Íþróttablaðið - 01.11.1928, Síða 1
Iþróttablaðið
Gefið út af Iþróttasambandi Islands.
(Áður „Práttur" stofnaður af í. R.)
III. árgangur.
Nóvember—Desember 1928.
11 — 12. tölublað.
Þingvallaglíman 1930.
Þótt dagskrá Alþingishátíðarinnar 1930 hafi
ekki verið birt enn þá, eru allir, sem á hana
minnast, á einu máli um það, að þar hljóti að
fara fram íslensk glíma og að sú glíma eigi að
vera skipuð fleiri og betri glímumönnum en nokk-
ur önnur glíma, sem háð hefir verið, úrvali allra
slímumanna landsins. Glímumenn fá þar betra
tækifæri en nokkurn tíma fyr, til þess að kynna
fflímuna erlendum gestum og afla henni fylgis og
vinsælda. En jafnframt hvílir á þeim þung ábyrð,
að það tækifæri sé notað svo vel, að ekki verði
betur. Þeir verða að sýna gestum landsins þjóðar-
íþróttina af svo mikilli list og snilli, að allir hrífist
af léttleik hennar og fegurð, allir sannfærist um
íþróttagildi hennar. Til þess, að glíman geti farið
þannig fram, þarf langan og samviskusamlegan
undirbúning. Það þarf að hefjast handa þegar í
stað.
Það er auðvitað, að glímumenn í Þingvalla-
glímunni verða að koma sem víðast að. Væri
sjálfsagt að hver sýsla og kaupstaður ætti þar
fulltrúa. En það er hvorttveggja að tala glímu-
manna má ekki fara fram úr ákveðnu hámarki og
einungis úrvalsmönnum verður fallið að koma
þarna fram fyrir hönd íþróttamanna vorra. Það er
því nauðsynlegt, að stjórn íþróttasambands íslands
geti áður fengið nokkura vitneskju um, hve mörg-
um og vel hætum glímumönnum verður á að skipa.
Á Íslandsglímunni 1929 verður ágætt tækifæri
td að kanna liðið. Það er því hugmynd sam-
bandsstjórnarinnar, að allar sýslur og kaupstaðir
á landinu sendi menn, 1 eða 2, á þá glímu, svo
að nokkur samanburður fáist á glímumönnum. Að
lokinni þeirri glímu er fyrirhugað að halda stutt
námskeið, þar sem glímumennirnir fengju leið-
beiningar og tilsögn eldri og reyndari glímumanna
og betra tækifæri til æfinga heldur en heima hjá
sér. Námskeiðið yrði ókeypis fyrir þátttakendur,
og enn fremur mun sambandsstjórnin gera sér
far um að útvega þeim ókeypis vist á meðan. Það
er vafalaust, að margir Reykvíkingar tnundu vilja
hýsa glímumann úr átthögum sínum um hálfs-
mánaðartíma, en stjórnin þyrfti að fá að vita með
nokkuð löngum fyrirvara, á hve mörgum glímu-
tnönnum hún má eiga vott og nöfn þcirra. Væri
og mjög heppilegt, ef henni væri bent á menn,
sem líklegir þættu til þess að vilja taka við glímu-
mönnunum.
Glímumenn þurfa að taka til æfinga nú þegar
og æfa kappsamlega í allan vetur. Væri æskilegt,
að háðar væru kappglímur í hverri sýslu að vori,
til þess að velja menn á Íslandsglímuna, og aftur
vorið 1930, áður en endanlega verður kosið í
Þingvallaglímuna. Þetta gæti orðið upphaf árlegrar
kappglímu í hverri sýslu og kaupstað, og mundi
það stórum auka áhuga manna á glímunni og
skapa fleiri góða glímumenn heldur en verið hafa
nú um hríð.
Stjórn íþróttasambandsins hefur nokkuð leitað
fyrir um undirtektír manna um þessar kappglímur
innan sýslu og fengið ágætar undirtektir margra
áhugasömustu íþróitamanna úti um land. fiefir
hún góðar vonir um, að þessar kappglímur geti
komist á víðast hvar. Stjórnin heitir því á öll
íþróttafélög og glímuvini að leggjast nú á eitt og
vinna af kappi að undirbúningi Þingvallaglím-
unnar 1930, svo að hún geti frarið fram á þann
veg, að hún verði land og þjóð til sóma.
25. oktðber 1928.
Stjórn íþróttasambands íslands.