Íþróttablaðið - 01.11.1928, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
235
kvæmdum, hvað sem öðrum leið eða heildinni. Sam-
kynning, samslarf og samtök hefir í reyndinni
verið óþekt.
Með líkamsment og íþróttum fylgir það, að menn
ganga léttar og fegurr en ella, menn bera sig
betur, lyfta höfðinu hærra og fá því meiri birtu í
augun og víðara útsýni. Þetta verður ekki að eins
í Iíkamlegum skilningi heldur og engu síður í and-
legum. Fullkomin almenn líkamsmentun er því
fyrsta og besta ráðið við hinum fyrnefndu svo
kölluðu þjóðlöstum.
Vmsir góðir hugsjónamenn hafa þegar riðið á
vaðið til að reyna að bæta dálítið úr þessu og
hefir ögn orðið ágengt, en að eins sér það og
finst á einstöku örfáum mönnum. En nú fyrst eru
að byrja að rísa skólar, sem Ieggja aðaláhersluna
á líkamsmentina. Og einn meðal hinna fyrstu er
Iþróttaskóli Sigurðar Greipssonar í Haukadal.
Fyrir nokkrum árum sigldi bláfátækur en áhuga-
samur íþróttamaður utan. Hann hafði úr sárlitlu
að spila og leitaði því þangað, sem honum var
bent af einhverjum kunningja sínum á að hann
mundi geta fengið tiltölulega mesta tilsögn á sem
skemstum tíma og fyrir hvað minst gjald. Hann
lenti á Iþrótta-lýðháskólanum danska í Ollerup á
Fjóni, hjá Níelsi Bukh. En Bukhs sterka hlið er
sú, að geta vakið sterka áhugaöldu í huga flestra
nemenda sinna, og þessari gáfu sinni beitir hann
óspart til að vekja þá og stæla til starfs. Þessi
íþróttamaður fékk því í Ollerup góða álagningu á
glóð þá, er hann átti sjálfur fyrir. Og er hann
kom heim aftur stofnaði hann fyrsta sérstaka lík-
amsmentaskólann hér á landi: Mullersskólann í
Reykjavík. Maðurinn er nefnil. ]ón Þorsteinsson
frá Hofstöðum.
Skömmu síðar varð hann svo til þess, sem aðal-
framkvæmdamaður, ásamt öðrum, að koma af stað
GUmuförunum, fyrst til Noregs og svo til Dan-
merkur. I ferðum þeim tók þátf, og hefir vist
verið framarlega í þeinr framkvæmdum, Sigurður
Qreipsson í Haukadal, þáverandi glímukonungur
Islands.
í síðari ferðinni kyntist Sigurður Níelsi Ðukh
og skóla hans. Varð það til þess að Sigurður fór
ufan strax haustið eftir og gekk veturinn. næsta á
skóla Bukhs í Ollerup, með þeim einbeitta ásetn-
■ngi að koma sem fljótast upp skóla hér heima
fyrir landa sína og láta þá njóta góðs af áhuga-
eldi þeim, sem brann í hans eigin huga, svo að
aukin líkamsrækt mætti breiðast víðar út um bygðir
gamla Fróns.
Og Sigurður lét ekki sitja við hugsunina og
áætlunina. Hann var ekki fyr kominn heim í fyrra
vor, en hann tók að undirbúa skóla sinn og reisa
hús fyrir hann. Og nú er hann risinn, eins og sjá
má á myndinni hér fyrir ofan, og er búinn að
starfa eitt ár.
Húsið stendur á suðurhallandi söndunum fyrir
neðan gamla Gepsi og félaga hans. Allir eru þeir
hverir vel heitir, en þó hættir að gjósa að sinni
nema Smiður. Húsið er alt upphitað með vatni úr
hverunum, og auk þess er allur matur soðinn við
hveravafnið og er til þess sérstakur umbúnaður.
Suður af húsinu er blóma- og trjá-garður, sem
vafalaust verður fallegur með tímanum, en niður
af honum er sundlaugin, sem á myndinni sést, og
austur af henni nýbygð fénaðarhús, hlaða og
geymsluhús, og sést á þau á myndinni.
íþróttaskólinn í Haukadal byrjaði þar.nig í fyrra
haust með námsskeiði fyrir fullorðna pilta, er stóð
frá 1. nóvember til 15. febrúar. Voru 12 piltar á
því, 17 ára og eldri. Annað námsskeið stóð frá
1. mars til 15. apríl og var fyrir unglinga 14 ára
og uppeftir.
Nú er annað skólaárið nýbyrjað og eru 20 piltar
á því (fleiri getur Sigurður ekki tekið á meðan
hann getur ekki bætt við sig húsakynnuni, hefir
hann þó aukið við nemendaherbergin síðan í fyrra).
Unglinganámskeiðið í ár, 1. mars til 15. apríl, var
ekki fullskipað, er ég talaði við Sigurð síðast, en
verður þó vafalaust. Betra er því að flýta til Sig-
urðar umsóknum um það, og endilega fyrir áramót.
Auk allskonar líkamsmenta og íþrótta er kent
á skólanum: íslenska, reikningur, heilsufræði og
saga, danska þeim, er vilja, o. fl.
Kenslugjald fyrir skólann er 70 kr. í eldri deild,
en 30 kr. í yngri. Fæði, þjónusta Ijós, hiti og ræst-
ing er 1,80 kr. á dag fyrir hvern mann. Kostar
því skólinn í alt, fyrir utan föt og bækur, um 265
kr. fyrir eldri, en 112 kr. fyrir yngri nemendurna.
Um leið og ég óska Sigurði til heilla og ham-
ingju með íþróttaskólann sinn í Haukadal óska
ég landi og þjóð hins sama. Vona ég að margir
íleiri líkamsmentaskólar rísi hér á landi og helst