þýski sundgarpurinn Otto
Kemmerich í april í vor. Synti hann látlaust i
46 klukkustundir. Eldra met hans var 42 k.lst.
SKATT fyrir árið 1928 hafa þessi félög greitt
til I. S. í. frá síðustu tilkynningu í íþróttablað-
inu um skattgreiðslur sambans-félaganna:
1. íl>róttufélag stúdenta, Reykjavik ......... kr. 10.00
2. Knattspyrnufélag Reykjavfkur .............. — 25.00
0. SkátafélagiiB „Ernir“, Reykjavík ........... — 10.00
4. Knattspyrnufél. „Þjálfi“, Hafnarfirði .... — 10.00
5. Skiðafélag Reykjavikur .................... — 10.00
6. Glimufélagið „Ármann", Reykjavik .......... — 25.00
7. Sundfélagið „Ægir“, Reykjavik..............— 10.00
R. Sundfélag Reykjavikur ...................... — 20.00
í). Knattspyrnufélagið „Vikingur", Rvík ....... — 15.00
10. íbróttafélag Reykjavikur ................. — 25.00
11. fbróttafélagið „Huginn*', Seyðisfirði .... — 20.00
12. Knattspyrnufélagið „Valur“, Rvik ......... — 20.00
10. Knattspyrnufélagið „Fram“, Rvík ........... — 20.00
14. U. M. F. „Velvakandi, Reykjavik .......... — 10.00
15. U. M. F. Eyrarbaltka, Eyrarbakka ..........— 10.00
1 (>. Knattspyrnufélagið „Vestri", fsafirði ...— 10.00
17. U. M. F. Reykhverfingur, Reykjahverfi .. — 10.00
18. U. M. F. „Geisli", Aðaldal, Þingeyjars. .. — 10.00
19. Knattspyrnufél. „Týr“, Vestmannaeyjum .. — 25.00
Þökk fyrir skilvlsina.
Reykjavík, 4. ógúst 1928.
Gjaldkeri í. S. í.